Mladic að gefa sig fram? 13. júní 2005 00:01
Fjölmiðlar og mannréttindasamtök í Serbíu segja að Ratko Mladic hershöfðingi sé að semja við stjórnvöld um að gefa sig fram við stríðsglæpadómstólinn í Haag. Mladic stjórnaði persónulega aðgerðum í Srebrenitsa þar sem talið er að átta þúsund múslima hafi verið myrt. Hann og Radovan Karadzic, sem var pólitískur leiðtogi Bosníu-Serba í stríðinu, hafa báðir farið huldu höfði í fjögur ár og verið ákaft leitað. Mladic mun eiga erfitt með að sverja Srebrenitsa af sér því það eru til sjónvarpsmyndir af honum þar sem hann gengur um meðal fólksins og lofar því að það skuli flutt á öruggan stað þar sem vel verði farið með það. Hann og hermenn hans sjást gefa börnum sælgæti. Fólkið var svo flutt á brott í rútum og flest allir karlmenn og ungir drengir myrtir. Margir Serbar líta hins vegar á þá Mladic og Karadzic sem þjóðhetjur, og nógir til að skjóta yfir þá skjólshúsi og verja þá síðastliðin fjörug ár. Fyrr í þessu mánuði voru sýndar myndbandsupptökur af því þegar sex óvopnaðir múslimar frá Srebrenitsa, með hendurnar bundnar fyrir aftan bak, voru myrtir. Þessar myndir voru margsýndar í serbneska sjónvarpinu og er leitt að því getum að stjórnvöld hafi verið að búa þjóðina undir að Mladic yrði framseldur. Þrjú dagblöð í Serbíu hafa skýrt frá því að Mladic sé nú tilbúinn til þess að gefa sig fram frekar en að vera handtekinn og fluttur til Haag í járnum. Eitt blaðanna hefur eftir heimildarmanni í stjórnsýslunni að ríkisstjórnin hafi lofað að framselja Mladic á miðvikudag. Framsal bæði á Mladic og Karadzic er forsenda fyrir því að Serbía komist aftur í samfélag þjóðanna með hugsanlegri aðild að Evrópusambandinu og NATO.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Enginn aðdáandi Harry og Meghan Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi Sjá meira