Fleiri fréttir

Staðfesti símafund

Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra, staðfesti í viðtali í morgunþætti Talstöðvarinnar í gær að Halldór hefði átt samtal við fulltrúa S-hópsins og Kaldbaks um það hvort þeir gætu sameinast um kaupin á Búnaðarbankanum haustið 2002.

Litla sælgætismálið

Kærður fyrir “smygl” á gotteríi - Litla sælgætismálið fyrir dómi á Héraði.

Khodorkovsky í níu ára fangelsi

Rússneski auðjöfurinn Mikhail Khodorkovsky, eigandi Yukos-olíurisans, var dæmdur í níu ára fangelsi fyrir stundu. Málaferlin virðast því loks vera að taka enda eftir sífelldar frestanir.

Hollendingar fylgi ekki Frökkum

Fylgjendur stjórnarskrár Evrópusambandsins í Hollandi hvetja nú landa sína til að fylgja ekki Frökkum eftir og samþykkja nýja stjórnarskrá á morgun þegar þjóðin kýs um hana. Skoðanakannanir benda þó allar til að um sextíu prósent landsmanna muni hafna henni.

Raffarin sagði af sér

Jean-Pierre Raffarin, forsætisráðherra Frakklands, hefur sagt af sér. Hann afhenti Jacques Chirac forseta afsögn sína fyrir stundu. Chirac hefur tilnefnt Dominique de Villepin sem eftirmann Raffarins en afsögn hans kemur í kjölfar þess að Frakkar kolfelldu stjórnarskrá Evrópusambandsins í fyrradag.

Tveir látnir úr hermannaveiki

Tveir hafa látist úr hermannaveiki hér á landi á þessu ári. Þetta kemur fram í <em>Morgunblaðinu </em>í dag. Þá liggur karlmaður á gjörgæsludeild Landspítalans með hermannaveiki en hann smitaðist á Ítalíu fyrir nokkrum dögum.

Auglýsingarnar náðu til almennings

Bannaðar auglýsingar Umferðarstofu náðu vel til almennings samkvæmt athugun IMG Gallups. Auglýsingaherferðin kallaðist „Umferðin snýst um líf“ og taldi Samkeppnisstofnun þær þess eðlis að banna bæri birtingu þeirra.

Framkvæmdir við Hlemm langt komnar

Í fyrsta sinn um áratuga skeið er hægt að keyra Laugaveginn frá upphafi til enda án þess að villast inn á Hverfisgötuna á leiðinni. Vegaframkvæmdir við Hlemm eru það langt komnar að umferð hefur verið hleypt á nýjan vegakafla þar.

Fimm létust í Pakistan

Að minnsta kosti fimm létust og tugir særðust er sjálfsmorðssprengjuárás var gerð í borginni Karachi í Pakistan í gærkvöld. Sprengjutilræðið átti sér stað í miðri bænastund í mosku sjíta-múslima.

Tveir látnir hið minnsta

Að minnsta kosti tveir írakskir hermenn létust er bílsprengja sprakk í bænum Baquba í morgun. Þá særðust að minnsta kosti níu í árásinni.

Kærulausir ökumenn í Keflavík

Lögreglan í Keflavík hafði afskipti af nokkrum kærulausum ökumönnum í gærkvöldi og í nótt. Þeir höfðu ýmist sleppt því að setja sumardekkin undir bíla sína, sleppt því að nota öryggisbelti eða voru að tala í gsm-síma án þess að nota handfrjálsan búnað.

Al-Zarqawi segist við hestaheilsu

Leiðtogi al-Qaida, Abu Musab al-Zarqawi, hefur sent frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að hann sé við hestaheilsu eftir að hafa særst lítillega í bardaga við bandaríska hermenn í Írak. Ekki hefur verið staðfest að yfirlýsingin sé í raun frá honum sjálfum.

Hæstiréttur staðfesti úrskurðinn

Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð héraðsdóms í deilu Iceland Seafood og nokkurra fyrrverandi starfsmanna þess. Nokkrir lykilstarfsmenn Iceland Seafood hættu hjá fyrirtækinu og réðu sig til Seafood Union sem er í sama geira.

Ítölsk herþyrla hrapaði; 4 létust

Ítölsk herþyrla hrapaði nálægt borginni Nassiriya í Írak í morgun með þeim afleiðingum að fjórir hermenn létust. Ástæður slyssins eru enn ókunnar en þetta er þriðja þyrlan sem hrapar í landinu á einni viku.

Landlæknir harðorður í garð DV

Sigurður Guðmundsson landlæknir segir DV hafa fari langt yfir þau mörk sem flestir virði um sjúklinga og einkamál þeirra. Þetta kemur fram í bréfi sem hann skrifar ritstjóra blaðsins vegna frétta þess af Íslendingi sem liggur þungt haldinn af hermannaveiki.

Sprenging í eldfjallinu

Eldfjall í vesturhluta Mexíkó heldur áfram að gjósa en sprenging varð á fjórða tímanum í morgun að íslenskum tíma sem varð til þess að aska, reykur og grjót þeyttust allt að fimm kílómetra upp í loftið. Sprenging þessi var öflugri en sú sem varð fyrr í mánuðinum.

Krókódíll í fjölskyldusundlauginni

Bandarísk fjölskylda fékk óvænta og óþægilega heimsókn svo ekki sé meira sagt í sumarhús þeirra í Suður-Flórída í gær þegar krókódíll ákvað að fá sér sundsprett í sundlaug þeirra í bakgarði hússins.

Hjálparstarfsmenn handteknir

Tveir starfsmenn hjálparsamtakanna „Læknar án landamæra“ hafa verið handteknir í Súdan fyrir að skýra frá því að hundruðum kvenna í Darfur-héraði hafi verið nauðgað. Stjórnvöld í Súdan styðja arabískar vígasveitir sem hafa herjað á svarta íbúa Darfur-héraðs, myrt þúsundir og rekið aðra á flótta.

Ráðherra óskar eftir upplýsingum

Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra hefur óskað eftir nákvæmum skriflegum upplýsingum frá breskum stjórnvöldum um atvikið sem átti sér stað þegar rúmlega áttatíu þúsund rúmlítrar af geislavirkum vökva láku úr skemmdu röri í endurvinnslustöðinni í Sellafield.

Hótaði aldrei stjórnarslitum

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segist aldrei hafa hótað stjórnarslitum í kringum sölu bankanna. Hann segir úttekt <em>Fréttablaðsins</em> á sölu ríkisbankanna innihalda rangfærslur sem hefði mátt leiðrétta með einu símtali en aldrei hafi verið leitað eftir upplýsingum úr ráðuneytinu.

Hungursneyð yfirvofandi í N-Kóreu

Stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa stefnt milljónum manna úr borgum landsins út í sveitir til þess að vinna á bóndabæjum. Mikil hungursneyð er yfirvofandi í landinu.

Hluti Viðeyjar látið á sjá

"Ég hef fylgst gaumgæfilega með þessu um langa hríð og það er engum vafa undirorpið í mínum huga að framkvæmdirnar við Sundahöfn spila stórt hlutverk í þeirri landeyðingu sem orðið hefur á eynni," segir Örlygur Hálfdánarson, fyrrverandi bókaútgefandi.

Eldur í íbúðarhúsi í Breiðholti

Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað út fyrir stundu þegar eldur kom upp í íbúðarhúsi að Rangárseli 20 í Breiðholti. Húsið er tveggja hæða parhús og að sögn vaktstjóra hjá slökkviliðinu logaði mikill eldur út úr húsinu.

30 flóttamenn til landsins

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að taka á móti allt að þrjátíu flóttamönnum á þessu ári. Um er að ræða konur og börn frá Kólumbíu sem hugsanlega verður komið fyrir á höfuðborgarsvæðinu.

Vaxandi skotvopnaeign í Osló

Lögreglan í Osló hefur miklar áhyggjur af vaxandi beitingu skotvopna í höfuðborginni. Skotvopnum hefur tíu sinnum verið beitt í Osló á síðustu tveimur árum.

Lagabreytingu þarf til

Héraðsdómari segir að breyta verði lögum til að losna við vonda nágranna. Fokið sé í flest skjól hjá þeim sem sæta brotum á húsfriði. Lögmaður Húseigandafélagsins segir löngu tímabært að taka á slíkum málum.

Aðeins opið um helgar

"Þetta var sameiginleg ákvörðun enda umferð fólks í Viðey á virkum dögum mjög lítil," segir Jóhannes Stefánsson, eigandi Múlakaffis, en það fyrirtæki mun reka veitingasölu í Viðeyjarstofu um helgar í sumar.

Deilan um málefni sérskóla leyst

Margra ára deilu ríkisins og borgarinnar um málefni sérskólanna hafa nú verið leystar með samningi sem fjármálaráðherra, menntamálaráðherra og borgarstjóri undirrituðu í dag um húsnæðismál sérskólanna. 

Flug milli Íslands og Indlands

Samkomulag hefur náðst við indversk stjórnvöld um loftferðasamning milli Íslands og Indlands. Bókun um samninginn var undirrituð í Ráðherrabústaðnum í dag að viðstöddum dr. A.P.J. Abdul Kalam, forseta Indlands, og Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra.

Aðeins mál eins starfsmanns

Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð héraðsdóms í deilu Iceland Seafood og fyrrverandi starfsmanns. Hann var í hópi fimm lykilstarfsmanna Iceland Seafood sem hættu hjá fyrirtækinu og réðu sig til Seafood Union sem er í sama geira. Missagt var í fréttum Bylgjunnar í morgun að mál allra starfsmannanna hafi verið á borði Hæstaréttar í gær. 

Parvó-veikin á skrið aftur

Miklu meira hefur verið um Parvó-veiki í hvolpum í vor heldur en mörg undanfarin ár. Nokkrir hafa drepist af hennar völdum. Hún lýsir sér með blóðuppköstum og niðurgangi. Grunur leikur á að nýtt bóluefni dugi ekki sem skyldi. </font /></b />

Kettlingar fundust í pappakassa

"Þetta er alveg ótrúleg mannvonska gagnvart dýrunum," sagði Ómar Dabney hjá meindýravörnum Reykjavíkurborgar um fund sinn í Heiðmörk fyrir fáeinum dögum.

Um 30 flóttamenn til Reykjavíkur

Allt að þrjátíu flóttamenn frá Kólumbíu eru væntanlegir hingað til lands síðla sumars eða í haust. Þeir munu væntanlega setjast að í Reykjavík, að sögn Bjarkar Vilhelmsdóttur formanns velferðarráðs Reykjavíkurborgar.

Halldór: Hótaði aldrei stjórnarslitum

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir ýmislegt sem komið hefur fram í Fréttablaðinu að undanförnu um sölu bankanna ekki eiga sér neina stoð í raunveruleikanum. Í samtali við Talstöðina segir Halldór það vitleysu að hann hafi hótað stjórnarslitum vegna sölu VÍS til Samsonarfélaga. Davíð Oddsson hefði þurft að taka ákvörðun um slíkt.

Húsnæði sérskóla til borgarinnar

Reykjavíkurborg mun yfirtaka eignarhald á Öskjuhlíðarskóla og Safamýrarskóla, þar sem rekin er þjónusta við fötluð grunnskólabörn.

Réttarhöldin handan við hornið?

Jalal Talabani, forseti Íraks, telur að réttarhöld yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta landsins, geti líklega hafist innan tveggja mánaða. Saddam er ákærður fyrir glæpi gegn mannkyninu. Þetta kom fram í viðtali við Talabani á bandarísku sjónvarpsstöðinni CNN í dag.

Bilun í netkerfi Landspítalans

Bilun kom upp í netkerfi Landspítalans um hádegi í dag og hefur öll þjónusta spítalans á Netinu legið meira og minna niðri eða verið mjög hægvirk. Flest upplýsingakerfi Landspítalans hafa legið niðri en bilunin kom aðallega niður á símkerfinu; spítalinn var meira og minna símasambandslaus.

Heiðarlegasti sendillinn

Stefán Konráðsson sendill vekur athygli hvar sem hann fer. Hann þeysist hverfa á milli með bréf og böggla á silfurgráu hjólinu með aftanívagni. </font /></b />

Mira Markovic úr útlegð

Yfirvöld í Serbíu ákváðu í dag að fella niður alþjóðalega handtökuskipun á Miru Markovic, eiginkonu Slobodans Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, og heimila henni að snúa aftur til Serbíu eftir að hafa verið í útlegð í Rússlandi í tvö ár.

Öllum í frystihúsinu sagt upp

Öllum þrjátíu og tveimur starfsmönnum í frystihúsi Samherja á Stöðvarfirði verður sagt upp 1. september næstkomandi þegar Samherji hættir landvinnslu í bænum.

Landvinnslu hætt á Stöðvarfirði

"Við reynum að vinna í samstarfi við önnur sjávarútvegsfyrirtæki í bænum og á svæðunum í kring til að flestir fái önnur störf," segir Gestur Geirsson, framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja.

140 milljónir í uppbyggingu vestra

Skrifað verður undir vaxtarsamning Vestfjarða á Ísafirði í dag en honum er ætlað að styðja við bakið á uppbyggingu byggðakjarna á svæðinu. Verður það gert með því að styrkja sjálfbæran hagvöxt með markaðstengdum áherslum.

Halldór á móti ljósmyndasýningunum

Halldór Blöndal, forseti Alþingis, hefur sent Steinunni Valdísi Óskarsdóttur borgarstjóra bréf þar sem hann gagnrýnir þá ákvörðun embættisins að heimila að þriðja árið í röð verði stillt upp fyrirferðamiklum og grófum steinstöplum á Austurvelli þar sem ljósmyndum verði komið fyrir.

Deep Throat fundinn?

Bandaríska tímaritið <em>Vanity Fair</em> greinir frá því að fyrrverandi leyniþjónustumaðurinn Mark Felt hafi sagt sig vera „Deep Throat“, manninn sem ljóstraði upp um Watergate-hneykslið til blaðsins <em>Washington Post</em> og varð til þess að Richard Nixon neyddist til að segja af sér sem forseti.

Vilja minnka kolmunnaveiðar

Sjávarútvegsráðherrar ríkja við norðaustanvert Atlantshaf vilja draga úr kolmunnaveiðum í Norður-Atlantshafi þegar á þessu ári. Þetta kom fram að loknum fundi þeirra í Færeyjum í gær. 

Sjá næstu 50 fréttir