Fleiri fréttir Hækka niðurgreiðslur með börnum Gunnar Einarsson hefur tekið við starfi bæjarstjóra í Garðabæ. Ásdís Halla Bragadóttir, fráfarandi bæjarstjóri og forstjóri BYKO, afhenti Gunnari lyklana við hátíðlega athöfn á bæjarstjórnarskrifstofunum klukkan ellefu í morgun. Fyrsta verk nýs bæjarstjóra var að tilkynna nýja samþykkt bæjarráðs sem felur í sér mikla hækkun niðurgreiðslna með börnum hjá dagforeldrum og á einkareknum leikskólum. 24.5.2005 00:01 Unnið að leiðréttingum á umfjöllun Bláa lónið er meðal ofmetnustu ferðamannastaða heims, segir blaðamaður breska stórblaðsins <em>Sunday Times</em> eftir heimsókn í lónið. Honum fannst það skítugt, alltof troðið af fólki og óaðlaðandi á allan hátt. Framkvæmdastjóri lónsins er mjög ósáttur við umfjöllunina og segir unnið að leiðréttingum. 24.5.2005 00:01 Handtóku mannréttindafrömuð Stjórnvöld í Úsbekistan hafa handtekið mannréttindafrömuð sem greindi fréttamönnum frá því þegar úsbekskar hersveitir skutu á og drápu mótmælendur í borginni Andijan um miðjan mánuðinn. Frá þessu greina mannréttindasamtökin Huma Rights Watch og krefjast þess að manninum verði sleppt tafarlaust. Samtökin segja að yfirvöld í Úsbekistan reyni með þessu hindra að umheimurinn fái nákvæmar lýsingar á því sem gerðist 13. maí í Andijan. 24.5.2005 00:01 Auka framlög til þróunarmála Aðildarríki Evrópusambandsins samþykktu í dag að auka framlög sín til þróunarmála til þess að styðja við baráttu Sameinuðu þjóðanna gegn fátækt í heiminum. Fimmtán eldri aðildarþjóðirnar stefna að því að verja að minnsta kosti 0,51 prósenti af þjóðartekjum til hjálparstarfs árið 2010 og 0,7 prósentum af tekjunum fimm árum síðar, en Danir, Svíar, Hollendingar og Lúxemborgara hafa þegar náð þessum markmiðum. 24.5.2005 00:01 Hafa áhyggjur af hrefnuveiðum Sendiherrar Bretlands, Frakklands og Þýskalands sendu í dag frá sér yfirlýsingu um hvalveiðar Íslendinga til utanríkisráðuneytisins. Segir þar að sendiherrarnir lýsi yfir áhyggjum sínum vegna tillögu Hafrannsóknarstofnunar til ríkisstjórnar Íslands um veiðar á 39 hrefnum á þessu ári í vísindaskyni. 24.5.2005 00:01 Varar við ofnhitnun í efnahagslífi Efnahags- og framfarastofnun Evrópu, OECD, segir efnahagslífið á Íslandi vera að ofhitna. Ríkið verði að draga úr útgjöldum og vextir að hækka til að koma í veg fyrir að verðbólgan fari úr böndunum. Annars sé hætta á kreppuástandi þegar gengi krónunnar fer að lækka og dregur úr áhrifum stóriðjuframkvæmda. 24.5.2005 00:01 Sjö hermenn falla í Írak Sjö bandarískir hermenn féllu í Írak í dag í tveimur sprengjuárásum. Í fyrri árásinni létust þrír hermenn á eftirlitsferð í miðborg Bagdad þegar bílsprengja sprakk nærri ökutæki þeirra. Skömmu síðar var greint frá því að fjórir hermenn hefðu látist í árás í bænum Haswa suður af höfuðborginni. 24.5.2005 00:01 Sæðisþóknun verði ekki skattskyld Rekstaraðilar sæðisbankans Cryos í Árhúsum í Danmörku hafa skorað á Kristian Jensen, fjármálaráðherra, að afturkalla kröfu danskra skattayfirvalda um að sæðisgjafar þurfi að greiða skatt af þóknuninni sem þeir fá fyrir framlag sitt. Bankastjórarnir óttast að þetta verði til þess að mun færri sæðisgjafar fáist, ekki bara vegna peninganna heldur ekki síður vegna þess að margir vilja gefa nafnlaust og það er ekki hægt ef skattayfirvöld þurfa að fá allar upplýsingar um gjafana. 24.5.2005 00:01 Ræddi bara við suma umsækjenda Ættleiðingarnefnd ræðir við suma umsækjendur í málum sem koma fyrir nefndina, aðra ekki. Hún er ekki í samvinnu við viðkomandi barnaverndarnefnd, að sögn Margrétar Hauksdóttur formanns ættleiðingarnefndar. </font /></b /> 24.5.2005 00:01 Vill skima alifugla og vatnafugla Embætti yfirdýralæknis hefur sótt um fjárveitingu til stjórnvalda til að láta fara fram svokallaða skimun á alifuglum og vatnafuglum hér á landi. 24.5.2005 00:01 Segir samfélagið framleiða öryrkja Góð menntun, há laun, glæsilegt útlit og lífsgæði. Þetta eru kröfur samfélagsins í dag. Þeir sem ekki standa undir þeim lenda utan garðs og enda sem öryrkjar. Úrræði skortir og yfiriðjuþjálfi á geðsviði Landspítalans segir starfsfólkið vera að gefast upp. </font /></b /> 24.5.2005 00:01 Morgunganga á vegum FÍ alla vikuna Ferðafélag Íslands stendur þessa vikuna fyrir morgungöngum alla daga vikunnar. Gengið er alla morgna klukkan 6 á fjöll í nágrenni Reykjavíkur. Í gær var gengið á Helgafell, í morgun á Vífilsfell og í fyrramálið verður gengið á Trölladyngju. Síðan eru það Úlfarsfell á fimmtudagsmorgun og að lokum Esjuganga á föstudag. Öllum morgunhönum sem treysta sér í fremur létta göngu er heimil þátttaka. 24.5.2005 00:01 Tekur ekki þátt í R-listaviðræðum Dagur B. Eggertsson fulltrúi óháðra í borgarstjórn Reykjavíkur á ekki aðild að viðræðum R-listaflokkanna um áframhaldandi samstarf þeirra í borgarstjórn. Hann telur eðlilegt að flokkarnir ljúki viðræðum sín á milli um framhaldið og segist ekki hafa áhyggjur af því að ekki verði hugað að stuðningi óflokksbundinna við listann. 24.5.2005 00:01 Færri smitaðir en óttast var Heilbrigðisyfirvöld í Östfold í Noregi telja nú að færri séu smitaðir af hermannaveiki en óttast var í gær, en þá var talið að fjöldi veikra og látinna myndi hugsanlega tvöfaldast. Alls hafa 33 af þeim rúmlega hundrað, sem leitað hafa til Östfold-sjúkrahússins vegna gruns um smit, greinst með veikina og hafa fimm þeirra látist. Hins vegar hafa aðeins tveir leitað til sjúkrahússins með einhver einkenni frá því snemma í morgun og það bendir til þess færri séu smitaðir en talið var áður. 24.5.2005 00:01 Segja al-Zarqawi sáran Hópur á vegum al-Qaida samtakanna í Írak greindi frá því í dag að Abu Musab al-Zarqawi, leiðtogi samtakanna í landinu, væri særður. Í yfirlýsingu frá hópnum sem birt var á heimsíðu íslamskra öfgamanna kemur þetta fram en þar eru múslímar hvattir til að biðja fyrir leiðtoganum. Ekki hefur fengist staðfest hvort yfirlýsingin er ófölsuð. 24.5.2005 00:01 Vildi borga vínflösku með kveri Rúmlega þrítugur maður var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa í janúar pantað sér vínflösku sem kostaði 5.300 krónur á veitingastaðnum Kaffi Reykjavík án þess að geta greitt fyrir hana. Maðurinn taldi sig hafa samið við þjóninn um að greiða fyrir vínið með ljóðakveri en við það vildi þjónninn ekki kannast. 24.5.2005 00:01 Mænusóttarfaraldur í Jemen Mænusóttarfaraldur geisar nú í Jemen og hafa 108 börn þegar lamast af hennar völdum, samkvæmt upplýsingum fréttastofu <em>Reuters</em>. 14 tilfelli hafa einnig greinst í Indónesíu. Bólusetningarherferð er að fara af stað en sjúkdómsins hefur ekki orðið vart í þessum löndum í meira en áratug. Veiran leggst á heila og mænu, einkum hjá börnum undir fimm ára aldri, og getur lamað þau á nokkrum klukkustundum og jafnvel dregið þau til dauða. 24.5.2005 00:01 Verðsamanburður ómarktækur "Innlendar kannanir hafa sýnt að verð á fatnaði og skóm hefur að mestu staðið í stað eða lækkað undanfarin ár og því kemur þessi niðurstaða á óvart," segir Jón Þór Sturluson, forstöðumaður Rannsóknarseturs verslunarinnar að Viðskiptaháskólanum við Bifröst. 24.5.2005 00:01 Sharon vill sleppa fleiri föngum Ariel Sharon, forsætisráðherrra Ísraels, greindi frá því í dag að hann hygðist leggja það til við ríkisstjórn sína að sleppa 400 palestínskum föngum í frekari viðleitni til þess að koma friði fyrir botni Miðjarðarhafs. Sharon er nú staddur í Washington og á fundi með bandarískum stuðningsmönnum Ísraels í dag lýsti hann því enn fremur yfir að traustið milli Ísraela og Palestínumanna myndi aukast ef fyrirhugaður brottflutningur gyðinga úr landnemabyggðum á Gasaströndinni myndi heppnast vel. 24.5.2005 00:01 Rýma byggðir vegna eldgoss Stjórnvöld í Kólumbíu gáfu út fyrirmæli um það í dag að um níu þúsund íbúar í hlíðum eldfjallsins Galeras skyldu fluttir á brott þar sem vísindamenn búast við að fjallið fari að gjósa. Nokkur skjálftavirkni hefur verið á svæðinu og telja vísindamenn að gos geti hafist innan nokkurra daga eða vikna. 24.5.2005 00:01 Dæmd fyrir skjalafals 24.5.2005 00:01 Afstaða VG skiptir engu máli Ég geri ráð fyrir því að sjálfstæðismenn muni vilja vera með í meirihluta í stjórninni um mál af þessu tagi því það þætti nýmælisvert ef þeir leggðust gegn stóriðju og ekki síst þar sem um er að ræða mikið hagsmunamál fyrir Reykjanesbæ, segir Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur. 24.5.2005 00:01 Hátt í 100 á spítala vegna veiki Þeir nálgast hundraðið, sem lagðir hafa verið inn á sjúkrahús í Noregi vegna gruns um hermannaveiki. Veikin sem blossaði upp í Fredrikstad er alvarlegasta tilfelli hennar á Norðurlöndum í mörg ár. 24.5.2005 00:01 Stakk þrjá menn á lestarstöð Maður vopnaður hnífi gekk berserksgang á neðanjarðarlestarstöð í Stokkhólmi í gærkvöld og stakk þrjá menn. Einn þeirra er illa særður. Vitni segja að þær fimmtán mínútur sem liðu áður en lögregla náði að handsama manninn hafi verið líkastar martröð. Ekki er ár liðið síðan sami maður stakk fólk á annarri lestarstöð í borginni. 24.5.2005 00:01 Leigumóðir seldi barn á Netinu Belgísk leigumóðir seldi þriðja aðila barnið á Netinu án vitundar blóðforeldranna. Þá hafði hún reynt að koma barninu í verð hjá enn öðru pari. 24.5.2005 00:01 Fjórir eða fimm kærðir vegna slyss Fjórir eða fimm menn hafa verið ákærðir af ríkissaksóknara vegna banaslyss sem varð við Kárahnjúkastíflu í mars á síðasta ári. Mennirnir eru starfsmenn Impregilo, Arnarfells og VIJV sem sér um eftirlit með svæðinu sem slysið varð á. 24.5.2005 00:01 Ormagöngin óhentug Breskir og bandarískir vísindamenn hafa komist að þeirri niðurstöðu að svonefnd ormagöng séu ekki hentug til tímaferðalaga. 24.5.2005 00:01 Kalam kemur í heimsókn Dr. A.P.J. Abdul Kalam, forseti Indlands, kemur í opinbera heimsókn til Íslands í boði forseta Íslands á sunnudaginn kemur og mun dvelja hér til 1. júní. 24.5.2005 00:01 Tölvuþrjótar gerast æ kræfari Tölvuþrjótar hafa fundið enn eina aðferðina til að gera tölvunotendum lífið leitt. Til viðbótar við vírus- og ormasendingar eru þeir farnir að ástunda að læsa skjölum í tölvum fólks og heimta lausnargjald fyrir að opna þau aftur. 24.5.2005 00:01 Al-Zarqawi sagður særður Á vefsíðu sem al-Kaída í Írak hefur notað til að birta yfirlýsingar sínar birtust í gær fregnir um að Jórdaninn Abu Musab al-Zarqawi, leiðtogi þeirra, hefði særst í árás. 24.5.2005 00:01 Barnaklámhringur upprættur Ítalska lögreglan handtók í gær 186 menn sem grunaðir eru um að tilheyra barnaklámhring. Í hópnum eru þrír kaþólskir prestar. 24.5.2005 00:01 Vígvæðingin heldur áfram Herskáir hópar norður-írskra lýðveldissinna ráða enn í sínar raðir menn sem þeir síðan þjálfa í vopnaburði og meðferð sprengiefna. 24.5.2005 00:01 Rauði krossinn safnar erlendu fé Þeir sem eiga afgangsklínk og seðla frá útlöndum í krukkum geta nú komið því frá sér og stutt hjálparstarf í leiðinni. Næstu daga safna Sparisjóðurinn og Íslandspóstur erlendri mynt og seðlum fyrir Rauða krossinn. Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra og Selma Björnsdóttir söngkona sýndu gott fordæmi þegar söfnunin var kynnt í dag og færðu Rauða krossinum afgangsmynt frá Kína og Úkraínu. Söfnunarumslögum verður dreift í hús á næstu dögum. 24.5.2005 00:01 Sprengt við stúlknaskóla Ofbeldið í Írak hélt áfram í gær sem aldrei fyrr. Sex Írakar dóu í sprengingu fyrir utan barnaskóla í Bagdad í gær og sjö bandarískir hermenn biðu bana í árásum í eða við höfuðborgina. 24.5.2005 00:01 800 þúsund börn týnast árlega Tvö óhugnanleg sakamál þar sem börn eru fórnarlömbin hafa vakið mikla athygli í Bandaríkjunum og víðar að undanförnu. Slíkir harmleikir eru þó því miður ekki einsdæmi. 24.5.2005 00:01 Töldu sig hafna yfir lög Hæstiréttur Pitcairn-eyju hefur hafnað beiðni sex manna á Pitcairn-eyju í Kyrrahafi um að máli þeirra verði vísað frá. 24.5.2005 00:01 Ráðist gegn ópíumbændum Eftir að hafa sætt ámæli fyrir að draga lappirnar í baráttunni við ópíumræktendur hafa afgönsk yfirvöld blásið til stórsóknar síðustu daga. 24.5.2005 00:01 Reyndu að bera klæði á vopnin Leiðtogar rétttrúnaðarkirkjunnar settust í gær á rökstóla í Istanbúl, hinni fornu höfuðborg aust-rómverska keisaradæmisins, og reyndu að leysa þann djúpstæða ágreining sem ríkir í orþódoxu kirkjunni í Ísrael. 24.5.2005 00:01 Hugsanlega engin niðursveifla Niðursveiflan sem spáð hafði verið í efnahagslífinu kemur alls ekki eða seinkar að minnsta kosti um nokkur ár. Þetta telur fjármálaráðherra að gæti gerst í ljósi mikils áhuga á frekari stóriðjuframkvæmdum. 24.5.2005 00:01 Selma og Sigríður Anna gáfu klink Selma Björnsdóttir söngkona og Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra gáfu í gær Rauða krossi Íslands afgangsklink og seðla frá ferðum sínum til Úkraínu og Kína. 24.5.2005 00:01 Borgin fær engan frest Áfrýjunarnefnd samkeppnismála felldi úr gildi frest sem samkeppnisráð hafði veitt Reykjavíkurborg til að skipta upp starfsemi Upplýsingamiðstöðvar ferðamála og bjóða hluta af starfseminni út. Að öðru leyti staðfesti áfrýjunarnefndin úrskurð samkeppnisráðs. 24.5.2005 00:01 Sendiherrar mótmæla hvalveiðum Sendiherrar Bretlands, Frakklands og Þýskalands sendu utanríkisráðuneytinu yfirlýsingu í gær þar sem þeir lýsa andstöðu sinni við tillögur Hafrannsóknarstofnunar um veiðar á 39 hrefnum í vísindaskyni á þessu ári. 24.5.2005 00:01 Bjallað eftir bununni Nú vinna starfsmenn Reykjavíkurborgar að því hörðum höndum að koma fyrir nýjum gosbrunni í tjörninni. Þessi nýji gosbrunnur er þýsk gæðasmíði að sögn Arnar Sigurðssonar staðgengils sviðsstjóra umhverfissviðs. 24.5.2005 00:01 Flutt á sjúkrahús eftir bílveltu Tvær konur og tvö börn sluppu vel þegar bifreið sem þau voru farþegar í valt við Sólheimaveg um klukkan þrjú í gær. Önnur konan var send til aðhlynningar á sjúkrahúsinu á Selfossi en aðrir sluppu ómeiddir. 24.5.2005 00:01 Slapp ótrúlega vel í ljótu slysi Maðurinn sem slapp ótrúlega vel eftir að vörubíll hans valt á Þjórsárdalsvegi á sunnudag hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi. Þetta er í annað skiptið á ævinni sem hann sleppur svona vel frá alvarlegu slysi. 24.5.2005 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
Hækka niðurgreiðslur með börnum Gunnar Einarsson hefur tekið við starfi bæjarstjóra í Garðabæ. Ásdís Halla Bragadóttir, fráfarandi bæjarstjóri og forstjóri BYKO, afhenti Gunnari lyklana við hátíðlega athöfn á bæjarstjórnarskrifstofunum klukkan ellefu í morgun. Fyrsta verk nýs bæjarstjóra var að tilkynna nýja samþykkt bæjarráðs sem felur í sér mikla hækkun niðurgreiðslna með börnum hjá dagforeldrum og á einkareknum leikskólum. 24.5.2005 00:01
Unnið að leiðréttingum á umfjöllun Bláa lónið er meðal ofmetnustu ferðamannastaða heims, segir blaðamaður breska stórblaðsins <em>Sunday Times</em> eftir heimsókn í lónið. Honum fannst það skítugt, alltof troðið af fólki og óaðlaðandi á allan hátt. Framkvæmdastjóri lónsins er mjög ósáttur við umfjöllunina og segir unnið að leiðréttingum. 24.5.2005 00:01
Handtóku mannréttindafrömuð Stjórnvöld í Úsbekistan hafa handtekið mannréttindafrömuð sem greindi fréttamönnum frá því þegar úsbekskar hersveitir skutu á og drápu mótmælendur í borginni Andijan um miðjan mánuðinn. Frá þessu greina mannréttindasamtökin Huma Rights Watch og krefjast þess að manninum verði sleppt tafarlaust. Samtökin segja að yfirvöld í Úsbekistan reyni með þessu hindra að umheimurinn fái nákvæmar lýsingar á því sem gerðist 13. maí í Andijan. 24.5.2005 00:01
Auka framlög til þróunarmála Aðildarríki Evrópusambandsins samþykktu í dag að auka framlög sín til þróunarmála til þess að styðja við baráttu Sameinuðu þjóðanna gegn fátækt í heiminum. Fimmtán eldri aðildarþjóðirnar stefna að því að verja að minnsta kosti 0,51 prósenti af þjóðartekjum til hjálparstarfs árið 2010 og 0,7 prósentum af tekjunum fimm árum síðar, en Danir, Svíar, Hollendingar og Lúxemborgara hafa þegar náð þessum markmiðum. 24.5.2005 00:01
Hafa áhyggjur af hrefnuveiðum Sendiherrar Bretlands, Frakklands og Þýskalands sendu í dag frá sér yfirlýsingu um hvalveiðar Íslendinga til utanríkisráðuneytisins. Segir þar að sendiherrarnir lýsi yfir áhyggjum sínum vegna tillögu Hafrannsóknarstofnunar til ríkisstjórnar Íslands um veiðar á 39 hrefnum á þessu ári í vísindaskyni. 24.5.2005 00:01
Varar við ofnhitnun í efnahagslífi Efnahags- og framfarastofnun Evrópu, OECD, segir efnahagslífið á Íslandi vera að ofhitna. Ríkið verði að draga úr útgjöldum og vextir að hækka til að koma í veg fyrir að verðbólgan fari úr böndunum. Annars sé hætta á kreppuástandi þegar gengi krónunnar fer að lækka og dregur úr áhrifum stóriðjuframkvæmda. 24.5.2005 00:01
Sjö hermenn falla í Írak Sjö bandarískir hermenn féllu í Írak í dag í tveimur sprengjuárásum. Í fyrri árásinni létust þrír hermenn á eftirlitsferð í miðborg Bagdad þegar bílsprengja sprakk nærri ökutæki þeirra. Skömmu síðar var greint frá því að fjórir hermenn hefðu látist í árás í bænum Haswa suður af höfuðborginni. 24.5.2005 00:01
Sæðisþóknun verði ekki skattskyld Rekstaraðilar sæðisbankans Cryos í Árhúsum í Danmörku hafa skorað á Kristian Jensen, fjármálaráðherra, að afturkalla kröfu danskra skattayfirvalda um að sæðisgjafar þurfi að greiða skatt af þóknuninni sem þeir fá fyrir framlag sitt. Bankastjórarnir óttast að þetta verði til þess að mun færri sæðisgjafar fáist, ekki bara vegna peninganna heldur ekki síður vegna þess að margir vilja gefa nafnlaust og það er ekki hægt ef skattayfirvöld þurfa að fá allar upplýsingar um gjafana. 24.5.2005 00:01
Ræddi bara við suma umsækjenda Ættleiðingarnefnd ræðir við suma umsækjendur í málum sem koma fyrir nefndina, aðra ekki. Hún er ekki í samvinnu við viðkomandi barnaverndarnefnd, að sögn Margrétar Hauksdóttur formanns ættleiðingarnefndar. </font /></b /> 24.5.2005 00:01
Vill skima alifugla og vatnafugla Embætti yfirdýralæknis hefur sótt um fjárveitingu til stjórnvalda til að láta fara fram svokallaða skimun á alifuglum og vatnafuglum hér á landi. 24.5.2005 00:01
Segir samfélagið framleiða öryrkja Góð menntun, há laun, glæsilegt útlit og lífsgæði. Þetta eru kröfur samfélagsins í dag. Þeir sem ekki standa undir þeim lenda utan garðs og enda sem öryrkjar. Úrræði skortir og yfiriðjuþjálfi á geðsviði Landspítalans segir starfsfólkið vera að gefast upp. </font /></b /> 24.5.2005 00:01
Morgunganga á vegum FÍ alla vikuna Ferðafélag Íslands stendur þessa vikuna fyrir morgungöngum alla daga vikunnar. Gengið er alla morgna klukkan 6 á fjöll í nágrenni Reykjavíkur. Í gær var gengið á Helgafell, í morgun á Vífilsfell og í fyrramálið verður gengið á Trölladyngju. Síðan eru það Úlfarsfell á fimmtudagsmorgun og að lokum Esjuganga á föstudag. Öllum morgunhönum sem treysta sér í fremur létta göngu er heimil þátttaka. 24.5.2005 00:01
Tekur ekki þátt í R-listaviðræðum Dagur B. Eggertsson fulltrúi óháðra í borgarstjórn Reykjavíkur á ekki aðild að viðræðum R-listaflokkanna um áframhaldandi samstarf þeirra í borgarstjórn. Hann telur eðlilegt að flokkarnir ljúki viðræðum sín á milli um framhaldið og segist ekki hafa áhyggjur af því að ekki verði hugað að stuðningi óflokksbundinna við listann. 24.5.2005 00:01
Færri smitaðir en óttast var Heilbrigðisyfirvöld í Östfold í Noregi telja nú að færri séu smitaðir af hermannaveiki en óttast var í gær, en þá var talið að fjöldi veikra og látinna myndi hugsanlega tvöfaldast. Alls hafa 33 af þeim rúmlega hundrað, sem leitað hafa til Östfold-sjúkrahússins vegna gruns um smit, greinst með veikina og hafa fimm þeirra látist. Hins vegar hafa aðeins tveir leitað til sjúkrahússins með einhver einkenni frá því snemma í morgun og það bendir til þess færri séu smitaðir en talið var áður. 24.5.2005 00:01
Segja al-Zarqawi sáran Hópur á vegum al-Qaida samtakanna í Írak greindi frá því í dag að Abu Musab al-Zarqawi, leiðtogi samtakanna í landinu, væri særður. Í yfirlýsingu frá hópnum sem birt var á heimsíðu íslamskra öfgamanna kemur þetta fram en þar eru múslímar hvattir til að biðja fyrir leiðtoganum. Ekki hefur fengist staðfest hvort yfirlýsingin er ófölsuð. 24.5.2005 00:01
Vildi borga vínflösku með kveri Rúmlega þrítugur maður var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa í janúar pantað sér vínflösku sem kostaði 5.300 krónur á veitingastaðnum Kaffi Reykjavík án þess að geta greitt fyrir hana. Maðurinn taldi sig hafa samið við þjóninn um að greiða fyrir vínið með ljóðakveri en við það vildi þjónninn ekki kannast. 24.5.2005 00:01
Mænusóttarfaraldur í Jemen Mænusóttarfaraldur geisar nú í Jemen og hafa 108 börn þegar lamast af hennar völdum, samkvæmt upplýsingum fréttastofu <em>Reuters</em>. 14 tilfelli hafa einnig greinst í Indónesíu. Bólusetningarherferð er að fara af stað en sjúkdómsins hefur ekki orðið vart í þessum löndum í meira en áratug. Veiran leggst á heila og mænu, einkum hjá börnum undir fimm ára aldri, og getur lamað þau á nokkrum klukkustundum og jafnvel dregið þau til dauða. 24.5.2005 00:01
Verðsamanburður ómarktækur "Innlendar kannanir hafa sýnt að verð á fatnaði og skóm hefur að mestu staðið í stað eða lækkað undanfarin ár og því kemur þessi niðurstaða á óvart," segir Jón Þór Sturluson, forstöðumaður Rannsóknarseturs verslunarinnar að Viðskiptaháskólanum við Bifröst. 24.5.2005 00:01
Sharon vill sleppa fleiri föngum Ariel Sharon, forsætisráðherrra Ísraels, greindi frá því í dag að hann hygðist leggja það til við ríkisstjórn sína að sleppa 400 palestínskum föngum í frekari viðleitni til þess að koma friði fyrir botni Miðjarðarhafs. Sharon er nú staddur í Washington og á fundi með bandarískum stuðningsmönnum Ísraels í dag lýsti hann því enn fremur yfir að traustið milli Ísraela og Palestínumanna myndi aukast ef fyrirhugaður brottflutningur gyðinga úr landnemabyggðum á Gasaströndinni myndi heppnast vel. 24.5.2005 00:01
Rýma byggðir vegna eldgoss Stjórnvöld í Kólumbíu gáfu út fyrirmæli um það í dag að um níu þúsund íbúar í hlíðum eldfjallsins Galeras skyldu fluttir á brott þar sem vísindamenn búast við að fjallið fari að gjósa. Nokkur skjálftavirkni hefur verið á svæðinu og telja vísindamenn að gos geti hafist innan nokkurra daga eða vikna. 24.5.2005 00:01
Afstaða VG skiptir engu máli Ég geri ráð fyrir því að sjálfstæðismenn muni vilja vera með í meirihluta í stjórninni um mál af þessu tagi því það þætti nýmælisvert ef þeir leggðust gegn stóriðju og ekki síst þar sem um er að ræða mikið hagsmunamál fyrir Reykjanesbæ, segir Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur. 24.5.2005 00:01
Hátt í 100 á spítala vegna veiki Þeir nálgast hundraðið, sem lagðir hafa verið inn á sjúkrahús í Noregi vegna gruns um hermannaveiki. Veikin sem blossaði upp í Fredrikstad er alvarlegasta tilfelli hennar á Norðurlöndum í mörg ár. 24.5.2005 00:01
Stakk þrjá menn á lestarstöð Maður vopnaður hnífi gekk berserksgang á neðanjarðarlestarstöð í Stokkhólmi í gærkvöld og stakk þrjá menn. Einn þeirra er illa særður. Vitni segja að þær fimmtán mínútur sem liðu áður en lögregla náði að handsama manninn hafi verið líkastar martröð. Ekki er ár liðið síðan sami maður stakk fólk á annarri lestarstöð í borginni. 24.5.2005 00:01
Leigumóðir seldi barn á Netinu Belgísk leigumóðir seldi þriðja aðila barnið á Netinu án vitundar blóðforeldranna. Þá hafði hún reynt að koma barninu í verð hjá enn öðru pari. 24.5.2005 00:01
Fjórir eða fimm kærðir vegna slyss Fjórir eða fimm menn hafa verið ákærðir af ríkissaksóknara vegna banaslyss sem varð við Kárahnjúkastíflu í mars á síðasta ári. Mennirnir eru starfsmenn Impregilo, Arnarfells og VIJV sem sér um eftirlit með svæðinu sem slysið varð á. 24.5.2005 00:01
Ormagöngin óhentug Breskir og bandarískir vísindamenn hafa komist að þeirri niðurstöðu að svonefnd ormagöng séu ekki hentug til tímaferðalaga. 24.5.2005 00:01
Kalam kemur í heimsókn Dr. A.P.J. Abdul Kalam, forseti Indlands, kemur í opinbera heimsókn til Íslands í boði forseta Íslands á sunnudaginn kemur og mun dvelja hér til 1. júní. 24.5.2005 00:01
Tölvuþrjótar gerast æ kræfari Tölvuþrjótar hafa fundið enn eina aðferðina til að gera tölvunotendum lífið leitt. Til viðbótar við vírus- og ormasendingar eru þeir farnir að ástunda að læsa skjölum í tölvum fólks og heimta lausnargjald fyrir að opna þau aftur. 24.5.2005 00:01
Al-Zarqawi sagður særður Á vefsíðu sem al-Kaída í Írak hefur notað til að birta yfirlýsingar sínar birtust í gær fregnir um að Jórdaninn Abu Musab al-Zarqawi, leiðtogi þeirra, hefði særst í árás. 24.5.2005 00:01
Barnaklámhringur upprættur Ítalska lögreglan handtók í gær 186 menn sem grunaðir eru um að tilheyra barnaklámhring. Í hópnum eru þrír kaþólskir prestar. 24.5.2005 00:01
Vígvæðingin heldur áfram Herskáir hópar norður-írskra lýðveldissinna ráða enn í sínar raðir menn sem þeir síðan þjálfa í vopnaburði og meðferð sprengiefna. 24.5.2005 00:01
Rauði krossinn safnar erlendu fé Þeir sem eiga afgangsklínk og seðla frá útlöndum í krukkum geta nú komið því frá sér og stutt hjálparstarf í leiðinni. Næstu daga safna Sparisjóðurinn og Íslandspóstur erlendri mynt og seðlum fyrir Rauða krossinn. Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra og Selma Björnsdóttir söngkona sýndu gott fordæmi þegar söfnunin var kynnt í dag og færðu Rauða krossinum afgangsmynt frá Kína og Úkraínu. Söfnunarumslögum verður dreift í hús á næstu dögum. 24.5.2005 00:01
Sprengt við stúlknaskóla Ofbeldið í Írak hélt áfram í gær sem aldrei fyrr. Sex Írakar dóu í sprengingu fyrir utan barnaskóla í Bagdad í gær og sjö bandarískir hermenn biðu bana í árásum í eða við höfuðborgina. 24.5.2005 00:01
800 þúsund börn týnast árlega Tvö óhugnanleg sakamál þar sem börn eru fórnarlömbin hafa vakið mikla athygli í Bandaríkjunum og víðar að undanförnu. Slíkir harmleikir eru þó því miður ekki einsdæmi. 24.5.2005 00:01
Töldu sig hafna yfir lög Hæstiréttur Pitcairn-eyju hefur hafnað beiðni sex manna á Pitcairn-eyju í Kyrrahafi um að máli þeirra verði vísað frá. 24.5.2005 00:01
Ráðist gegn ópíumbændum Eftir að hafa sætt ámæli fyrir að draga lappirnar í baráttunni við ópíumræktendur hafa afgönsk yfirvöld blásið til stórsóknar síðustu daga. 24.5.2005 00:01
Reyndu að bera klæði á vopnin Leiðtogar rétttrúnaðarkirkjunnar settust í gær á rökstóla í Istanbúl, hinni fornu höfuðborg aust-rómverska keisaradæmisins, og reyndu að leysa þann djúpstæða ágreining sem ríkir í orþódoxu kirkjunni í Ísrael. 24.5.2005 00:01
Hugsanlega engin niðursveifla Niðursveiflan sem spáð hafði verið í efnahagslífinu kemur alls ekki eða seinkar að minnsta kosti um nokkur ár. Þetta telur fjármálaráðherra að gæti gerst í ljósi mikils áhuga á frekari stóriðjuframkvæmdum. 24.5.2005 00:01
Selma og Sigríður Anna gáfu klink Selma Björnsdóttir söngkona og Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra gáfu í gær Rauða krossi Íslands afgangsklink og seðla frá ferðum sínum til Úkraínu og Kína. 24.5.2005 00:01
Borgin fær engan frest Áfrýjunarnefnd samkeppnismála felldi úr gildi frest sem samkeppnisráð hafði veitt Reykjavíkurborg til að skipta upp starfsemi Upplýsingamiðstöðvar ferðamála og bjóða hluta af starfseminni út. Að öðru leyti staðfesti áfrýjunarnefndin úrskurð samkeppnisráðs. 24.5.2005 00:01
Sendiherrar mótmæla hvalveiðum Sendiherrar Bretlands, Frakklands og Þýskalands sendu utanríkisráðuneytinu yfirlýsingu í gær þar sem þeir lýsa andstöðu sinni við tillögur Hafrannsóknarstofnunar um veiðar á 39 hrefnum í vísindaskyni á þessu ári. 24.5.2005 00:01
Bjallað eftir bununni Nú vinna starfsmenn Reykjavíkurborgar að því hörðum höndum að koma fyrir nýjum gosbrunni í tjörninni. Þessi nýji gosbrunnur er þýsk gæðasmíði að sögn Arnar Sigurðssonar staðgengils sviðsstjóra umhverfissviðs. 24.5.2005 00:01
Flutt á sjúkrahús eftir bílveltu Tvær konur og tvö börn sluppu vel þegar bifreið sem þau voru farþegar í valt við Sólheimaveg um klukkan þrjú í gær. Önnur konan var send til aðhlynningar á sjúkrahúsinu á Selfossi en aðrir sluppu ómeiddir. 24.5.2005 00:01
Slapp ótrúlega vel í ljótu slysi Maðurinn sem slapp ótrúlega vel eftir að vörubíll hans valt á Þjórsárdalsvegi á sunnudag hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi. Þetta er í annað skiptið á ævinni sem hann sleppur svona vel frá alvarlegu slysi. 24.5.2005 00:01