Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Haraldur hættir hjá HB Granda Sturlaugur Sturlaugsson frá HB á Akranesi, sem verið hefur forstjóri HB Granda, lætur af því starfi. Kristján Þ. Davíðsson, sem verið hefur aðstoðarframkvæmdastjóri, mun sömuleiðis láta af störfum. Eggert Benedikt Guðmundsson, sem verið hefur markaðsstjóri HB Granda, verður forstjóri í stað Sturlaugs. 8.2.2005 00:01
Fjögur lík fundin Lík fjögurra sjómanna af flutningaskipinu Jökulfelli sem sökk á leið til Íslands í gærkvöldi fundust á ellefta tímanum í morgun og er nú leitað þeirra tveggja sem enn er saknað. Líkin voru tekin um borð í færeyska varðskipið Tjaldinn. 8.2.2005 00:01
Afsögn páfa hugsanleg Afsögn páfa er hugsanleg. Æðsti embættismaður Páfagarðs léði í gærkvöldi máls á því og olli með því töluverðu uppnámi. 8.2.2005 00:01
Tímamótaávarp frá Rice Allir viðmælendur Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á Ítalíu veiktust og afboðuðu fundi sína með henni í morgun. Búist er við tímamótaávarpi frá henni í París síðdegis. 8.2.2005 00:01
Saka hvor annan um hræðsluáróður Spennan magnast á kjördegi í Danmörku. Tveir stærstu flokkarnir saka hvor annan um hræðsluáróður í dagblaðaauglýsingum. Stjórnin heldur velli samkvæmt nýrri skoðanakönnun en bæði Venstre og jafnaðarmenn missa þingsæti. Sighvatur Jónsson er í Danmörku. 8.2.2005 00:01
Fleiri gætu tengst málinu Lögregla útilokar ekki að fleiri menn tengist umfangsmiklu amfetamínssmygli hingað til lands. Tveir menn eru í haldi lögreglu vegna smygls á fjórum kílóum af amfetamíni. Annar þeirra smyglaði efninu til landsins en lögreglan náði hinum á hlaupum í Vesturbæ Reykjavíkur tveimur dögum síðar. 8.2.2005 00:01
Mannræningjarnir í sigtinu? Svo virðist sem sænska lögreglan sé á hælunum á ræningjunum sem rændu forstjóra verslunarkeðjunnar SiBa fyrir þremur vikum. Dómstóll í Gautaborg gaf í morgun út alþjóðlega handtökuskipun á hendur manni sem hún telur að dvelji utan Svíþjóðar. 8.2.2005 00:01
Friðaryfirlýsingar væntanlegar Sitthvor friðaryfirlýsingin er væntanleg í dag frá leiðtogum Palestínumanna og Ísraels en þeir hittust í morgun á friðarfundi í Egyptalandi. Samkvæmt því sem Raanan Gissin, talsmaður Ísraelsstjórnar, greindi frá í morgun munu Palestínumenn byrja á því að lýsa því yfir að ofbeldisverkum gegn Ísraelum verði hætt. 8.2.2005 00:01
Ítalska blaðakonan aflífuð? Hópur herskárra uppreisnarmanna í Írak segist hafa tekið ítölsku blaðakonuna, Giuliana Sgrena, af lífi. Hópurinn sendi tilkynningu frá sér í dag. Giuliönu var rænt á föstudag af öðrum hópi en nú segist hafa líflátið hana. 8.2.2005 00:01
Ráðinn til Vestnorræna ráðsins Þórður Þórarinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins frá og með 15. febrúar nk. Forsætisnefnd ráðsins samþykkti þetta á fundi sínum í Kaupmannahöfn á dögunum. 8.2.2005 00:01
Meirihlutinn sá sami Nýjustu skoðanakannanir Gallups benda til þess að þingmeirihluti hægri stjórnar Anders Fogh Rassmussens verði nákvæmlega sá sami eftir kosningar og hann er í dag, eða 98 sæti gegn 77 sætum stjórnarandstöðunnar. Engu að síður benda kannanir til þess að stærstu flokkar beggja blokka tapi fylgi en að minni flokkarnir bæti við sig. 8.2.2005 00:01
Ferðaskrifstofa Íslands sýknuð Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði Ferðaskrifstofu Íslands í morgun af tæplega sex milljóna króna skaðabótakröfu stúlku sem slasaðist í sumarfríi með fjölskyldu sinni í Portúgal fyrir fimm árum, en ferðin var farin á vegum ferðaskrifstofunnar. Stúlkan var þá 13 ára gömul og skarst hún í andliti þegar hún rakst á stiga í sundlaug við hótelið sem hún dvaldi á. 8.2.2005 00:01
Stúdentaráðskosningar í dag Stúdentar við Háskóla Íslands kjósa sér fulltrúa í Stúdentaráð og til Háskólafundar í dag og á morgun. Fjórir listar eru í framboði; hinar gamalgrónu hreyfingar Röskva og Vaka auk Háskólalistans og Alþýðulistans. 8.2.2005 00:01
Líknarskrá léttir á aðstandendum Tilkoma líknarskrár sem er að líta dagsins ljós hjá Landlæknisembættinu mun létta á aðstandendum, bæði hvað varðar umræður um ákvarðanatöku við læknismeðferð og eins varðandi líffæragjafir. Einstaklingur getur alltaf endurmetið ákvarðanir í líknarskrá sinni. </font /></b /> 8.2.2005 00:01
Fleira ræður en aldur fanga Það er ekki í öllum tilvikum heppilegt að vista unga fanga saman á sérdeild, segir Erlendur S. Baldursson hjá Fangelsismálastofnun. Hann bendir á að sumir afpláni vegna umferðalagabrota en aðrir fyrir gróf ofbeldisbrot. </font /></b /> 8.2.2005 00:01
Vill kanna þunglyndi eldri borgara Þunglyndi eldri borgara hér á landi hefur ekki verið sérstaklega rannsakað og engin stofnun innan heilbrigðisgeirans fæst á skipulagðan hátt við það, að sögn Ágústs Ólafs Ágústssonar alþingismanns. 8.2.2005 00:01
Ríflega 7.400 börn nota gleraugu Starfshópur sem hefur það hlutverk að meta þörfina á þátttöku ríkisins í gleraugnakostnaði barna og ungmenna yngri en 18 ára hefur verið settur á laggirnar. Reikna má með að ríflega 7.400 börn hér á landi noti gleraugu. 8.2.2005 00:01
Unglingsstúlkur fá lífstíðardóm Tvær unglingsstúlkur, 18 og 19 ára, voru í dag dæmdar í ævilangt fangelsi í Englandi fyrir að hafa sparkað og barið og stungið drukkinn miðaldra mann til bana. Þær staðhæfðu í vörn sinni að maðurinn hefði nálgast aðra stúlkuna í teiti sem hann hélt að heimili sínu, nuddað annan fót hennar og leitað eftir kynmökum við hana. 8.2.2005 00:01
Rafmagnslaust á höfuðborgarsvæðinu Rafmagnslaust er víða í Fossvogshverfi, hluta Hlíðahverfis og hluta Kópavogs. Talið er að háspennustrengur í Fossvogi hafi rofnað. Unnið er að viðgerð. 8.2.2005 00:01
Tíu sækja um hjá RÚV Tíu sækja um starf fréttastjóra Ríkisútvarpsins en umsóknarfrestur rann út í gær. Átta af umsækjendunum eru starfsmenn útvarpsins. 8.2.2005 00:01
Vopnahlé í Miðausturlöndum Leiðtogar Ísraels og Palestínu lýstu yfir vopnahléi eftir fund þeirra í Egyptalandi í dag en þjóðirnar hafa átt í blóðugri styrjöld síðastliðin fjögur ár. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, sagði að nú væri von á betri framtíð í Miðausturlöndum í fyrsta sinn í langan tíma og Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, tók í sama streng. 8.2.2005 00:01
Dollý-klónarar snúa sér að mönnum Vísindamennirnir sem klónuðu ána Dollý á sínum tíma hafa fengið leyfi til að klóna fósturvísa úr konum í því skyni að rannsaka sjúkdóma sem tengjast hreyfitaugakerfi mannsins. 8.2.2005 00:01
Rafmagn komið á Rafmagn er aftur komið á í Suðurhlíðum, Skógarhlíð, Eskihlíð og í Auðbrekku og Skólatröð í Kópavogi en rafmagnslaust varð þar um klukkan fjögur í dag þegar háspennustrengur við bensínstöð í Fossvogi var grafinn í sundur. Viðgerð tók skamma stund eða um 20 mínútur. 8.2.2005 00:01
Hermenn sviptir orðum Ellefu bandarískir landgönguliðar hafa verið sviptir heiðursmerkjum sem þeir fengu eftir að þeir særðust í Írak. Þegar kom í ljós að hermennirnir höfðu særst í slysum en ekki bardögum voru þeir sviptir orðum sem þeir fengu að því er bandaríska dagblaðið Washington Post segir. 8.2.2005 00:01
Ný friðarvon vaknar Leiðtogar Ísraels og Palestínu stigu skref í átt til friðar þegar þeir lýstu í gær yfir vopnahléi eftir meira en fjögurra ára átök. Mikið verk er þó enn óunnið og verða margvísleg mál sem tengjast friðarferlinu rædd á næstu vikum og mánuðum. 8.2.2005 00:01
Verkamannaflokkurinn í sókn Breski Verkamannaflokkurinn ynni öruggan sigur á andstæðingum sínum ef bresku þingkosningarnar færu fram í dag samkvæmt nýrri skoðanakönnun Populus fyrir breska dagblaðið The Times. 8.2.2005 00:01
Handtökubeiðni vegna mannráns Sænska lögreglan hefur fyrirskipað handtöku manns sem grunaður er um að eiga þátt í ráninu á sænska forstjóranum Fabian Bengtsson. Maðurinn er lagður á flótta og farinn frá Svíþjóð. 8.2.2005 00:01
Horfum til framtíðar Það er tími til kominn að snúa sér frá ágreiningsefnum fortíðarinnar og horfa til framtíðar, sagði Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í ávarpi hennar við stjórnmálaakademíu Parísar. Hún vísaði þar til ágreiningsins um innrásina í Írak. 8.2.2005 00:01
Vígamenn breyta aðferðum sínum Aðferðir vígamanna virðast hafa breyst eftir því sem öryggisgæsla hefur verið efld til að koma í veg fyrir bílsprengjuárásir. Undanfarna daga hefur verið mikið um sjálfsmorðsárásir gangandi vígamanna sem hafa hlaðið sig sprengiefnum. 27 manns hið minnsta létu lífið í nokkrum árásum í Írak í gær. 8.2.2005 00:01
Jökulfell: Leit hætt í dag Leit hefur verið hætt að sinni að skipverjunum tveimur, sem enn er saknað af flutningaskipinu Jökulfelli sem sökk í gærkvöldi, vegna slæms veðurs. Leitin mun hefjast aftur í fyrramálið. 8.2.2005 00:01
Ekki vilja allir heyra íslensku Njáll Eiðsson hefur lengi verið viðloðandi knattspyrnuna en hann er jafnframt grunnskólakennari og er því annt um ungviðið. Hann er þó ekki þeirrar skoðunar að íslenskri tungu sé sérstök hætta búin þótt fótboltalýsingar séu á ensku. 8.2.2005 00:01
Bætt fyrir skort á stærðahagkvæmni Sex sveitarfélög fá ekkert úthlutað úr útgjaldajöfnunarframlagi Jöfnunarsjóðs, þar sem meðaltekjur íbúa eru of háar. Kópavogur fær ekkert þar sem íbúar eru of margir. Miðað er við tekjur íbúa og stærðarhagkvæmni. 8.2.2005 00:01
Eið Smára á ensku eða íslensku? Þorri þingflokks sjálfstæðismanna hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um breytingu á útvarpslögum svo útvarpa megi íþróttaviðburðum án þess að lýsing á íslensku fylgi með. Forstöðumaður Íslenskrar málstöðvar er málinu hlynntur en formaður Íslenskrar málnefndar ekki. 8.2.2005 00:01
Osprey Marine kaupir Sléttbak Kanadíska útgerðarfyrirtækið Osprey Marine, sem er í eigu hjónanna Ron og Hetty Mann, hefur gert tilboð í togarann Sléttbak frá Akureyri. 8.2.2005 00:01
Tannburstun grennandi? Þeir sem eiga sér þá ósk heitasta að grennast en nenna hvorki að breyta um mataræði eða fara í líkamsrækt geta glaðst yfir nýjum rannsóknum sem gerðar voru á 14 þúsund manns í Japan. Þær benda nefnilega til þess að þeir sem bursti tennurnar eftir hverja máltíð séu grennri en annað fólk. 8.2.2005 00:01
Bærinn skiptir sér ekki af Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, segir að bærinn fái forkaupsrétt ef aflaheimildir fylgi skipi, annars sé ekki um það að ræða. 8.2.2005 00:01
Tveggja enn saknað Fjórir skipverjar á flutningaskipinu Jökulfelli fórust þegar skipið sökk skammt frá Færeyjum í nótt. Fimm var bjargað. Tveggja er enn saknað en leit hefur verið hætt vegna veðurs. 8.2.2005 00:01
Tímasetning samgönguráðherra góð Sú ákvörðun Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra að bjóða út þann kafla Reykjanesbrautar frá Vogum að Njarðvík í einu lagi nú í vor hlýtur lof bæði hjá Suðurnesjamönnum en eins hjá forsvarsmönnum verktakafyrirtækja sem hyggjast margir bjóða í verkið. 8.2.2005 00:01
Stjórnin með rúmlega 50% Nú á sjöunda tímanum voru birtar fyrstu útgönguspár í dönsku þingkosningunum. Samkvæmt spá systurstöðvar Stöðvar 2, TV2 í Danmörku, hljóta stjórnarflokkarnir ríflega fimmtíu prósent atkvæða og jafnaðarmenn tapa töluverðu fylgi, eins og búist var við. 8.2.2005 00:01
Milljónum Máka átti að skila Milljónunum 35 sem veitt var til að ljúka barraeldi Máka á Sauðárkróki áttu að bjarga verðmætunum, segir Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Fénu hafi átt að skila. 8.2.2005 00:01
Netöryggisdagurinn í þrátíu löndum Alþjóðlegi-netöryggisdagurinn var haldinn hátíðlegur í þrjátíu löndum í gær. Í Hlíðaskóla í Reykjavík tók Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra við kennsluefni fyrir grunnskólabörn um örugga og ábyrga netnotkun. 8.2.2005 00:01
Fljótust í kringum jörðina Hetja sneri heim til Bretlandseyja í dag þegar Ellen MacArthur kom til hafnar eftir 71 dags ferð umhverfis jörðina á tuttugu og þriggja metra löngum báti. Hún sló heimsmetið í siglingum af þessu tagi og var um sólarhring fljótari en sá sem síðast reyndi við metið. 8.2.2005 00:01
Tveggja enn saknað af Jökulfelli Fjórir hafa fundist látnir og tveggja manna er enn saknað eftir að fraktskipinu Jökulfelli hvolfdi skammt frá Færeyjum í fyrrakvöld. Leit var hætt klukkan hálf fjögur í gær vegna vonsku veðurs og myrkurs. Fimm skipverjanna var bjargað um borð í þyrlu sem tilheyrir danska eftirlitsskipinu Vædderen. Fimmmenningunum heilsaðist vel og gátu þeir gengið frá þyrlunni hjálparlaust. 8.2.2005 00:01
Rafmagnslaust í Garðabæ Háspennubilun hefur orðið með þeim afleiðingum að heilu hverfin í Garðabæ eru rafmagnslaus. Þessa gætir norðan lækjar í Móum og Flötum og eins er rafmagnslaust í íþróttamiðstöðinni Ásgarði. Leit að biluninni er hafin. 8.2.2005 00:01
Nýtt varðskip á næsta ári Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir björtustu vonir standa til þess að nýtt varðskip verði sjósett eftir eitt til eitt og hálft ár. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur falið Landhelgisgæslunni að kanna möguleika á nýjum skipa- og flugvélakosti miðað við þarfir Gæslunnar. 8.2.2005 00:01