Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Áhyggjur af lokun Sorpu Umhverfisráð Reykjavíkur samþykkti í gær einróma bókun þar sem lýst er yfir áhyggjum vegna lokunar endurvinnslustöðvar Sorpu við Bæjarflöt í Grafarvogi. Um síðustu áramót var endurvinnslustöðinni lokað í sparnaðarskyni. 8.2.2005 00:01
Skarst í andliti og missti tennur Ferðaskrifstofa Íslands hefur verið sýknuð af sex milljóna króna skaðabótakröfu tæplegrar tvítugrar konu sem slasaðist í sumarfríi í Portúgal fyrir sex árum. Hún var þréttan ára þegar slysið varð. 8.2.2005 00:01
Tvöföldun Reykjanesbrautar fagnað Suðurnesjamenn fögnuðu yfirlýsingu samgönguráðherra á borgarafundi í Stapa í gærkvöld um að annar áfangi tvöföldunar Reykjanesbrautar yrði boðinn út í einu lagi í vor. Ekki er ólíklegt að þeim áfanga ljúki fyrir árslok næsta árs. 8.2.2005 00:01
Harkan sex var kjörorðið Harkan sex var kjörorðið, síðasta dag kosningabaráttunnar í Danmörku. Flokkarnir birtu heilsíðuauglýsingar í dagblöðum þar sem hræðsluáróðri var beitt á óákveðna kjósendur. Kjörstöðum verður lokað klukkan sjö að íslenskum tíma en samkvæmt fyrstu útgönguspám heldur stjórnin velli. 8.2.2005 00:01
Þrír íslenskir hermenn í Írak Ekki færri en þrír Íslendingar gegna nú hermennsku í Írak og sá fjórði er á leiðinni þangað. Átján ára piltur úr Vogum á Vatnsleysuströnd varð fyrir þeirri lífsreynslu á dögunum að eldflaug lenti við svefnskála hans en til allrar mildi sprakk hún ekki. 8.2.2005 00:01
Styrkir uppsetningu á Toscu Landsbanki Íslands styrkir uppsetningu Íslensku óperunnar á Toscu eftir Puccini. Samstarfssamningur þess efnis var kynntur síðdegis í dag. Verkið verður frumsýnt 11. febrúar. 8.2.2005 00:01
6% stjórnarmanna konur Konur skipa aðeins sjötta hvert sæti í stjórnum íslenskra lífeyrissjóða. Hlutfallið er enn lægra þegar kemur að stjórnum fyrirtækja í Kauphöll Íslands, en innan við sex prósent stjórnarmanna eru konur. 8.2.2005 00:01
Evrópa vinur Bandaríkjanna „Það er tímabært að binda enda á deilur fortíðar,“ sagði Condoleeza Rice í París í dag og kvað engan vafa lengur leika á því í Bandaríkjastjórn að Evrópa væri vinur en ekki andstæðingur. 8.2.2005 00:01
Bæta öryggi barna á Netinu Ísland er í hópi þrjátíu landa sem ætla að gera átak til að bæta öryggi barna á Netinu. Alþjóðlegi netöryggisdagurinn er í dag. 8.2.2005 00:01
Ástarsorg getur verið lífshættuleg Ástarsorg getur verið lífsh<font size="2"></font>ættuleg að mati erlendra sérfræðinga. Sorg, sem Íslendingar hafa þekkt til svo öldum skiptir. 8.2.2005 00:01
Blair sama sinnis og Bush um Íran Íran styður hryðjuverkasamtök og stjórnvöld þar í landi verða að átta sig á því að það verður ekki liðið ef þau muni reyna að hindra friðarferlið í Mið-Austurlöndum. Þetta segir Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands. 8.2.2005 00:01
Stjórnin hélt velli Ríkisstjórn Anders Fogh Rasmussen hélt velli í þingkosningunum í Danmörku í gær. Fylgi Venstre, flokks Rasmussens, dalaði reyndar dálítið og missti hann fjögur þingsæti frá því í kosningunum 2001 og fékk 52 menn kjörna. 8.2.2005 00:01
Bögglaði fólksbíl undir sig Minnstu munaði að verr færi þegar skólabíll rann í fljúgandi hálku niður Eskihvamminn í Kópavogi í morgun, hafnaði á fólksbíl á mótum Fífuhvammsvegar og bögglaði fólksbílinn nánast undir sig. 7.2.2005 00:01
36 létust, flestir lögreglumenn Að minnsta kosti þrjátíu og sex manns biðu bana suður af Bagdad, höfuðborg Íraks, í gærkvöldi þegar uppreisnarmenn gerðu árás á lögreglustöð. Að sögn Al-Jazeera fréttastofunnar sem greinir frá atburðinum voru tuttugu og tveir hinna látnu írakskir hermenn og lögreglumenn en fjórtán uppreisnarmenn létust einnig í árásinni. 7.2.2005 00:01
60% nefndu Ingibjörgu Sólrúnu Sextíu prósent þeirra sem svöruðu í skoðanakönnun Frjálsar verslunar nefndu Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur þegar spurt var hvern viðkomandi vildi sjá sem formann Samfylkingarinnar. Fjörutíu prósent nefndu Össur Skarphéðinsson. 7.2.2005 00:01
Gíslataka í Sviss Maður sem ekki er vitað deili á ruddist inn í spænskum ræðismannsskrifstofuna í Bern í Sviss í morgun og heldur þar einni eða tveimur manneskjum í gíslingu. Hann barði niður dyravörð áður en hann ruddist inn en dyravörðurinn er ekki alvarlega slasaður. Svissneska lögreglan hefur girt af svæði umhverfis ræðismannsskrifstofuna en þar eru sendiráð all margra ríkja. 7.2.2005 00:01
Fok í Grafarvogi Lögreglan í Reykjavík kallaði út björgunarsveitarmenn laust fyrir miðnætti til að hefta járnplötur sem voru að fjúka af þaki nýbyggingar í Grafarvogi. Verkið gekk vel og fljótlega upp úr miðnætti fór að lægja á ný, mun fyrr en búist var við. 7.2.2005 00:01
18 létust vegna gaseitrunar Átján manns fundust látnir á gistiheimili á austurhluta Spánar í gær. Gasleki kom upp á gistiheimilinu aðfararnótt sunnudags og er talið að hann hafi orðið fólkinu að aldurtila. Svo virðist sem gashitari sem kveikt var á hafi annað hvort lekið eða verið gallaður og gefið frá sér eitraðar gastegundir. 7.2.2005 00:01
Strandborgir færðar inn í land Ákveðið hefur verið að færa strandborgir á Indónesíu lengra inn á land til þess að koma í veg fyrir að harmleikurinn frá öðrum degi jóla endurtaki sig. Yfirmenn skipulagsmála á Indónesíu segja að komið verði upp hlutlausum svæðum á milli sjávar og byggðar til þess að koma í veg fyrir hugsanleg áhrif flóðbylgna. 7.2.2005 00:01
Kjartan Gunnarsson sæti eignarnámi Gunnar Eydal borgarlögmaður telur fullreynt að ná samningum við Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, um kaup 4 hektara spildu á Norðlingaholti og vill að borgin taki landið eignarnámi. Lokatilboð borgarlögmanns var 50 milljónir króna en Kjartan vill 133 milljónir. Kjartan segir sér mismunað og að borgin beiti hann afli. 7.2.2005 00:01
Níu stjórnendur sögðu upp Níu stjórnendur í fyrirtækinu P. Samúelssyni sem rekur Toyota-umboðið hér á landi sögðu í gær upp störfum sínum vegna óánægju yfir því að eigendur fyrirtækisins ákváðu að láta Emil Grímsson framkvæmdastjóra fara. Toyota-umboðið hefur verið eitt umsvifamesta bílaumboðið hér á landi um árabil og var síðsta ár besta rekstrarár þess frá upphafi. 7.2.2005 00:01
Hershöfðingi Saddams handtekinn Öryggissveitir í Írak hafa handsamað fyrrverandi hershöfðingja úr her Saddams Husseins sem sakaður er um að hafa fjármagnað starfsemi hryðjuverkamanna undanfarið. Hershöfðinginn var tekinn fastur í lok desember en ekki var tilkynnt um handtökuna fyrr en í gær. 7.2.2005 00:01
Reyna að halda í hermenn Bandaríkjamenn hafa gripið til margvíslegra aðgerða til þess að sporna við hugsanlegri manneklu í herliði sínu í kjölfar stríðsins í Írak. Stór hluti herliðsins í Írak hefur þegar lokið herskyldu sinni og hefur verið gripið til þess ráðs að bjóða hermönnum þúsund dollara skattfrjálsan kaupauka fyrir að framlengja veruna í Írak. 7.2.2005 00:01
Reykingabann á Kúbu Eitt af höfuðvígjum reykingamanna er nú fallið. Frá og með deginum í dag er bannað að reykja á ýmsum opinberum stöðum á Kúbu auk þess sem lagt hefur verið blátt bann við sígarettusjálfsölum og sölu tóbaks til ungmenna. 7.2.2005 00:01
Farþegum Express fjölgaði um 19% Farþegum Iceland Express fjölgaði um 19% í janúar síðastliðnum frá sama mánuði í fyrra. Alls flugu um þrettán þúsund farþegar með félaginu í síðasta mánuði. Að mestu eru það erlendir ferðamenn sem standa undir fjölgun farþega Iceland Express í janúarmánuði, einkum þó frá London Stansted. 7.2.2005 00:01
Sjúkrahúsdvöl páfa lengist Jóhannes Páll páfi II mun dveljast á sjúkrahúsi lengur en gert var ráð fyrir í upphafi að því er talsmaður Vatíkansins tilkynnti í morgun. Dvöl páfa verður framlengd um nokkra daga en upphaflega var sagt að hann þyrfti aðeins að vera undir eftirliti lækna í vikutíma. 7.2.2005 00:01
Gámar fuku fyrir austan Mildi þykir að enginn skyldi vera á ferðinni í stefnu tveggja gáma sem flugu í loftköstum allt að kílómeters leið í vindhviðum á Norðfirði í morgun. Hvor gámur er tuttugu feta langur og lenti annar á gamalli dráttarvél sem verið er að gera upp og braut hana í frumeinidir, eins og lögreglumaður orðaði það. 7.2.2005 00:01
Gíslatökumaðurinn gafst upp Maður, sem ekki var vitað deili á og ruddist inn í spænsku ræðismannsskrifstofuna í Bern í Sviss í morgun þar sem hann tók starfsmenn í gíslingu, hefur gefist upp. Hann barði niður dyravörð áður en hann hélt inn í húsið en dyravörðurinn er ekki alvarlega slasaður. 7.2.2005 00:01
5 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt karlmann á þrítugsaldri í fimm mánaða fangelsi fyrir líkamsárás og brot á vopnalögum. Hann gekk berserksgang í samkvæmi í heimahúsi á Ísafirði í ágúst árið 2003, sló þar mann þannig að talsvert sá á honum og neitaði að leggja frá sér hættulegan hníf þegar lögregla skipaði honum að gera það. 7.2.2005 00:01
Ágreiningur ekki orsökin P. Samúelsson ehf., sem rekur Toyota-umboðið hér á landi, hafnar því sem segir í tilkynningu frá nokkrum starfsmönnum að „djúpstæður ágreiningur innan fjölskyldu og meirihlutaeigenda P. Samúelssonar ehf.“ hafi leitt til þess að fyrrum forstjóri hafi þurft að láta af störfum. 7.2.2005 00:01
Aðgerðir harðna í Írak Aðgerðir uppreisnarmanna í Írak eru að harðna og árásum að fjölga á nýjan leik eftir þingkosningarnar í landinu. Tuttugu og fimm hið minnsta hafa beðið bana í árásum í morgun og á fjórða tug í gærkvöldi. Á sama tíma blasir mannekla við í Bandaríkjaher. 7.2.2005 00:01
Tugþúsundum bolla sporðrennt í dag Búast má við að einhverjir tugir þúsunda af bollum renni ofan í landsmenn í dag. Bakarar landsins hafa staðið sveittir við ofna sína frá því fyrir helgi við að baka bollur, enda tóku margir forskot á sæluna og sporðrenndu nokkrum slíkum. 7.2.2005 00:01
Kippur kominn í kosningabaráttuna Fjörkippur er loksins hlaupinn í kosningabaráttuna í Danmörku en þar verður kosið til þings á morgun. Skoðanakannanir benda til þess að það dragi saman með stjórn og stjórnarandstöðu. Sighvatur Jónsson fylgist með kosningabaráttunni í Danmörku. 7.2.2005 00:01
Vilja semja við Írani Varnarmálaráðherra Ísraels sagði í dag að hann væri sammála Condoleezu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um að fara eigi samningaleiðina til að fá Íran til þess að hætta við kjarnorkuáætlun sína en ekki að beita hervaldi. 7.2.2005 00:01
Taka við eftir 18 mánuði Innanríkisráðherrann í bráðabirgðastjórn Íraks sagði í dag að hann telji að Írakar verði færir um að sjá um eigin öryggismál eftir eitt og hálft ár. Fala Al-Nakíb lét þessi orð falla á öryggisráðsternu sem nú stendur yfir í Sádi-Arabíu. 7.2.2005 00:01
Ruglingslegar fréttir af gíslatöku Þrír menn sem réðust inn á ræðismannsskrifstofu Spánar í Bern í Sviss og tóku þar gísla virðast hafa sloppið úr umsátri svissnesku lögreglunnar. Fréttir af þessari innrás hafa verið vægast sagt ruglingslegar. 7.2.2005 00:01
Ormar og humrar finna ekki til Norskir vísindamenn hafa komist að þeirri niðurstöðu að maðkar finni ekki til sársauka þegar þeir eru þræddir upp á öngla og að humrar finni ekki til sársauka þegar þeir eru soðnir lifandi. Vísindamennirnir segja að þessi dýr hafi mjög ófullkomið taugakerfi og engan heila til þess að lesa skilaboð um sársauka. 7.2.2005 00:01
Tvöföldun verði lokið hið fyrsta Borgarafundur verður haldinn í Stapanum í Reykjanesbæ í kvöld þar sem þess verður krafist að lokið verði við breikkun Reykjanesbrautar hið fyrsta. Fyrri áfanga við tvöföldun vegarins lauk í júlí síðastliðnum og síðari hlutinn er ekki á vegaáætlun fyrr en árið 2010. 7.2.2005 00:01
Þúsundir hvöttu Abbas Þúsundir Palestínumanna fóru út á götur Gaza-borgar í dag til þess að hvetja Mahmoud Abbas forseta til þess að tengja friðarviðræður við Ísraela frelsun palestínskra fanga. Um 8000 Palestínumenn eru í ísraelskum fangelsum. 7.2.2005 00:01
Sanna að það sé ekki neyðarástand Bresk mannréttindasamtök hafa leitað til mannréttindadómstóls Sameinuðu þjóðanna til þess að sanna að ekkert neyðarástand vegna hættu á hryðjuverkum ríki í Bretlandi. Bretar lýstu einir Evrópuþjóða yfir neyðarástandi eftir hryðjuverkaárásina á Bandaríkin árið 2001. 7.2.2005 00:01
Bráðaviðvörunarkerfi opnað Umhverfisráðherra mun á föstudaginn opna fyrir aðgengi almennings að bráðaviðvörunarkerfi Veðurstofunnar um jarðvá. Með bráðaviðvörun er átt við alhliða viðvörun og upplýsingar sem komið er á framfæri frá þeim tíma sem vart verður við að hamfarir séu að hefjast eða líkur eru á að þær séu yfirvofandi. 7.2.2005 00:01
Sýrlendingar bregðast illa við Sýrlendingar hafa brugðist illa við samþykkt Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um að þeir kalli hersveitir sínar heim frá nágrannaríkinu Líbanon. Fjórtán þúsund sýrlenskir hermenn eru í Líbanon og eru margir íbúar landsins ósáttir við dvöl þeirra sem þeir segja jafngilda hernámi. 7.2.2005 00:01
Páfi ákveður sjálfur afsögn Utanríkisráðherra Páfagarðs sagði í dag að aðeins Jóhannes Páll páfi sjálfur geti tekið ákvörðun um það hvort hann láti af embætti vegna heilsubrests. Páfar eru kjörnir til lífstíðar. 7.2.2005 00:01
Lækkuð í tign vegna leðjuslags Bandarísk herlögreglukona í Írak hefur verið lækkuð í tign eftir að hún tók þátt í leðjuslag í fangabúðum þar í landi. Hún þótti sýna ósæmilega hegðun og of mikið af líkama sínum. Engir írakskir fangar urðu vitni að leðjuslagnum. 7.2.2005 00:01
Taka Aðalstræti 10 í sína vörslu Reykjavíkurborg og Minjavernd hf. hafa gert með sér samning um að félagið taki húsið Aðalstræti 10 í vörslu til 35 ára. Markmið samningsins er að húsið verði endurbyggt á þann hátt sem því hæfir sem einu elsta húsi í Reykjavík. Þar með verður endurgerð húsa við Aðalstræti lokið. 7.2.2005 00:01