Fleiri fréttir

Júsjenko spáð sigri

Samkvæmt útgönguspám hafði leiðtogi stjórnarandstöðu Úkraínu, Viktor Júsjenko, 15% fleiri atkvæði í annarri umferð forsetakosninga þar í landi en andstæðingur hans, Viktor Janúkovitsj forsætisráðherra.

Sonurinn uppi í tré

Sænsk fjölskylda var nýkomin í jólafrí á Phuket-eyju á Taílandi þegar flóðbylgja gekk þar yfir. "Sjórinn fór og kom síðan aftur á gífurlegum hraða og tók allt með sér," sagði faðirinn Kjell Skold.

Áfengisbann í Ástralíu

Yfirvöld í Ástralíu hafa brugðið á það ráð að banna alla áfengisnotkun yfir jólin á Bondi-ströndinni í Sydney, í fyrsta sinn í sögunni.

Geimfarar með síðbúna jólamáltíð

Tveir geimfarar frá Rússlandi og Bandaríkjunum snæddu síðbúna jólamáltíð í alþjóðlegu geimstöðinni í gær eftir að ómannað geimskip lagði þar við bryggju.

Sjö stungnir í barnaafmæli

Sjö manns voru stungnir í slagsmálum sem brutust út í afmælisveislu tveggja ára gamallar stúlku í Ohio í Bandaríkjunum.

Herferð gegn reykingum

Ný og óvægin auglýsingaherferð gegn reykingum er farin af stað í Bretlandi. Vonast stjórnvöld til að þúsundir manna muni í kjölfarið hætta að reykja á næsta ári.

Tvö börn fórust og eignatjón mikið

Að minnsta kosti tvö börn fórust í öflugum jarðskjálfta upp á 7,4 á Richter í Bangladess í gær. Að sögn björgunarsveita og veðurfræðinga komu fram sprungur í jörð og flóðbylgjur mynduðust.

Fullur og illa klæddur

Allar björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út rétt upp úr klukkan átta á aðfangadagskvöld til að leita að fertugum manni sem fór frá heimili sínu í Vogahverfinu um kvöldmatarleytið.

Brúðkaupi frestað

Brúðkaupi sem fara átti fram á Akureyri klukkan hálf tvö á jóladag var frestað til klukkan fimm og svo aftur til klukkan sjö en þá var loks orðið fært innanbæjar.

Víða messufall

Messufall er víða á Norðurlandi, vegna ófærðar. Útvarpsmessa í Akureyrarkirkju féll niður í morgun og engin messa verður heldur á Húsavík. Þá fellur messa á Eskifirði einnig niður.

Vonskuveður fyrir norðan

Vonskuveður á Norðurlandi setti strik í reikninginn hjá mörgum. Fólk komst hvorki lönd né strönd og björgunarsveitarmenn hafa verið við störf í alla nótt og morgun. Á Akureyri gekk vel framan af kvöldi, en um klukkan hálf þrjú um nóttina barst lögreglu tilkynning um að togari í slipp væri við það að losna frá bryggju.

Minnst 8 fórust

Að minnsta kosti átta menn fórust og á annan tug særðist þegar eldsneytisbíll sprakk við sendiráð Jórdaníu í Bagdad í gærkvöldi. Allt bendir til þess að um sjálfsmorðsárás hafi verið að ræða. Bílnum hafði verið ekið að sendiráðsbyggingunni, en íbúðarhverfi eru skammt frá og gjöreyðilögðust mörg hús við sprenginguna.

Hamas-samtökin sigra

Hamas-samtök harðlínumúslíma unni mikinn sigur í borgar- og bæjarstjórnarkosningum á sjálfsstjórnarsvæðum Palestínumanna sem fram fóru í gær. Allt bendir einnig til þess að Fatah-hreyfing Jassirs heitins Arafats hafi tapað töluverðu fylgi. Litið var á kosningarnar sem einskonar æfingu fyrir forsetakosningarnar sem fram eiga að fara í janúar.

Björgunarsveitarmenn sendir út

Óttast var að ölvaður maður, sem rauk út af heimili sínu í gærkvöld, illa klæddur, yrði úti. Nærri hundrað björgunarsveitarmenn leituðu mannsins í gærkvöldi.

Nóg að gera hjá lögreglu

Lögreglan í Reykjavík hafði í nógu að snúast í gærkvöld og í nótt, vegna innbrotsþjófa, ölvunaraksturs og kertabrunar. Eldur kviknaði á tveimur heimilum í borginni vegna útikerta í gærkvöld. Annar bruninn varð í fjölbýlishúsi við Háaleitisbraut um klukkan sex og þurfti að flytja þrjá á slysadeild vegna brunasára og gruns um reykeitrun.

Breytingar standast ekki

Stjórnlagadómstóll Úkraínu komst að því í morgun að breytingar sem gerðar voru nýlega á kosningalögum landsins, brytu í bága við stjórnarskrána. Önnur umferð forsetakosninganna í Úkraínu verður endurtekin á morgun.

Verst veður fyrir austan

Undir morgun var veðrið einna verst á austanverðu landinu, en í vindhviðum fór vindhraðinn allt upp í þrjátíu metra á sekúndu. Á Vopnafirði var til að mynda ekkert skyggni og mjög þungfært. Aflýsa þurfti messum og hefur fólk að mestu haldið sig innan dyra. Lögreglan á Vopnafirði segir þó verðið farið að ganga niður.

Færri hjá Hjálpræðishernum

Heldur færri leituðu á náðir Hjálpræðishersins í gærkvöldi en oftast áður, að sögn Miriam Óskarsdóttur hjá Hjálpræðishernum. Hún segir að á milli 100 og 120 manns hafi komið í gær, sem sé færra en verið hefur, enda hafi fjöldinn farið yfir 200 þegar mest hafi látið.

Jólahald í uppnámi vegna veðurs

Vonskuveður á Norður- og Austurlandi hefur sett jólahald í uppnám á mörgum heimilum. Fólk komst hvorki lönd né strönd, og björgunarsveitarmenn hafa verið við störf í alla nótt og í dag. Frá Svalbarðseyri, austur að Lóni eru allir vegir ófærir.

Mikilvægasta sagan af jesúbarni

Uppspretta dýrmætustu auðæfanna er að finna í sögunni af jesúbarninu, en ekki jólasveinunum. Það eru skilaboð biskups til þjóðarinnar þessi jól. Í jólamessu í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í gærkvöld minnti biskup á mikilvægi þess að börnum væri sögð sagan af Jesú, sögu sem enn er aflvaki göfgi, góðvildar, réttlætis, sannleika og friðar.

Eins árs á þunglyndislyfjum

Börn hér á landi, allt niður í árs gömul, eru á þunglyndislyfjum, aðallega vegna þroskafrávika og hegðunarerfiðleika. Yfirlæknir á barna- og unglingageðdeild Landspítalans segir að börn á forskólaaldri stríði við þunglyndi.

Hefur áhyggjur af Afríku

Jóhannes Páll páfi annar hvatti til friðar í heiminum í jólaávarpi sínu á Péturstorgi í Róm í dag. Hann sagðist hafa þungar áhyggjur af ástandinu í Afríku og í Miðausturlöndum.

Á þriðja tug hafa fallið

Á þriðja tug liggur í valnum eftir röð hryðjuverkaárása í Írak undanfarinn sólarhring. Níu fórust í sjálfsmorðsárás á sendiráð Jórdaníu í Bagdad í gærkvöldi, þar af sjö manna fjölskylda sem bjó í næsta húsi. Uppreisnarmenn vörpuðu sprengjum á hersveitir í Mósúl og læknaprófessor var myrtur í Bagdad.

Óvissa í Úkraínu

Óvissa ríkir í Úkraínu vegna forsetakosninganna sem verða endurteknar í landinu á morgun. Stjórnlagadómstóll Úkraínu úrskurðaði í dag að breytingar sem gerðar voru nýlega á kosningalögunum, brytu gegn stjórnarskrá landsins.

Umfangsmestu aðgerðir í Súdan

Hjálparstarf alþjóða Rauða krossins í Súdan er lang-umfangsmesta aðgerð samtakanna. Íslendingar hafa tekið virkan þátt í starfinu og hafa fjórir Íslendingar verið sendir þangað á árinu. Stefnt er að því að senda fleiri utan á næsta ári.

Ríkið keypti dótturfélag Yukos

Dótturfélag Yukos er nú komið í hendur ríkisfyrirtækisins Gazprom. Þessir málavextir komu ekki á óvart þótt rússnesk yfirvöld hefðu gefið í skyn að þau hyggðust ekki eignast fyrirtækið.

Foreldrar fá engar bætur

Hæstiréttur sýknaði ríkið af skaðabótakröfu foreldra fjölfatlaðs drengs í gær. Foreldrarnir fóru fram á 25 milljónir króna í bætur þar sem þau álitu að lélegt mæðraeftirlit og fæðingarhjálp hefðu leitt til þess að drengurinn skaðaðist.

Hermenn í Írak heyja sálarstríð

Sálarþrek bandarískra hermanna í Írak fer dvínandi. Árásin á herstöðina í Mosul var sjálfsmorðsárás. Hermönnum finnst þeir hvergi vera öruggir. Verktakar í uppbyggingarstarfi gefast upp. </font /></b />

Í hjartastað fær veglegan styrk

Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík afhenti söfnuninni Í hjartastað og Minningarsjóði Þorbjörns Árnasonar styrk að upphæð 400.000 krónur í vikunni.

Íbúar Falluja snúa aftur heim

Íbúar í Falluja eru farnir að snúa aftur til borgarinnar eftir að hafa yfirgefið hana skömmu fyrir innrás bandaríska hersins í nóvember.

Prinsessan velunnari geðsjúkra

María krónprinsessa Danmerkur hefur samþykkt að verða velunnari Dönsku geðhjálparsamtakanna (SIND). Samtökin vinna að því að auka skilning almennings á geðsjúkdómum og umburðarlyndi gagnvart þeim sem þjást af þessum sjúkdómum.

Rumsfeld í Írak

Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandríkjanna, birtist í óvæntri heimsókn í borginni Mósúl í Írak í morgun, þremur dögum eftir eina mannskæðustu árásina á Bandaríkjaher í Írak til þessa. Komið hefur í ljós að árásarmaðurinn var klæddur herbúningi írakska hersins þegar hann framdi ódæðið.

Næsti páfi ítalskur

Næsti páfi verður líklega ítalskur, að sögn belgíska kardinálans Godfried Danneels, en vangaveltur um næsta æðsta mann kaþólsku kirkjunnar verða sífellt meira áberandi um leið og heilsufarsástandi Jóhannesar Páls páfa annars hrakar sífellt. Hann er af pólskum uppruna og er orðinn 84 ára. Hann þjáist af Parkisons og getur ekki lengur gengið.

Vonskuveður fyrir norðan

Lögreglan á Akureyri sendi rétt fyrir klukkan tíu út aðvörun vegna mikillar snjókomu sem nú er í Eyjafirði og hvetur fólk til að halda sig heima við. Þar er búist við að veður versni og færð spillist enn frekar. Þegar er orðið ófært milli Akureyrar og Grenivíkur, einnig er ófært milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar.

Innanlandsflug í lagi

Innanlandsflug hefur gengið nokkuð vel í morgun, þó að á tímabili hafi litið út fyrir að akureyrarflug væri í hættu vegna veðurs. En allar vélar hafa komist í loftið og er von á síðustu vél Flugfélags Íslands aftur til Reykjavíkur um klukkan þrjú í dag.

Tættu utan af pökkunum

Þeim var ekkert heilagt, þjófunum sem brutust inn í íbúðarhús í Garðabæ í gær, því auk þess að láta greipar sópa um verðmæti í húsinu, réðust þeir á jólapakkana undir jólatrénu og tættu utan af þeim. Höfðu þeir sitthvað á brott með sér. Eins og gefur að skilja voru heimilismenn harmi slegnir, en betur fór en á horfðist.

Fjöldi í kuldanum í miðbænum

Hátt í tuttugu þúsund manns voru í miðbæ Reykjavíkur þegar mest var í gærkvöldi, þrátt fyrir talsvert frost, en veður var kyrrt þannig að kuldinn varð ekki bítandi. Lítið bar á ölvun og aðeins tveir ökumenn voru teknir grunaðir um ölvunarakstur í gærkvöldi og í nótt, þrátt fyrir gríðarlega umferð.

Saltfiskurinn kemst til skila

Minnstu mátti muna að þrálát óveður á Íslandsmiðum í oktober og nóvember hefðu áhrif á jólahald í Portúgal, Grikklandi og á Spáni, því fjöldinn allur í þessum löndum hefur saltfisk í jólamatinn og er íslenskur saltfiskur jafnan hæst skrifaður.

Hátt í 3 milljónir jólakorta

Íslandspóstur hefur dreift hátt í þremur milljónum jólakorta undanfarna daga, sem lætur nærri að séu um það bil tíu jólakort á hvert mannsbarn í landinu. Jólakortið virðist því halda velli þrátt fyrir möguleikann á að senda jólakveðju á netinu eða með símaskilaboðum.

Víða ófært vegna veðurs

Stórhríð geysar nú víða á Norður- og Norðausturlandi og er orðið ófært á þessum slóðum. Hátt í tíu manns í nokkrum bílum urðu að hafast við í stórhríð á Siglufjarðarvegi í alla nótt eftir að tvö snjóflóð féllu á veginn með stuttu millibili og ekki var hægt að snúa við vegna ófærðar.

Fer líklega ekki í bráð

Lögmaður Bobbys Fischers er vondaufur um að japönsk stjórnvöld muni leyfa skákmeistaranum að fara úr landi á næstunni. Skákmeistarinn hefur handskrifað bréf til japanskra stjórnvalda með beiðni um að fá að fara til Íslands.

Bandaríkjamenn sækja á Evrópumið

Bandarískir útvegsmenn sækja nú mjög inn í Evrópusambandið með bandarískar sjávarafurðir í beinni samkeppni við íslenskar sjávarafurðir, vegna þess hve Evran er sterk gagnvart dollarnum. Þeir juku útflutning til sambandsins um fjórðung fyrstu níu mánuði ársins og er ekkert lát á sókninni síðan.

Nóg eftir af jólatrjám

Nóg er eftir af jólatrjám hjá helstu jólatrjáasölum í höfuðborginni. Fregnir bárust í gær um að skortur væri á trjám, og að verð hefði í kjölfarið hækkað hjá einhverjum söluaðilum. Stærstu söluaðilarnir í Reykjavík sögðu þó engan skort, þó að lítið eitt minna hefði víða verið keypt inn af trjám en í fyrra.

Mikil fátækt í Mongólíu

Meðan jólin nálgast bíður hundruða heimilislausra barna í höfuðborg Mongólíu harður vetur og svelti. Þriðjungur af íbúum landsins býr við sára fátækt. Fátækt hefur aukist mjög í Mongólíu síðan valdatíma kommúnista lauk og stuðningur frá Rússlandi hætti. Heimilislausum börnum hefur fjölgað mjög, og er talið að um tíu þúsund séu heimilislausir í höfuðborginni.

Messufall vegna ófærðar

Vegna ófærðar og stórhríðar verður víða messufall á norður- og norðausturlandi. Í Hólaneskirkju falla niður messur sem áttu að vera klukkan fjögur og ellefu í kvöld. Á Svalbarðsströnd fellur einnig niður messa í dag, sem og á Raufarhöfn og Grenivík. Þá hefur bænastund í Vestmannaeyjum verið frestað til morguns vegna hvassviðris.

Sjá næstu 50 fréttir