Fleiri fréttir

Ríkið í skuld við sveitarfélögin

Ríkisvaldið er í skuld við sveitarfélögin að mati Össurar Skarphéðinssonar, formanns Samfylkingarinnar, en hvorki Árni Magnússon félagsmálaráðherra né Geir H. Haarde eru tilbúnir til að greiða hana. Hann sagði í umræðu á Alþingi í gær að fulltrúar sveitarfélaganna kvörtuðu sáran undan því að illa gangi í samningum við ríkið um breytingar á tekjuskiptingu milli þeirra og ríkisins.

Sænsk stofnunin skorar á alþingi

Raoul Wallenberg mannréttindastofnunin í Svíþjóð hefur lýst yfir áhyggjum yfir tillögu meirihluta fjárlaganefndar Alþingis um að hætta fjárveitingum til Mannréttindaskrifstofu Íslands. Hefur hún þess vegna sent Alþingi áskorun þar sem þingmenn eru hvattir til að endurskoða tillöguna.

70% vill þjóðgarð norðan jökuls

Um 70 prósent landsmanna vilja að stofnaður verði þjóðgarður norðan Vatnajökuls. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar sem Gallup gerði fyrir Nátturuverndarsamtök Íslands. Í sömu könnun kom í ljós að rúm 60 prósent styðja friðlýsingu Jökulsár á Fjöllum.

Átak gegn ölvunarakstri

Átak lögreglunnar í Reykjavík til að koma í veg fyrir ölvunarakstur fyrir jólin er hafið. Um helgina voru 560 ökumenn stöðvaðir og ástand þeirra kannað. Fjórir þeirra reyndust vera undir áhrifum áfengis og tveir reyndust án ökuréttinda.

Starfsleyfisumsókn vísað frá

Mjöll-Frigg lagði ekki fram tilskilin gögn með starfsleyfisumsókn í Kópavogi og var henni því vísað frá á fundi heilbrigðisnefndar bæjarins í gær. Fyrirtækið var áður með starfsemi við Fossháls í Reykjavík.

Hlutfallslega flest í Grímsey

Einkahlutafélögum hefur fjölgað verulega á undanförnum fjórum árum, eða úr tæplega 14 þúsund í tæplega 21 þúsund. Víða hefur þessi þróun merkjanleg áhrif á útsvarstekjur sveitarfélaganna. Ef miðað er við íbúafjölda eru einkahlutafélögin hlutfallslega flest í Grímsey. 

Herdís prófessor

Háskólastjórn Viðskiptaháskólans á Bifröst hefur skipað Dr. jur. Herdísi Þorgeirsdóttur í stöðu prófessors við lagadeild skólans að undangengnu hæfnismati dómnefndar, samkvæmt reglugerð skólans.

Afturhaldskommatittir á Alþingi

Davíð Oddsson utanríkisráðherra kallaði þingmenn Samfylkingarinnar „afturhaldskommatitti“ í umræðum á Alþingi í dag. Deilt var um ummæli þingflokksformanns Framsóknarflokksins sem kvaðst í gær reiðubúinn til að endurskoða hvort Ísland ætti að vera á lista hinna viljugu þjóða.

Nýjar kosningar eina leiðin

Leóníd Kútsma, forseti Úkraínu segir að nýjar forsetakosningar kunni að vera eina leiðin til að losa þjóðina úr þeirri spennutreyju sem hún sé í. Ólga fer hratt vaxandi með hótunum um aðskilnað og sjálfsstjórn í austurhluta landsins.

Jákvæð reynsla af reykingabanni

Frumvarp sem bannar reykingar á veitingahúsum verður lagt fram á Alþingi fyrir jól. Reynsla annarra landa af slíku reykingabanni er almennt jákvæð en þó hafa ýmsar óvæntar hliðarverkanir komið í ljós.

Ríkisvaldið neitar að borga

Ríkisvaldið stendur í skuld við sveitarfélögin en lætur eins og það sé statt í miðjum grínfarsa og neitar að borga. Þetta sagði formaður Samfylkingarinnar á Alþingi í dag í umræðum um skiptingu tekna milli ríkis og sveitarfélaga. 

120 hvalir syntu á land

Yfir eitt hundrað og tuttugu hvalir drápust þegar þeir syntu á land við strendur Ástralíu í dag og í gær. Vísindamenn vita ekki hvað olli þessari hegðun hvalanna. 

Apple kærir íslenska ríkið

Stjórnendur Apple-tölvuverslunarinnar ætla að kæra íslenska ríkið fyrir tollaflokkun á Ipod margmiðlunarlófatölvunni. Tollstjórinn hefur skilgreint tækið sem upptökutæki sem hefur þær afleiðingar að fáir kaupa það hér á landi.

Skilar ríkissjóði 340 milljónum

Alþingi samþykkti í kvöld frumvarp sem felur í sér að áfengisgjald á sterku víni og tóbaki hækkar um 7%. Áfengisgjald af léttu víni og bjór verður óbreytt. Hækkunin skilar ríkissjóði 340 milljóna króna tekjuauka.

Þeir tekjuháu fá mest

Barnmargar fjölskyldur með ung börn og háar tekjur koma best út úr skattabreytingum ríkisstjórnarinnar miðað við útreikninga sem gerðir voru fyrir Fréttablaðið. Barnlausir einstaklingar koma verst út úr þeim. </font /></b />

ESB vill að kosið verði á ný

Evrópusambandið segir að eina leiðin fyrir Úkraínu út úr því ófremdarástandi sem geysað hefur í landinu eftir forsetakosningarnar, sé að boða til nýrra kosninga. Þjóðþing landsins ógilti í gær úrslit kosninganna, en samkvæmt þeim sigraði Janúkóvits, forsætisráðherra.

Tvö banaslys

Tvö banaslys urðu undanfarinn hálfan sólarhring. Ekið var á karlmann á Eyrarvegi á Selfossi klukkan sex í morgun og með þeim afleiðingum að hann lést. Ökumaður bifreiðarinanr tilkynnti um slysið. Frekari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu. Þá beið ökumaður jeppabifreiðar bana á sjötta tímanum í gær þegar bíll hans fór fram af snjóhengju í sunnanverðu Vonarskarði og lenti á hvolfi ofan í á.

Hundruð manna fastir inni í námu

Hátt í tvö hundruð námamenn eru fastir inni í kolanámu, langt niðrí iðrum jarðar, eftir gríðarlega gassprengingu í námu í norðurhluta Kína í nótt. Óttast er að ekki takist að bjarga mönnunum. Slys eru tíð í kolanámum í Kína og hafa kínversk yfirvöld verið harðlega gagnrýnd fyrir að tryggja ekki öryggi starfsmanna.

Áratugur Íslendinganna

Breska stórblaðið The Sunday Times fjallar ítarlega um íslensku innrásina í breskt viðskiptalíf, í blaði sínu í dag. Þar segir að á áttunda áratugnum hafi arabískir kaupsýslumenn gert sig mjög gildandi í Bretlandi, næsta áratug á eftir hafi það verið japanskir og svo auðvitað bandarískir alltaf á ferðinni.

Boðað verði til nýrra kosninga

Evrópusambandið segir að boða verði til nýrra forsetakosningu í Úkraínu til að koma í veg fyrir borgarastyrjöld. Hæstiréttur landsins úrskurðar um lögmæti kosninganna á morgun.

Kosið í Rúmeníu

Rúmenar ganga í dag að kjörborðum, þar sem kosið verður til forseta í landinu. Þeir sem til þekkja segja kosningarnar þær mikilvægustu og umtöluðustu í landinu síðan árið 1989 eftir fall kommúnismans. Á næstu tveim árum munu Rúmenar klára aðildarviðræður við Evrópusambandið og stefna að inngöngu árið 2007 ásamt nágrönnum sínum Búlgaríu.

Fleiri taka þátt í heilögu stríði

Myndband hryðjuverkasamtakanna al-Qaeida fær fleiri og fleiri danska múslima til að taka þátt í svokölluðu heilögu stríði. Múslimum í Danmörku finnst umræðan í sinn garð óvæginn en forsætisráðherra landsins segir heilaga ritningu múslima ekki hafna yfir gagnrýni.

Sharon reiðubúinn til viðræðna

Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, segist reiðubúinn til viðræðna við Mahmoud Abbas, einn af leiðtogum Palestínumanna, til að reyna að ná samkomulagi um framtíð Gasa svæðisins.

7 slökkviliðsmenn létust

Sjö slökkviliðsmenn létu lífið í Sviss í gær, þegar þak á bílastæðahúsi féll ofan á þá, þar sem þeir voru við slökkvistörf. Þá er tveggja slökkviliðsmanna saknað og að sögn lögreglu er lítil von til þess að þeir finnist á lífi. Fjórir slökkviliðsmenn komust þó lífs af og eru við ágæta heilsu.

Átu ljón

Íbúar í þorpi nokkru í Zimbababve lögðu sér ljón til munns í vikunni sem leið. Ljónið hafði ráðist á skepnur í þorpinu og étið og þótti íbúum þá rétt að launa ljóninu greiðann með því að skella því á grillið. Að sögn vonuðust margir þorpsbúanna til þess að fá hugrekki og styrk ljónsins í kjölfar átunnar.

Borgarráð frestar ákvörðun

Borgarráð Reykjavíkur frestaði ákvörðun um hvenær uppbygging mannvirkja á Laugardalsvelli gæti hafist. Borgarráði barst bréf þess efnis frá borgarverkfræðing þar sem leitað var eftir samþykki til að hefja framkvæmdir nú þegar á skrifstofuhúsnæði KSÍ þar sem framkvæmdin verður alfarið á vegum KSÍ.

Enn leitað

Lögreglan leitar enn mannsins sem nam níu ára stúlku á brott í Kópavogi á miðvikudag og skildi eftir á Mosfellsheiði. Hann var á rauðum fernra dyra fólksbíl og lýsti stúlkan honum þannig að hann væri um tvítugt, sköllóttur með svört gleraugu og skegghýjung við neðri vörina.

Óttast um tvöhundruð námumenn

Óttast er um afdrif hátt í tvö hundruð námumanna, sem sitja fastir inni í kolanámu eftir gríðarlega gassprengingu í norðurhluta Kína í gærkvöldi. Um þrjú hundruð kolanámumenn voru við störf þegar sprengingin varð, en rúmlega hundrað tókst að forða sér. Mikill reykur á slysstaðnum hefur hamlað björgunarstarfi.

Mótmæli hjá starfsmönnum Jaguar

Hundruð starfsmanna sportbílaframleiðandans Jagúar mótmæltu því um helgina að framleiðslu bílanna yrði hætt í stærstu verksmiðju fyrirtækisins í Englandi.

Ekki eins gott og sýnist?

Tímamót í netsögu Íslands segja forsvarsmenn fyrirtækisins IPNets, sem bjóða nú fyrstir allra ótakmarkað niðurhal frá útlöndum. Hjá öðrum netþjónustufyrirtækjum eru menn þó fullir efasemda.

Sigurður Geirdal látinn

Sigurður Geirdal bæjarstjóri í Kópavogi er látinn 65 ára að aldri. Sigurður lést á hjartadeild Lanspítalans við Hringbraut í morgun. Hann fékk hjartaáfall aðfararnótt mánudags og gekkst undir aðgerð, en komst ekki til meðvitundar aftur. Sigurður Geirdal var bæjarstjóri í Kópavogi í rúm fjórtán ár.

Banaslys á Selfossi

Ekið var á karlmann sem lést samstundis snemma á sunnudagsmorgun á Selfossi, atvikið átti sér stað sunnarlega á Eyrarveginum.

Steyptist fram af hengiflugi

Tveir menn létust af slysförum um helgina. Ekið var á karlmann á fimmtugsaldri á Eyrarvegi á Selfossi um sexleytið í morgun og lést hann samstundis að sögn lögreglunnar að Selfossi. Slæm akstursskilyrði voru þegar slysið varð, rigning og rok og lélegt skyggni. Ökumann fólksbifreiðarinnar sakaði ekki. Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu.

Fjöldi manns lokast inni

Um 166 manns lokuðust neðanjarðar inn í námu eftir gríðarlega öfluga gas sprengingu í Kína í gær án nokkura leiða til að ná sambandi við umheiminn. Um 300 námuverkamenn voru í námunni sem er í Shaanxi héraði þegar sprengingin átti sér stað en um 127 námumenn sluppu.

Eldur á Laugavegi 22

Fyrir skömmu barst Slökkviliði Reykjavíkur tilkynning um eld sem kom upp í millivegg á veitingastaðnum 22 á Laugavegi 22. Ekki er gert ráð fyrir að um mikinn eld sé að ræða en lögregla og slökkvilið er á vettvangi.

Borgarastyrjöld vofir yfir

Borgarastyrjöld er yfirvofandi í Úkraínu eftir að héraðsstjórnir í austurhluta landsins hótuðu að skilja sig frá vesturhlutanum og krefjast sjálfsstjórnar, vegna deilunnar um forsetakosningarnar.  

Reynt að ráða Bush af dögum

Stærsti skæruliðahópur í Kólumbíu áformaði að ráða George Bush af dögum þegar hann var þar í heimsókn á mánudaginn var. Ströng öryggisgæsla er talin hafa komið í veg fyrir tilræðið.

Stuðningurinn afturkallaður?

Íslensk stjórnvöld munu hugsanlega afturkalla stuðning sinn við stríðið í Írak, að sögn formanns þingflokks Framsóknarflokksins. Aðkoma Íslands að stríðinu í Írak hefur lengi verið umdeild, og ekki allir sáttir við að landið sé á lista yfir hin svokölluðu staðföstu ríki.

Ferðamenn á ný til Afganistan

Ferðaþjónusta er aftur að lifna við í Afganistan eftir áratugalöng átök í landinu. Afganistan var vinsæll áfangastaður ferðamanna á áttunda áratug síðustu aldar, en síðastliðin ár og áratugi hefur lítið farið fyrir ferðamönnum á svæðinu vegna áratugalangra átaka.

Eldri konur frekar í óhöppum

Meiri hætta er á að eldri konur lendi í umferðaróhöppum er karlar á sama aldri. Þetta er ein af niðurstöðum nýrrar íslenskrar rannsóknar, sem bendir einnig til þess að almennt sé ekki munur á slysatíðni hjá kynjunum.

Ný Byggðastofnun?

Guðmundur Bjarnason, forstjóri Íbúðalánasjóðs, segir að ef staða Íbúðalánasjóðs versni verði til ný Byggðastofnun sem stjórnvöld þurfi að borga með. Hún þyrfti þá að niðurgreiða vexti í þeim landshlutum þar sem veðin væru lélegust. Guðmundur segir nauðsynlegt að hækka hámarkslánin eigi sjóðurinn að vera áfram til í núverandi mynd.

Framkvæmdir loks stöðvaðar

Magnús Sædal byggingarfulltrúi stöðvaði fyrst í gær framkvæmdir við nýtt hótel í gamla Eimskipafélagshúsinu. Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála felldi byggingarleyfið úr gildi fyrir rúmum hálfum mánuði og taldi það ekki eiga lagastoð. Magnús segist gera ráð fyrir að hægt verði að gefa út nýtt leyfi 8. desember og framkvæmdir geti þá hafist að nýju.

Ekki alveg ótamarkað niðurhal?

Tímamót í netsögu Íslands segja forsvarsmenn fyrirtækisins IPNets, sem bjóða nú fyrstir allra ótakmarkað niðurhal frá útlöndum. Hjá öðrum netþjónustufyrirtækjum eru menn þó fullir efasemda.

Stuðningur við stríð endurmetinn

Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, telur eðlilegt að íslensk stjórnvöld endurskoði stuðning sinn við Íraksstríðið í ljósi þess að upplýsingar um gereyðingarvopn í Írak hafi verið rangar.

Einkavæðing í Borginni

Undirbúningur að sölu Malbikunarstöðvarinnar Höfða hf. og Vélamiðstöðvarinnar ehf. í eigu borgarinnar er hafin.

Sjá næstu 50 fréttir