Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Umferðarþing vill mislæg gatnamót Umferðarþing sem fram fór um helgina skoraði á borgaryfirvöld í Reykjavík að beita sér fyrir því að sem fyrst verði ráðist í byggingu mislægra gatnamóta Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. 28.11.2004 00:01
Leita barnaræningjans enn Lögreglan í Kópavogi leitar enn mannsins sem nam níu ára stúlku á brott í Kópavogi síðdegis á miðvikudag. 28.11.2004 00:01
Hámarkshraði 80 kílómetrar Víða þyrfti að lækka hámarkshaða úr 90 kílómetrum á klukkustund upp í 80 yrðu reglur Norðmanna um leyfilegan aksturshraða á tveggja akgreina þjóðvegum teknar upp hér á landi. 28.11.2004 00:01
Gæti farið á báða vegu Kosning kennara um kjarasamning við sveitarfélögin gæti farið á báða vegu. Trúnaðarmaður kennara í grunnskóla í Mosfellsbæ segir erfitt að ráða í hug kennara en færri séu eins harðir gegn samningnum nú en fyrst. 28.11.2004 00:01
Janukovitsj verði rekinn úr starfi Stjórnarandstaðan í Úkraínu krefst þess að Viktor Janukovitsj, forsætisráðherra landsins, verði rekinn úr starfi. Mótmælendur hrópuðu "niður með Kútsjma". Hæstiréttur fjallar í dag um áfrýjun Viktors Júsjenko vegna kosningaúrslitanna. 28.11.2004 00:01
Aukið fé til heilsugæslu Virkjunar- og stóriðjuframkvæmdir á Austurlandi segja til sín í aukinni heilsugæsluþjónustu. Í aukafjárlögum fær Heilbrigðisstofnun Austurlands 25 milljóna króna fjárveitingu. 28.11.2004 00:01
Hafa samráð við Palestínumenn Ísraelsmenn munu rýma landnemabyggðir á Gaza-ströndinni í samráði við palestínsk stjórnvöld að sögn Ariels Sharon, forsætisráðherra Ísraels. 28.11.2004 00:01
Reykskynjara á hvert heimili Eldvarnaátak Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) stendur nú sem hæst en það hófst laugardaginn 20. nóvember með útgáfu forvarnablaðsins Slökkviliðsmaðurinn. Blaðinu er dreift í 70 þúsund eintökum um land allt en í því eru meðal annars ítarlegar leiðbeiningar um eldvarnir heimilanna. Þá heimsækja slökkviliðsmenn 3. bekki grunnskólanna og fræða börnin um eldvarnir. 27.11.2004 07:00
Neyðarfundur innan stundar Neyðarfundur úkraínska þingsins hefst í Kænugarði innan stundar, og verður fjallað um þá ólgu sem ríkt hefur í landinu eftir forsetakosningarnar um síðustu helgi. Fulltrúar allra stjórnmálaflokka hafa tilkynnt þátttöku sína á fundinum, nema flokkur Viktors Janúkóvits, forsætisráðherra. 27.11.2004 00:01
Barghouti hættir við Palestínski uppreisnarmaðurinn, Marwan Barghouti, sem situr í fangelsi í Ísrael, ætlar ekki að gefa kost á sér í væntanlegum forsetakosningum í Palestínu og taka við hlutverkinu af Jassirs Arafats, sem lést 11. nóvember síðastliðinn. Barghouti áformaði að bjóða sig fram gegn Mahmoud Abbas, en hætti við það og lýsti yfir stuðningi við Abbas 27.11.2004 00:01
Enn leitað Lögreglan leitar enn manns sem nam níu ára stúlku á brott á mótum Bröttubrekku og Álfhólsvegarm í Kópavogi á miðvikudag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu berst fjöldi upplýsinga til lögreglu. Eins og fram hefur komið, lýsir stúlkan manninum þannig að hann sé um tvítugt, sköllóttur, með svört plastgleraugu og skeggtopp undir efri vörinni. 27.11.2004 00:01
Erill hjá lögreglunni Töluverður erill var hjá lögreglunni í Reykjavík í nótt. Sjö ökumenn voru teknir fyrir ölvun við akstur. Einn þeirra lenti í árekstri á mótum Kringlumýrarbrautar og Sæbrautar laust fyrir klukkan tvö í nótt. Tveir voru fluttir á sjúkrahús eftir áreksturinn með minniháttar meiðsl. 27.11.2004 00:01
Hægt að fækka slysum um 80-90% Umferðarþing telur að hægt sé að fækka slysum á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar um 80 til 90 prósent með vel hönnuðum mislægum gatnamótum. Þetta kemur fram í ályktun sem þingið samþykkti. Þar er skorað á borgaryfirvöld að beita sér fyrir því að sem fyrst verði ráðist í byggingu mislægra gatnamóta á þessum setað. 27.11.2004 00:01
Reksturinn verði tryggður áfram Stjórn Íslandsdeildar Amnesty International skorar á Alþingi að tryggja áfram rekstur Mannréttindaskrifstofu Íslands. Skrifstofan fær engin bein framlög frá ríkinu á næsta ári, en getur sótt fé í sjóð ætluðum til mannréttindamála. 27.11.2004 00:01
Úrslitin verði ógilt Forseti úkraínska þingsins telur að ógilda eigi úrslit forsetakosninganna til að binda enda á þá ólgu sem ríkt hefur í landinu. Úkraínska þingið fjallar um þá ólgu sem ríkt hefur í landinu eftir forsetakosningarnar um síðustu helgi, en allir stjórnmálaflokkar, nema flokkur Viktors Janúkóvits, forsætisráðherra, sitja neyðarfundinn. 27.11.2004 00:01
Óánægja meðal nágranna Mikil óánægja er meðal nágranna bandaríska sendiráðsins í Reykjavík vegna stórra steyptra kerja sem búið er að koma upp framan við sendiráðið. Þeim er ætlað að koma í veg fyrir að hægt sé að keyra upp að húsinu. Eftir að kerin hafa verið sett upp, verður hægt að hleypa umferð á þennan hluta Laufásvegar að nýju. 27.11.2004 00:01
Rúmenar fá 50 milljarða aukastyrk Evrópusambandið hefur ákveðið að veita Rúmeníu ríflega 50 milljarða íslenskra króna í aukastyrki þegar landið gengur í Evrópusambandið árið 2007. Bróðurpartur upphæðarinnar fer í að auka öryggi við landamæri Rúmeníu. 27.11.2004 00:01
Kastaði sér fram af Empire State Miðaldra maður henti sér niður af 86. hæð Empire State byggingarinnar í New York í gær. Maðurinn klifraði yfir girðingu á útsýnispalli byggingarinnar og lét sig falla niður. Eins og nærri má geta er hann allur eftir verknaðinn. Þetta er í 31. skipti sem sjálfsmorð er framið með þessum hætti síðan Empire State byggingin var opnuð árið 1931. 27.11.2004 00:01
Tölvuleikir vinsælli en kvikmyndir Myndbönd og mynddiskar voru seld fyrir tæplega 950 milljarða íslenskra króna í Bandaríkjunum árið 2002 á meðan andvirði seldra tölvuleikja var um 1000 milljarðar króna. Þróunin er sú sama á Norðurlöndum. Á heimsvísu er velta leikjaiðnaðarins meiri en velta kvikmynda- og tónlistariðnaðarins samanlagt. 27.11.2004 00:01
Innilokaðir í brennandi húsi Sex slökkviliðsmenn eru fastir inni í bílastæðahúsi í bænum Gretzenbach í Sviss en eldur varð laus í húsinu í morgun. Slökkviliðsmennirnir urðu inniloka þegar þak hússins hrundi og að sögn talsmanns lögreglunnar í bænum eru líkurnar á því að mennirnir finnist á lífi orðnar hverfandi. 27.11.2004 00:01
Fórnarlömb ofbeldis á tískusýningu Núna klukkan þrjú koma konur með áverka eftir árásir fram á tískusýningu í Lækjargötu. Sýningin er á vegum Amnesty International á Íslandi og er liður í átaki gegn kynbundnu ofbeldi. Ýmsar þekktar konur koma fram á sýningunni, farðaðar eftir áverkalýsingum úr dómsmálum og verður lesið upp úr málunum á meðan. 27.11.2004 00:01
Dó brennivínsdauða á flóttanum Liðlega þrítugur finnskur karlmaður rændi í gær hótel í bænum Turku í vesturhluta landsins, drakk sig öfurölvi og dó síðan brennivínsdauða í leigubíl þar sem lögreglan handtók hann. Ræninginn hafði hótað starfsmanni í afgreiðslu hótelsins með vopni og heimtað fé og áfengi. 27.11.2004 00:01
Vefur Íslandsbanka fyrstur til að fá vottun fyrir aðgengi fatlaðra Vefur Íslandsbanka, <a href="http://www.isb.is/" target="_blank"><font color="#000080"><strong>www.isb.is</strong></font></a>, er fyrstur íslenskra vefja til að vera vottaður fyrir aðgengi fatlaðra af Sjá viðmótsprófunum og Öryrkjabandalagi Íslands. Við hönnun vefsins var m.a. leitast við að koma til móts við þarfir blindra og sjónskertra, sem nota sérstaka vefskoðara við tölvunotkun. 27.11.2004 00:01
Sigur fyrir stjórnarandstöðuna Stjórnarandstaðan í Úkraínu þykir hafa unnið táknrænan sigur í dag eftir að þjóðþingið ógilti forsetakosningarnar í landinu þar sem þær endurspegluðu ekki vilja kjósenda. Þingið lýsti yfir vantrausti á yfirkjörstjórn landsins. 27.11.2004 00:01
Sendinefnd ber kennsl á lík Írösk sendinefnd er komin til Bosníu til að læra, af biturri reynslu á því svæði, hvernig skuli bera kennsl á lík sem grafin hafa verið í fjöldagröfum. Tæplega þrjú hundruð fjöldagrafir hafa fundist í Írak. 27.11.2004 00:01
Vandræði í stafrænum heimi Yfir tuttugu þúsund heimili hafa nú fengið nýjan, stafrænan myndlykil frá Digital Íslandi. En svo virðist sem á býsna mörgum þessara heimila gangi brösuglega að stilla hátæknitólið og að það valdi á köflum tómum vandræðum. 27.11.2004 00:01
Slasast verr í jeppum Meiri líkur eru á að fólk slasist illa í bílslysum aki það jeppa fremur en fólksbíl. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem íslenskur sérfræðingur gerði. Hann segir breytta jeppa oft stöðugri ökutæki en óbreytta. 27.11.2004 00:01
4-6 milljarðar í einkaneyslu Bankarnir lánuðu almenningi fimmtíu og fimm milljarða króna frá því nýju húsnæðislánin komu til sögunnar í síðari hluta ágúst til loka október. Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra segir ekki hægt að neita því að bankarnir séu full glannalegir í útlánum. 27.11.2004 00:01
Nágrannar ekki sáttir Steypuklumpar standa fyrir framan sendiráð Bandaríkjanna og eiga að vera þar til varnar hryðjuverkum. Nágrannar sendiráðsins eru ósáttir og óttast að bílsprengjur leggi híbýli þeirra í rúst í staðinn. 27.11.2004 00:01
Reynt að rangtúlka skattalækkanir Geir H. Haarde fjármálaráðherra segir að reynt hafi verið að rangtúlka skattalækkanir ríkisstjórnarinnar, gera lítið úr þeim og þagga þær niður. Hann fullyrðir að skattalækkanirnar komi öllum til góða og að ráðstöfunartekjur heimilanna aukist að meðaltali um 4,5 prósent á ári. 27.11.2004 00:01
Banaslys við Vonarskarð Maður lést þegar hann missti stjórn á bíl sem hann ók með þeim afleiðingum að hann valt á hvolf ofan í á við Vonarskarð. 27.11.2004 00:01
100 dagar liðnir frá gíslatöku Þess var minnst víða í Frakklandi í gær að 100 dagar eru síðan frönsku blaðamennirnir Christian Chesnot og Georges Malbrunot voru teknir í gíslingu í Írak. 27.11.2004 00:01
Kosningar endurteknar fyrir áramót Líkur eru á að boðað verði til nýrra kosninga í Úkraínu fyrir áramót. Þingið lýsti forsetakosningarnar ógildar í gær og samþykkti vantraust á yfirkjörstjórnina. Viktor Júsjenko vill að kosið verði aftur 12. desember. 27.11.2004 00:01
Stökk af 86. hæð Maður framdi sjálfsmorð í New York með þeim hætti að hann stökk fram af 86. hæð Empire State byggingarinnar sem er einn fjölfarnasti ferðamannastaður Manhattan, samkvæmt CNN. 27.11.2004 00:01
Leit að bin Laden hætt Stjórnvöld í Pakistan hafa ákveðið að láta af hernaði í héraðinu Suður-Waziristan þar sem pakistanski herinn hefur barist við al-Kaída og talíbana. 27.11.2004 00:01
Hundruð blaðbera skemmtu sér saman Árshátíð blaðbera Fréttablaðsins var haldin á laugardaginn í Háskólabíói. Margt var um manninn á hátíðinni og sá Jónsi, söngvari hljómsveitarinnar Í svörtum fötum, um veislustjórn, ásamt því sem hann kom fram með hljómsveitinni. 27.11.2004 00:01
Fimm létust í eldsvoða í Sviss Fimm slökkviliðsmenn létu lífið í eldsvoða í bílastæðahúsi þegar loft þess hrundi í Gretzenbach í Sviss í gær. 27.11.2004 00:01
Taj Mahal opið á nóttunni Nú hefur verið ákveðið að hafa ástarhofið í Indlandi, Taj Mahal, einnig opið almenningi á nóttunni samkvæmt BBC. 27.11.2004 00:01
Ætluðu að drepa Bush Uppreisnarmenn í hópi marxista í Kólumbíu hugðust drepa George W. Bush þegar hann heimsótti borgina Cartagena í síðustu viku. Öryggisgæsla var gífurleg við heimsókn Bush og engin óhöpp urðu. 27.11.2004 00:01
Reynt að rangtúlka skattalækkanir "Það er búið að lækka skatta stórlega á fyrirtæki og það hefur skilað ríkissjóði auknum tekjum því fyrirtækin efldust. Nú er komið að venjulegu vinnandi fólki," sagði Geir H. Haarde fjármálaráðherra í erindi á fundi með sjálfstæðismönnum á Grand Hotel í gærmorgun. 27.11.2004 00:01
Vill flytja sendiráðið "Við erum komin á þann tímapunkt að það þarf að ræða það alvarlega við utanríkisráðuneytið að finna bandaríska sendiráðinu annan stað," segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir verðandi borgarstjóri. 27.11.2004 00:01
Sjö menn yfirheyrðir Maðurinn sem lokkaði níu ára gamla stúlku upp í bíl til sín í Kópavogi og skildi hana eftir á Mosfellsheiði á miðvikudaginn var enn ófundinn þegar blaðið fór í prentun í gærkvöldi. Lögreglan í Kópavogi hefur yfirheyrt alls sjö menn vegna málsins og segir rannsókn vera í hefðbundnum farvegi. 27.11.2004 00:01
Mótmælendum fjölgar Mótmælendur í Kænugarði í Úkraínu virðast ekki ætla að láta af aðgerðum sínum fyrr en þeir fá sínu framgengt. Ef eitthvað er, fjölgar þeim. Hæstiréttur landsins ætlar að fjalla um ásakanir Viktors Júsjenkós og stjórnarandstöðunnar þess efnis, að víðtæk kosningasvik hafi verið framin. 26.11.2004 00:01
Ekki fundinn Víðtæk leit og eftirgrennslan lögreglu á höfuðborgarsvæðinu og víða um land, að ungum manni, sem er grunaður um að hafa lokkað níu ára stúlku upp í bíl sinn í kópavogi í fyrradag og skilið hana eftir á Þingvallavegi á Mosfellsheiði, hefur enn engan árangur borið. 26.11.2004 00:01
Blair myndi ná kjöri Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, myndi merja sigur yrði gengið til kosninga á Bretlandi í dag. Þetta er niðurstaða könnunar sem gerð var fyrir Daily Telegraph og birt var í morgun. 35% aðspurðra kváðust styðja Verkamannaflokkinn, sem er þremur prósentum meiri stuðningur en Íhaldsmenn fengu. 26.11.2004 00:01