Innlent

Reynt að rangtúlka skattalækkanir

Geir H. Haarde fjármálaráðherra segir að reynt hafi verið að rangtúlka skattalækkanir ríkisstjórnarinnar, gera lítið úr þeim og þagga þær niður. Hann fullyrðir að skattalækkanirnar komi öllum til góða og að ráðstöfunartekjur heimilanna aukist að meðaltali um 4,5 prósent á ári. Geir H. Harde sagði á fundi með sjálfstæðismönnum á Grand Hóteli í dag að það væri í raun verið að bylta skattkerfinu. Um málið allt væri djúpstæður pólitískur ágreiningur. Ráða mætti af málfutningi stjórnarandstöðunnar að skattalækkanir væru gjöf til fólks, en í raun væri um að ræða arðgreiðslur af góðum árangri í efnahagsmálum og hagstjórn. Ráðherrann tók dæmi af eignaskattinum, en um helmingur þeirra sem greiða eignaskatt er kominn yfir sextugt. Öldruð manneskja sem hefði ekki nema milljón í árstekjur en ætti 20 milljóna króna eign hefði greitt 133 þúsund krónur í eignaskatt á ári. Hún þyrfti ekkert að greiða eftir að skattalækkunin yrði að veruleika. Geir sagði það bábylju að það væri einungis hátekjufólks sem greiddi eignaskatt. Það væri fyrst og fremst eldra fólk og ekki síður tekjulágt fólkm en hátekjumenn. Geir sagði að flestir fengu eitthvað út úr skattalækkununum og benti á að persónuafsláttur hækkaði um 8 prósent og skattleysismörk um 20 prósent. Þá væri verið að auka barnabætur um tæpan tvö og hálfan milljarð fram til 2007. Hann tók sem dæmi að hjón með tvö börn sem hefðu sex milljónir í árstekjur samanlagt, fengju fjögur hundruð og sjötíu þúsund krónur á ári út úr skattalækkununum. Að meðaltali segir Geir að ráðstöfunartekjur heimilanna aukist um 4,5 prósent. Þá fái barnafólk með millitekjur eða lágar tekjur hlutfallslega mest. Hann segir þetta klárlega koma öllum til góða og ekki sé um glapræði að ræða, heldur skynsamlega ákvörðun sem eigi ekki að þurfa að hafa neinar slæmar afleiðingar í för með sér.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×