Nágrannar ekki sáttir 27. nóvember 2004 00:01
Steypuklumpar standa fyrir framan sendiráð Bandaríkjanna og eiga að vera þar til varnar hryðjuverkum. Nágrannar sendiráðsins eru ósáttir og óttast að bílsprengjur leggi híbýli þeirra í rúst í staðinn. Í gær var fyrstu klumpunum komið fyrir utan við sendiráðið, þar sem áður voru bílastæði sendiráðsins. Gert er ráð fyrir því að blómakerjum verði komið fyrir ofan í klumpunum, en þrátt fyrir það eru þeir ekkert augnayndi. Íbúarnir eru margir mjög ósáttir við þessa framkvæmd og kemur meðal annars til greina, að borgaryfirvöld fjalli um málið. Borgaryfirvöld eru höfð með í ráðum, að sögn Phils Kosnetts, staðgengils sendiherra Bandaríkjanna. Hann segir að verið sé að koma á fót tálmum til þess að gera hugsanlegum hryðjuverkamönnum erfiðara um vik að sprengja bílsprengju utan við sendiráðið. Markmiðið sé að gera götuna og alla sem í henni búa öruggari en áður. Kosnett segist þó skilja gremju þeirra sem eru smeykir um að búnaðurinn gæti orðið til þess að sprengja myndi frekar dreifast yfir götuna og á íbúðarhús en ella. Samkvæmt reglum bandaríska utanríkisráðuneytisins eiga sendiráð að vera í þrjátíu metra fjarlægð frá næsta mannvirki. Kosnett segir að vel komi til greina að skipta um húsnæði, en til þess þurfi samþykki borgaryfirvalda í Reykjavík, yfirvalda í Washington og nágranna sendiráðsins. Það sé einnig mjög dýrt. Hann vill þó alls ekki útiloka að af flutningi verði fyrr eða síðar.
Fréttir Innlent Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Innlent Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? Innlent Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Innlent Fleiri fréttir Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Sjá meira