Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sláturhús gíslanna fundið Íraskir hermenn hafa fundið "sláturhús gísla", hús þar sem hryðjuverkamenn héldu gíslum föngnum og myrtu þá, sagði Abdul Qader Mohan, hershöfðingi og yfirmaður írösku hersveitanna í Falluja. Hann sagði að húsin væru í norðurhluta borgarinnar þar sem búist hefði verið við mestri mótspyrnu. 10.11.2004 00:01
Hörmungarástand í Falluja Sjö menn féllu fyrir stundu í sprengingu í Bagdad í Írak. Hernaðurinn í Falluja, skammt frá höfuðborginni, hefur leitt til öngþveitis og hörmungarástands að sögn hjálparstarfsmanna í Írak. Óttast er að mikið mannfall hafi orðið í stórsókn þúsunda bandarískra hermanna og írakskra þjóðvarðsliða gegn uppreisnarmönnum súnníta í borginni. 10.11.2004 00:01
Neyðarfundur í kennaradeilunni Forsætisráðherra tilkynnti fyrir stundu að hann útiloki ekki að lög verði sett á verkfall grunnskólakennara. Hann hefur boðað til neyðarfundar á morgun með deilendum eftir að viðræður strönduðu algerlega um hádegisbil í dag. 10.11.2004 00:01
Gegnsær opinn rekstur Forstjóri Olíufélagsins segir að mestu máli skipti að rekstur Eldsneytisafgreiðslunnar á Keflavíkurflugvelli, sem stóru olíufélögin þrjú eigi saman, sé gegnsær og standi öllum opinn. Atlantsolía hefur ekki áhuga á að ganga inn í slíkt samstarf. 10.11.2004 00:01
Vill skaðabætur vegna samráðs Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur ritað olíufélögunum þremur bréf og óskað eftir því að þau hafi frumkvæði að því að semja um greiðslur bóta vegna ólögmæts samráðs sem þau viðhöfðu í útboði bæjarins vegna olíuverslunar. 10.11.2004 00:01
Botnvörpubanni afstýrt hjá SÞ Tillaga um allsherjarbann við veiðum með botnvörpu á úthafinu náði ekki fram að ganga hjá Sameinuðu þjóðunum en Kosta Ríka hafði lagt fram tillögu um slíkt. Samningaviðræðum um hafréttar- og fiskveiðimál á vegum samtakanna er lokið. 10.11.2004 00:01
Kennarar í önnur störf í verkfalli Þrír kennarar hafa unnið í versluninni Grundarvali í Grundarfirði á meðan þeir hafa verið í verkfalli. Einn kennaranna segir að menn verði að bjarga sér við þessar aðstæður. Hann hafi borið þetta undir Kennarasamband Íslands sem hafi komist að þeirri niðurstöðu að þetta væri ekki verkfallsbrot. 10.11.2004 00:01
Buðu upp á gerðardóm Kennarar buðu samninganefnd sveitarfélaga að vísa kjaradeilu þeirra í gerðardóm en nefndin hafnaði tilboðinu. Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir það ljóst að sveitarfélögin ráði ekki við að leysa deiluna þar sem þau taki engum útspilum kennara. "Þau virðast halda að þau geti haldið grunnskólakennurum í heljargreipum láglaunastefnu." 10.11.2004 00:01
Deilan í mjög erfiðum hnút Það er ekki tilefni til að halda samningafund í kjaradeilu kennara og sveitarfélaga fyrr en eftir hálfan mánuð að mati Ásmundar Stefánssonar, ríkissáttasemjara. Hann segir samninganefndirnar hafa verið sammála um þetta á fundi í gær. Hann segist ekki hafa séð tilefni til að ganga í berhögg við þessa afstöðu þar sem bilið á milli kröfu kennara og tilboðs sveitarfélaganna sé svo breitt. 10.11.2004 00:01
Lagasetning ekki útilokuð Það er ekki útilokað að ríkisstjórnin grípi til lagasetningar til að leysa kjaradeilu kennara. Þetta kom fram í máli Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra í gær. Hann hefur boðað kennara og fulltrúa sveitarfélaga á fund í dag til að ræða hvernig leysa megi deiluna. 10.11.2004 00:01
Var ekki höfuðpaur samráðsins Kristinn Björnsson, fyrrverandi forstjóri Skeljungs, vísar því á bug að hann hafi verið höfuðpaur í samráði olíufélaganna. Hann játar þó að honum hafi orðið hált á svellinu í einstaka tilfellum en segir skýrslu Samkeppnisstofnunar engan stóradóm. 10.11.2004 00:01
Óvissa í Palestínu Undirbúningur fyrir útför Jassers Arafats er þegar hafinn, þótt hann sé ekki enn fallinn frá. Ringulreið og óvissa ríkir í Palestínu. 10.11.2004 00:01
Steinunn Valdís borgarstjóri Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarfulltrúi var í gær einróma kosin borgarstjóri á fundi borgarstjórnarflokks Reykjavíkurlistans eftir mikil átök foringja listans um hver yrði arftaki Þórólfs Árnasonar. 10.11.2004 00:01
Ummæli ráðherra misvísandi Ummæli félagsmálaráðherra um samskipti Barnaverndarstofu og meðferðarheimilisins að Torfastöðum eru misvísandi. Ummælin byggðust á greinargerð Ríkisendurskoðunar en virðast stangast á við niðurstöðu hennar. 10.11.2004 00:01
Samstaða dugði ekki Degi Steinunn Valdís Óskarsdóttir, var valin borgarstjóri í gær eftir harðar deilur innan R-listans. Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi utan flokkanna þriggja á R-listanum virtist um tíma vera með pálmann í höndunum. 10.11.2004 00:01
R-listinn stóð ekki fyrir könnun Stefán Jón Hafstein fullyrðir að Reykjavíkurlistinn hafi ekki látið kanna stöðu Þórólfs Árnasonar, fráfarandi borgarstjóra, með skoðanakönnunum. Því síður hafi borgin greitt fyrir slíkt. 10.11.2004 00:01
Íslensk olíumiðlun í Neskaupsstað Reiknað er með að nýtt olíufélag, Íslensk olíumiðlun, geti byrjað að afgreiða gasolíu til skipa í byrjun næsta árs frá birgðastöð sem félagið er að reisa á hafnarsvæðinu á Norðfirði. 10.11.2004 00:01
Stjórnarskrárbundinn réttur barna verði virtur Foreldraráð grunnskóla í Vesturbæ Reykjavíkur krefjast þess að stjórnarskrárbundinn réttur barna til menntunar verði virtur. Í ályktun sem ráðin samþykktu einróma á fundi í köld er áhyggjum lýst vegna hugmynda sem fela í sér skerðingu á svigrúmi skólastjóra til að stýra skólastarfi. 10.11.2004 00:01
Bensínlækkun hjá Atlantsolíu Atlantsolía lækkar nú um miðnætti verð á bensíni og dísel um eina krónu lítrann. Eftir lækkun kostar bensínlítrinn 102,90 krónur og lítrinn af díselolíu kostar 48,90 krónur. 10.11.2004 00:01
Olíudreifing var skálkaskjól Forystumenn Essó og Olís fullyrtu þegar Olíudreifing var stofnuð árið 1995 að samkeppni yrði ekki minni en áður. Á sama tíma nýttu þeir Olíudreifingu til að miðla upplýsingum sín á milli um viðskiptaleyndarmál. 9.11.2004 00:01
Ýmist lífs eða liðinn Jasser Arafat er ekki látinn að sögn utanríkisráðherra heimastjórnar Palestínu. Ónafngreindur heimildamaður innan heimastjórnarinnar sagði fyrr í dag að hann væri fallinn frá en því var vísað á bug síðdegis. Arafat er talinn eiga fáar klukkustundir eftir ólifaðar. 9.11.2004 00:01
Stefán Jón harmi sleginn Stefán Jón Hafstein, borgarfulltrúi R-listans, er harmi sleginn yfir uppsögn Þórólfs Árnasonar. Hann vill ekki staðfesta að Dagur B. Eggertsson verði næsti borgarstjóri - enn sé eftir að ákveða hver taki við af Þórólfi. 9.11.2004 00:01
Hættir störfum í bankaráðinu Einar Benediktsson, forstjóri Olís, hefur ákveðið að taka ekki þátt í störfum bankaráðs Landsbanka Íslands fyrst um sinn, þar til annað hefur verið ákveðið. Segir í yfirlýsingu frá honum að þessi ákvörðun sé tekin í ljósi þeirrar umræðu sem orðið hefur í þjóðfélaginu í kjölfar birtingar skýrslu Samkeppnisstofnunar um meint samráð olíufélaganna. 9.11.2004 00:01
Þórólfur hættir 30. nóvember Þórólfur Árnason mun hætta sem borgarstjóri 30. nóvember. Hann tilkynnti þetta á blaðamannafundi á sjöunda tímanum og sagði ekki sitt að dæma hvort það væri sanngjarnt eða ekki. Þetta eru vissulega tíðindi þótt ekki sé hægt að tala um að ákvörðun hans komi algerlega á óvart. Það hefur verið fátítt á Íslandi að háttsettir embættismenn segi af sér embætti vegna pólitískra álitamála. 9.11.2004 00:01
Kerry einu prósenti yfir John Kerry mælist nú með eins prósentustigs forskot á George Bush í forsetaslagnum í Bandaríkjunum, samkvæmt nýrri fylgiskönnun Reuters og Zogby sem birtist í morgun. Þegar allar kannanir eru teknar saman hefur Bush hins vegar enn forskot í kjörmannaráðinu með 263 kjörmenn á móti 248 kjörmönnum Kerrys. 31.10.2004 00:01
Kristinn fær meiri stuðning Enn fjölgar þeim Framsóknarfélögum sem lýsa stuðningi við Kristinn H. Gunnarsson alþingismann. Framsóknarfélag Stykkishólms hélt aðalfund í fyrrdag og samþykkti svohljóðandi ályktun þar sem skorað er á þingflokk Framsóknarflokksins að leysa þann ágreining sem ríki á milli þingmanna flokksins. 31.10.2004 00:01
Enn vex Skeiðará Hlaupið í Skeiðará er enn að vaxa og hefur rennsli árinnar þegar margfaldast frá því fyrradag. Vatnamælingamenn Orkustofnunar eru þessa stundina á Skeiðarárbrú að mæla rennslið og sagði Sverrir Elefsen nú skömmu fyrir fréttir að áin hefði vaxið töluvert frá því í gær. Mikill jökullitur er á ánni en hins vegar finnst engin jöklafýla. 31.10.2004 00:01
Enn vex Skeiðará Hlaupið í Skeiðará er enn að vaxa og hefur rennsli árinnar þegar margfaldast frá því fyrradag. Vatnamælingamenn Orkustofnunar eru þessa stundina á Skeiðarárbrú að mæla rennslið og sagði Sverrir Elefsen nú skömmu fyrir fréttir að áin hefði vaxið töluvert frá því í gær. Mikill jökullitur er á ánni en hins vegar finnst engin jöklafýla. 31.10.2004 00:01
Hóta að drepa starfsmennina Mannræningjar sem halda þremur starfsmönnum Sameinuðu þjóðanna í gíslingu í Afganistan segjast drepa þá verði öllum al-Qaeda- og talibana föngum Bandaríkjamanna ekki sleppt fyrir hádegi á miðvikudag. Talsmaður Hers Muslíma, sem er hreyfing mannræningjanna, segir að gíslarnir verði drepnir á þann hátt sem kæta mun Múslimi. 31.10.2004 00:01
Japani tekinn af lífi Enn einn gíslinn hefur verið tekinn af lífi í Írak. Lík 24 ára Japana fannst í Bagdad í gær. Hann var á bakpokaferðalagi og var talinn hafa tekið rútu frá Jórdaníu til Íraks í síðustu viku. Átta bandarískir hermenn létu lífið í árás í Írak gær en þetta er eitthvert mesta mannfall meðal bandaríska setuliðsins í langan tíma. 31.10.2004 00:01
Mæðgur sluppu vel eftir veltu Mæðgur sluppu ótrúlega vel þegar jeppi sem þær voru í valt á Dynjandisheiði í gær. Tilkynnt var um slysið laust fyrir klukkan 18 og fóru lögreglumenn frá Patreksfirði og Ísafirði á staðinn og sjúkrabíll frá Þingeyri. Mikil hálka var á slysstað og hafði jeppinn því verið á hægri ferð. 31.10.2004 00:01
Með 200 grömm af hassi Karlmaður er í gæsluvarðhaldi hjá lögreglunni á Ísafirði vegna gruns um aðild að fíkniefnamáli. Hann var handtekinn á pósthúsinu á Flateyri á miðvikudag þegar hann vitjaði póstsendingar, en fíkniefnafundur hafði fundið efnin. Um tvö hundruð grömm af hassi reyndust í pakkanum. Gæsluvarðhald yfir manninum rennur út síðdegis á morgun. 31.10.2004 00:01
5 líkamsárásir kærðar Fimm líkamsárásir voru kærðar í miðborg Reykjavíkur í nótt. Um þrjúleytið var kallað á sjúkrabíl að skemmtistaðnum Prövdu í Austurstræti eftir átök dyravarðar og eins gesta staðarins. Dyravörðurinn hafði hent gestinum út af staðnum og réðst gesturinn þá á dyravörðinn og sparkaði og sló í hann, samkvæmt upplýsingum lögreglu. 31.10.2004 00:01
Skemmdarverk á mælitækjum Skemmdarverk hafa verið unnin á mælitækjum á Mýrdalssandi sem vakta Kötlu. Af þeim sökum fengu vísindamenn engar upplýsingar um rafleiðni í Múlakvísl í tólf daga. Leiðniskynjari í Múlakvísl hætti þann 19. október að senda upplýsingar en þær berast venjulega sjálfvirkt inn til Orkustofnunar. 31.10.2004 00:01
Allt kapp lagt á kjörsókn Svo mjótt er á mununum í forsetakosningunum í Bandaríkjunum að kosningaþátttakan er talin skipta sköpum. Flokkarnir leggja allt í sölurnar til að tryggja að fólk mæti á kjörstaði. 31.10.2004 00:01
Krefjast þess að her fari á brott Mannræningjar sem halda þremur starfsmönnum Sameinuðu þjóðanna í gíslingu í Afganistan krefjast þess að allur erlendur her í landinu hverfi á brott og Sameinuðu þjóðirnar hætti starfsemi sinni. 31.10.2004 00:01
Meiri og margþættari brot Skýrsla Samkeppnisráðs sýnir að brot olíufélaganna á samkeppnislögum voru bæði meiri og margþættari en áður var haldið, segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. Hann segir málið sýna mikilvægi þess að efla samkeppnisyfirvöld. Hann segir tjónið sem viðskiptavinum hafi verið valdið sé mjög mikið vegna þess hve langan tíma brotin stóðu. 31.10.2004 00:01
Skeiðará hefur margfaldast Hlaupið í Skeiðará er enn að vaxa og hefur rennsli árinnar þegar margfaldast frá því fyrradag. Vatnamælingamenn Orkustofnunar eru þessa stundina á Skeiðarárbrú að mæla rennslið og sagði Sverrir Elefsen nú skömmu fyrir fréttir að áin hefði vaxið töluvert frá því í gær. 31.10.2004 00:01
Cherie Blair á móti Bush? Cherie Blair, eiginkona Tony Blair, hefur verið ásökuð fyrir að halda úti áróðri gegn George Bush í fyrirlestrum sem hún hefur haldið í Bandaríkjunum upp á síðkastið. Í fyrirlestrum sínum hefur Cherie meðal annars fagnað úrskurði Hæstaréttar Bandaríkjanna um að hafna beiðni Hvíta Hússins um að ekki mætti hleypa mannréttindasamtökum í fangelsið á Guantanamo flóa. 31.10.2004 00:01
Styttist í árás á Fallujah Iyad Allawi, forsætisráðherra bráðabirgðarstjórnarinnar í Írak, segir mjög styttast í allsherjarárás í borginn Fallujah. Allawi segir að ekki sé hægt að bíða lengur með að losa borgina undan heljargreipum hryðjuverkamanna og þar eð friðsamar viðræður hafi engu skilað hingað til, liði ekki á löngu uns gripið verði til annarra og harkalegri aðgerða. 31.10.2004 00:01
Verða að hætta hótunum Yfirvöld í Íran segja að sigurvegari forsetakosninganna í Bandaríkjunum verðin að láta af hótunum gegn Íran. Talsmaður Utanríkisráðuneytis Írans segir að Bandaríkjamenn ættu að reyna að læra af sögunni og átta sig á því í eitt skipti fyrir öll að hótanir og fordómar í garð Íran skili engu. 31.10.2004 00:01
Japanar láta ekki hræða sig Japanar ætla ekki að draga her sinn burt frá Írak þó að japanskur ferðamaður hafi verið afhöfðaður í Írak í gær. Koizumi, forsætisráðherra, Japan segir að ekki þýði að láta óttann við ómannlegar grimmdaraðgerðir hryðjuverkamanna yfirvinna baráttuna gegn hryðjuverkum. 31.10.2004 00:01
Arafat segist vel stemmdur Jasser Arafat segist vera í góðu standi eftir ferðina til Parísar, að sögn fjármálaráðherra Palestínu, sem fékk símtal frá Arafat fyrr í dag. Fyrstu rannsóknir á Arafat benda til þess að veikindin sem hrjái hann séu ekki lífshættuleg og þau megi lækna, þó að ekki liggi enn fyrir hvað það er nákvæmlega sem hrjáir leiðtogann aldna. 31.10.2004 00:01
Allt í járnum Mjög jafn er komið á með þeim John Kerry og George Bush samkvæmt flestum könnunum sem birst hafa í dag. Í könnun Í könnunum Reuters og Zogby og ABC og Washington post er fylgið hnífjafnt, en hins vegar sker könnun Newsweek sig nokkuð úr, því samkvæmt henni hefur Bush sex prósentustiga forskot. 31.10.2004 00:01
Engar hótanir hafa borist Þrátt fyrir óvænta innkomu Osama Bin Laden í kosningabaráttuna í gær, segir ráðherra Heimavarnarmála í Bandaríkjunum að engar hótanir hafi borist um hryðjuverk á kjördag. Hann hvetur því Bandaríkjamenn til þess að ganga ósmeykir til kjörklefa á þriðjudaginn. 31.10.2004 00:01