Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
R-listinn með blaðamannafund Borgarstjórnarflokkur Reykjavíkurlistans hefur boðað til blaðamannafundar í Tjarnarsal Ráðhússins klukkan 18:30. 10.11.2004 00:01
Ráðherrar ákveða næstu skref "Ákvörðun um næstu skref verður tekin á ráðherrafundinum 24. nóvember næstkomandi," segir Helgi Jensson, forstöðumaður á framkvæmda- og eftirlitssviði Umhverfisstofnunar, um hver áhrif niðurstaðna alþjóðlega rannsóknarhópsins um hlýnun á norðurslóðum verða. 10.11.2004 00:01
Vistkerfið breytist mikið Áhrif hlýnunarinnar á norðurslóðum eru í skýrslu ACIA sögð verða mjög mikil. Til dæmis á sjávarborð eftir að hækka og eftir því sem íshellan yfir Norðurskautinu minnkar eykst hættan á að dýr á borð við ísbirni og sumar selategundir hreinlega deyi út. 10.11.2004 00:01
Kallað á rannsóknir ACIA Norðurheimskautsráðið og Alþjóðleg vísindanefnd um Norðurheimskautið (International Arctic Science Committee, eða IASC) kölluðu eftir úttektinni á áhrifum og umfangi loftslagsbreytinga á norðurslóðum fyrir fjórum árum síðan. 10.11.2004 00:01
Hótað fyrir að kaupa Irving-olíur Forsvarsmenn Olís hótuðu að setja eiganda smurverkstæðis á Höfn í Hornafirði á hausinn ef hann myndi kaupa smurolíur af umboðsmanni Irving á Íslandi. Þetta segir Olgeir Jóhannesson, sem rak Smur og dekk á Höfn í ellefu ár. Hann hætti rekstri fyrir skömmu. 10.11.2004 00:01
Hlýnun aldrei hraðari Vísindamenn eru sammála um hlýnun Norðurheimskautsins og spá umfangsmiklum breytingum sem áhrif hafa á veðurfar um heim allan. Norðurheimskautsís bráðnar, Grænlandsjökull minnkar og sjávarborð hækkar. Hér gætu fiskveiðar aukist. 10.11.2004 00:01
Fjórða stærsta vefsvæði landsins Vísir.is hefur stækkað mjög hratt síðustu vikur og mánuði og er nú með yfir 90 þúsund vikulega notendur samkvæmt samræmdri vefmælingu Modernuss. 10.11.2004 00:01
Rasskellt fyrir vondan ís Eigandi ísbúðar í Red Bank í Tennesse hefur verið ákærður fyrir kynferðislegt áreiti gagnvart starfsmönnum. 10.11.2004 00:01
Forseti þingsins heimsækir Japan Halldór Blöndal, forseti Alþingis, heimsækir Japan 11. til 16. nóvember í boði forseta efri deildar japanska þingsins. 10.11.2004 00:01
Eignaðist tvíbura tæplega sextug Tæplega sextug kona eignaðist tvíbura í New York í fyrradag. Konan sem er 57 ára er talin meðal þeirra elstu sem eignast hafa tvíbura. Tvíburarnir voru teknir með keisaraskurði. 10.11.2004 00:01
Skuldar lögfræðingum 260 milljónir Martha Stewart, sjónvarpskona og fyrrverandi uppáhaldshúsmóðir allra Bandaríkjamanna, hefur óskað eftir því að fyrirtæki hennar, Martha Stewart Living Omnimedia, borgi ríflega 260 milljóna króna lögfræðireikning. 10.11.2004 00:01
Ósáttir matreiðslumenn af Vellinum Matreiðslumönnum sem sagt var upp störfum í aðalmatsal Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli í sumar svíður að ófaglært fólk skuli látið taka við störfum þeirra. 10.11.2004 00:01
Ástríðumorð í Kanada Hjón og maður fundust látin í húsi í bænum Maniwaki í Kanada í gær. Fólkið lést af skotsárum og telur lögreglan að eiginmaðurinn hafi skotið konuna og hinn manninn og síðan framið sjálfsvíg. 10.11.2004 00:01
Bólusetning bjargar okkur Þýskum ferðamönnum á leið til Bretlands hefur verið ráðlagt að láta bólusetja sig gegn hettusótt, vegna faraldurs sem brotist hefur út meðal háskólanema þar. Þórólfur Guðnason, yfirlæknir á sóttvarnasviði Landlæknisembættisins, segir ekki ástæðu til aðgerða hér vegna faraldursins í Bretlandi. 10.11.2004 00:01
Dæmdur fyrir að rífa upp klósett Maður á sextugsaldri var, í Héraðsdómi Norðurlands eystra, dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að rífa salernisskál upp úr gólfi hjá nágranna sínum. Salernisskálin eyðilagðist. 10.11.2004 00:01
Tuttugu karlar yfirheyrðir Meira en tuttugu karlmenn hafa verið yfirheyrðir af lögreglunni í Reykjavík vegna rannsóknar á starfsemi nuddstofu sem auglýsti erótískt nudd. Grunur er um að á nuddstofunni hafi farið fram vændi af einhverju tagi. Mennirnir eru taldir hafa keypt kynlífsþjónustu á nuddstofunni. Rannsókn málsins er rétt að ljúka. 10.11.2004 00:01
Þrír myrtir í mafíustríði Þrjú illa farin lík fundust í bíl í Napólí í gærdag. Lögreglan skrifar morðin á mafíuna og segir þá látnu nýjustu fórnarlömbin í blóðugasta mafíustríði borgarinnar í tuttugu ár. 10.11.2004 00:01
Steinunn Valdís borgarstjóri Steinunn Valdís Óskarsdóttir verður næsti borgarstjóri í Reykjavík. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi R-listans í Ráðhúsinu rétt í þessu. 10.11.2004 00:01
Uppstokkun í stjórn Bush John Ashcroft dómsmálaráðherra og Don Evans viðskiptaráðherra urðu fyrstu ráðherrarnir til að segja af sér eftir endurkjör George W. Bush Bandaríkjaforseta. Fyrir lá að einhverjar breytingar yrðu gerðar á ráðherraskipan fyrir seinna kjörtímabil Bush og var Ashcroft meðal þeirra sem búist var við að myndu láta af störfum. 10.11.2004 00:01
Öldungur á sakabekk 107 ára Indverji bíður nú eftir að dómari kveði upp dóm um hvort hann þurfi að snúa aftur í fangelsi eða fái að ganga frjáls. Maðurinn var fundinn sekur um manndráp fyrir sautján árum þegar hann varð nágranna sínum að bana í landadeilum. Síðan þá hefur málið gengið milli dómsstiga án þess að endanleg niðurstaða hafi fengist, að sögn BBC. 10.11.2004 00:01
Útför Arafats undirbúin Undirbúningur að útför Jassers Arafats, forseta heimastjórnar Palestínu, var í fullum gangi í gær. Arafat er sagður lifa síðustu stundir sínar og er ekki gert ráð fyrir að heilsa hans batni. 10.11.2004 00:01
Seld í vændi af ættingjum Nokkuð er um að ættingjar og nánir vinir barna taki þátt í að innleiða þau í starfsemi barnavændishringja, samkvæmt nýrri rannsókn á barnavændi á Filippseyjum. Fólkið þiggur þóknun af næturklúbbaeigendum og vændishringjum sem lofa börnunum oft vinnu við heimilisstörf en neyða þau síðan til að stunda vændi. 10.11.2004 00:01
Allt á suðupunkti vegna nauðgana Óeirðalögregla indverska hersins notaði táragas til að dreifa hundruðum mótmælenda sem kröfðust þess fjórða daginn í röð að hermönnum yrði refsað fyrir að nauðga tólf ára stúlku og móður hennar. Mótmælendur brugðust við með því að grýta táragassprengjunum aftur í lögregluna, sem og steinum og múrsteinum. 10.11.2004 00:01
Þrengt að smáflokkum Erfiðara verður að skrá stjórnmálaflokka í Rússlandi samþykki þingið ný lög um skráningu þeirra. Samkvæmt þeim verða skilyrði um lágmarksfjölda félagsmanna til að flokkar fái skráningu hækkuð úr tíu þúsund í 50 þúsund félaga. Að auki þurfa flokkar að hafa minnst 500 félaga í lágmarki 50 ríkja til að fá að starfa en nú er gerð krafa um 100 félaga. 10.11.2004 00:01
Ebadi meinað að mótmæla Írönsk stjórnvöld hafa bannað Shirin Ebadi, friðarverðlaunahafa Nóbels í fyrra, að efna til mótmæla gegn aftökum á ungmennum undir átján ára aldri. Ebadi ætlaði að efna til mótmælanna í dag en var neitað um leyfi til að halda þau. 10.11.2004 00:01
Vara gangandi fólk við hálku Finnska veðurstofan hefur ákveðið að grípa til eigin ráðstafana til að fækka slysum af völdum hálku. Nú verða gefnar út tvær spár á dag á tuttugu spásvæðum sem beint er sérstaklega að gangandi vegfarendum, árlega þurfa um 50 þúsund úr þeirra röðum á læknishjálp að halda eftir að hafa runnið í hálku. 10.11.2004 00:01
Sláturhús gíslanna fundið Íraskir hermenn hafa fundið "sláturhús gísla", hús þar sem hryðjuverkamenn héldu gíslum föngnum og myrtu þá, sagði Abdul Qader Mohan, hershöfðingi og yfirmaður írösku hersveitanna í Falluja. Hann sagði að húsin væru í norðurhluta borgarinnar þar sem búist hefði verið við mestri mótspyrnu. 10.11.2004 00:01
Hörmungarástand í Falluja Sjö menn féllu fyrir stundu í sprengingu í Bagdad í Írak. Hernaðurinn í Falluja, skammt frá höfuðborginni, hefur leitt til öngþveitis og hörmungarástands að sögn hjálparstarfsmanna í Írak. Óttast er að mikið mannfall hafi orðið í stórsókn þúsunda bandarískra hermanna og írakskra þjóðvarðsliða gegn uppreisnarmönnum súnníta í borginni. 10.11.2004 00:01
Neyðarfundur í kennaradeilunni Forsætisráðherra tilkynnti fyrir stundu að hann útiloki ekki að lög verði sett á verkfall grunnskólakennara. Hann hefur boðað til neyðarfundar á morgun með deilendum eftir að viðræður strönduðu algerlega um hádegisbil í dag. 10.11.2004 00:01
Gegnsær opinn rekstur Forstjóri Olíufélagsins segir að mestu máli skipti að rekstur Eldsneytisafgreiðslunnar á Keflavíkurflugvelli, sem stóru olíufélögin þrjú eigi saman, sé gegnsær og standi öllum opinn. Atlantsolía hefur ekki áhuga á að ganga inn í slíkt samstarf. 10.11.2004 00:01
Vill skaðabætur vegna samráðs Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur ritað olíufélögunum þremur bréf og óskað eftir því að þau hafi frumkvæði að því að semja um greiðslur bóta vegna ólögmæts samráðs sem þau viðhöfðu í útboði bæjarins vegna olíuverslunar. 10.11.2004 00:01
Botnvörpubanni afstýrt hjá SÞ Tillaga um allsherjarbann við veiðum með botnvörpu á úthafinu náði ekki fram að ganga hjá Sameinuðu þjóðunum en Kosta Ríka hafði lagt fram tillögu um slíkt. Samningaviðræðum um hafréttar- og fiskveiðimál á vegum samtakanna er lokið. 10.11.2004 00:01
Kennarar í önnur störf í verkfalli Þrír kennarar hafa unnið í versluninni Grundarvali í Grundarfirði á meðan þeir hafa verið í verkfalli. Einn kennaranna segir að menn verði að bjarga sér við þessar aðstæður. Hann hafi borið þetta undir Kennarasamband Íslands sem hafi komist að þeirri niðurstöðu að þetta væri ekki verkfallsbrot. 10.11.2004 00:01
Buðu upp á gerðardóm Kennarar buðu samninganefnd sveitarfélaga að vísa kjaradeilu þeirra í gerðardóm en nefndin hafnaði tilboðinu. Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir það ljóst að sveitarfélögin ráði ekki við að leysa deiluna þar sem þau taki engum útspilum kennara. "Þau virðast halda að þau geti haldið grunnskólakennurum í heljargreipum láglaunastefnu." 10.11.2004 00:01
Deilan í mjög erfiðum hnút Það er ekki tilefni til að halda samningafund í kjaradeilu kennara og sveitarfélaga fyrr en eftir hálfan mánuð að mati Ásmundar Stefánssonar, ríkissáttasemjara. Hann segir samninganefndirnar hafa verið sammála um þetta á fundi í gær. Hann segist ekki hafa séð tilefni til að ganga í berhögg við þessa afstöðu þar sem bilið á milli kröfu kennara og tilboðs sveitarfélaganna sé svo breitt. 10.11.2004 00:01
Lagasetning ekki útilokuð Það er ekki útilokað að ríkisstjórnin grípi til lagasetningar til að leysa kjaradeilu kennara. Þetta kom fram í máli Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra í gær. Hann hefur boðað kennara og fulltrúa sveitarfélaga á fund í dag til að ræða hvernig leysa megi deiluna. 10.11.2004 00:01
Var ekki höfuðpaur samráðsins Kristinn Björnsson, fyrrverandi forstjóri Skeljungs, vísar því á bug að hann hafi verið höfuðpaur í samráði olíufélaganna. Hann játar þó að honum hafi orðið hált á svellinu í einstaka tilfellum en segir skýrslu Samkeppnisstofnunar engan stóradóm. 10.11.2004 00:01
Óvissa í Palestínu Undirbúningur fyrir útför Jassers Arafats er þegar hafinn, þótt hann sé ekki enn fallinn frá. Ringulreið og óvissa ríkir í Palestínu. 10.11.2004 00:01
Steinunn Valdís borgarstjóri Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarfulltrúi var í gær einróma kosin borgarstjóri á fundi borgarstjórnarflokks Reykjavíkurlistans eftir mikil átök foringja listans um hver yrði arftaki Þórólfs Árnasonar. 10.11.2004 00:01
Ummæli ráðherra misvísandi Ummæli félagsmálaráðherra um samskipti Barnaverndarstofu og meðferðarheimilisins að Torfastöðum eru misvísandi. Ummælin byggðust á greinargerð Ríkisendurskoðunar en virðast stangast á við niðurstöðu hennar. 10.11.2004 00:01
Samstaða dugði ekki Degi Steinunn Valdís Óskarsdóttir, var valin borgarstjóri í gær eftir harðar deilur innan R-listans. Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi utan flokkanna þriggja á R-listanum virtist um tíma vera með pálmann í höndunum. 10.11.2004 00:01
R-listinn stóð ekki fyrir könnun Stefán Jón Hafstein fullyrðir að Reykjavíkurlistinn hafi ekki látið kanna stöðu Þórólfs Árnasonar, fráfarandi borgarstjóra, með skoðanakönnunum. Því síður hafi borgin greitt fyrir slíkt. 10.11.2004 00:01
Íslensk olíumiðlun í Neskaupsstað Reiknað er með að nýtt olíufélag, Íslensk olíumiðlun, geti byrjað að afgreiða gasolíu til skipa í byrjun næsta árs frá birgðastöð sem félagið er að reisa á hafnarsvæðinu á Norðfirði. 10.11.2004 00:01
Stjórnarskrárbundinn réttur barna verði virtur Foreldraráð grunnskóla í Vesturbæ Reykjavíkur krefjast þess að stjórnarskrárbundinn réttur barna til menntunar verði virtur. Í ályktun sem ráðin samþykktu einróma á fundi í köld er áhyggjum lýst vegna hugmynda sem fela í sér skerðingu á svigrúmi skólastjóra til að stýra skólastarfi. 10.11.2004 00:01
Bensínlækkun hjá Atlantsolíu Atlantsolía lækkar nú um miðnætti verð á bensíni og dísel um eina krónu lítrann. Eftir lækkun kostar bensínlítrinn 102,90 krónur og lítrinn af díselolíu kostar 48,90 krónur. 10.11.2004 00:01