Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Veldur keisaraskurður ofnæmi? Börn sem tekin eru með keisaraskurði gætu verið líklegri til að þróa með sér matarofnæmi en önnur börn. Þetta kemur fram í rannsókn sem gerð var við Háskólann í Munchen, þar sem 865 ungabörn voru rannsökuð. 21.10.2004 00:01
Fá ekki Evruna í bráð Ríkin 10 sem gengu í Evrópusambandið síðastliðið vor fá ekki að taka upp Evruna næsta áratuginn, verði efnahagsmál landann enn í sama ólestri og nú er. Þetta er mat yfirmanna seðlabanka Evrópu. 21.10.2004 00:01
Gleypti Evrur Lögreglan í Kólombíu hefur handtekið mann sem hafði gleypt hylki með 157 þúsund Evrum. Lögregla grunaði manninn um að hafa átt í viðskiptum með kókaín, en þegar hún hafði hendur í hári mannsins hafði hann hvorki efni né peninga meðferðis. Við nánari athugun kom í ljós að maðurinn hafði gleypt hagnaðinn af viðskiptum sínum. 21.10.2004 00:01
Dagbók úr útrýmingarbúðum fannst Dagbók 18 ára gamallar stúlku sem dvaldi í útrýmingarbúðum nasista hefur fundist í Hollandi. Í bókinni lýsir stúlkan þriggja mánaða tímabili sínu í útrýmingarbúðunum og þar kemur meðal annars fram sú mikla angist sem ríkti í búðunum, ekki síst meðal ungra barna, sem send voru út í opinn dauðann líkt og hverjir aðrir. 21.10.2004 00:01
Frederick í 8 ára fangelsi Ivan Frederick liðþjálfi í Bandaríkjaher var í dag dæmdur til átta ára fangelsisvistar fyrir að misþyrma föngum í Abu Ghraib fangelsinu í Bagdad. Þá var hann lækkaður í tign og gerður að óbreyttum hermanni, dæmdur til launamissis og leystur undan herskyldu með skömm. 21.10.2004 00:01
Dómsmálaráðuneytið fór ei að lögum Dómsmálaráðuneytið fór ekki að lögum þegar það bannaði unnustu fanga á Litla hrauni að heimsækja unnusta sinn, að mati Umboðsmanns Alþingis. Fanginn kvartaði undan úrskurði ráðuneytisins, sem staðfesti úrskurð Fangelsismálastofnunar um að banna unnunstunni heimsóknir. 21.10.2004 00:01
Heiladauður? Joe Biden, þingmaður Demókrata sagði á kosningafundi í fyrradag að George Bush væri „heiladauður". Ummæli Biden, sem uppskáru mikið lófatak meðal viðstaddra, hafa vakið mikla athygli, enda ekki á hverjum degi sem þingmenn láta svo stór orð falla. 21.10.2004 00:01
Búnir að gefa skýrslu Mennirnir þrír sem réðust á fréttastjóra DV í gær og gengu berserksgang á ritstjórn blaðsins fóru til lögreglu í dag og gáfu skýrslu um atburði gærdagsins. Fréttastjórinn lagði fram kæru gegn mönnunum í morgun. 21.10.2004 00:01
Arafat biður griða Jasser Arafat forseti Palestínu ætlar að biðja bresk-írakska gíslinum Margaret Hassan griða. Hassan sem starfar við neyðarstoð var rænt á þriðjudag. Utanríkisráðherra Palestínu greindi frá þessu í Dublin í dag, þar sem hann er í heimsókn. Arafat reyndi einnig að biðja Ken Bigley griða, en hann var myrtur af mannræningjum. 21.10.2004 00:01
Minnst 66 létust 66 hið minnsta, týndu lífi í mannskæðasta fellibyl sem gengið hefur yfir Japan í meira en tvo áratugi. Aurskriður og flóðbylgjur færðu allt á kaf og nokkurra er enn saknað. Fellibylurinn missti fljótlega afl þegar yfir land kom og var ekki ýkja öflugur þegar hann gekk yfir Tókýóborg. Alls hafa tíu fellibyljir skollið á Japan það sem af er árinu, sem er met. 21.10.2004 00:01
Hafnaði kröfum um þjóðlendumörk Hæstiréttur hafnaði í dag kröfu íslenska ríkisins um að mörk þjóðlendu næði inn fyrir landsvæði sem eigendur tiltekinna jarða í Árnessýslu kröfðust viðurkenningar á. Hæstiréttur staðfesti úrskurð óbyggðanefndar að svokallaður Framafréttur eins og hann er afmarkaður í úrskurði nefndarinnar, teljist til þjóðlendu. 21.10.2004 00:01
Ekki lagaheimild fyrir takmörkunum Hæstiréttur komst í dag að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkið hefði ekki haft lagaheimild til að setja takmarkandi skilyrði fyrir sjóflutningum fyrir varnarliðið á Keflavíkurflugvelli. Atlantsskip höfðaði mál gegn ríkinu, þar sem deilt var um skilyrði sem forvalsnefnd utanríkisráðuneytisins setti fyrir þátttöku í útboði fyrir varnarliðið. 21.10.2004 00:01
Krónur og brýr án endurgreiðslu Tannlæknar segja óréttlátt að Tryggingastofnun taki ekki þátt í niðurgreiðslu á tannkrónum og brúm fyrir eldri borgara, að sögn Gunnars Leifssonar, formanns upplýsinganefndar. Yfirtryggingatannlæknir hafi bent á að því þurfi að breyta. Það hefur þó ekki gerst enn. 21.10.2004 00:01
Veglegur styrkur til daufblindra Daufblindir geta auðveldlega einangrast. Nú hafa þeir fengið myndarlegan styrk, sem hjálpar þeim að taka betur þátt í því sem er að gerast í samfélaginu. 21.10.2004 00:01
Nálgast samkomulag um sorp Heldur hefur þokast í átt til samkomulags milli sveitarstjórnar Ölfuss og stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands, að sögn Hjörleifs Brynjólfssonar oddvita sveitarstjórnar Ölfuss. 21.10.2004 00:01
Hæsta álagnings tannlæknis 103% Hæsta álagning sem vitað er til að tannlæknir noti er 103% umfram gjaldskrá heilbrigðisráðherra. Meðaltalshækkun er 15 - 20%. Tryggingayfirtannlæknir segir að gjaldskrána þurfi að hækka oftar en gert hefur verið. </font /></b /> 21.10.2004 00:01
Tvær vikur í næsta fund Fundi launanefndar sveitafélaga og forsvarsmanna kennara í Karphúsinu var slitið nú á sjötta tímanum. Mikið bar á milli deiluaðila og var ákveðið að ekki skyldi fundað aftur fyrr en að tveim vikum liðnum. 21.10.2004 00:01
Ekkert svar frá ríkissaksóknara "Ríkissaksóknari á að fylgjast með því að þeim sem afbrot fremja verði beittir lögmætum viðurlögum," segir Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður. En vélhjólamaður brákaði lögreglumann á nefi í Leifsstöð í desember síðastliðinn. Hvorki lögreglumaðurinn né embætti sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli kærðu vélhjólamanninn. 21.10.2004 00:01
Vitni óttast axarmanninn Börkur Birgisson, 25 ára Hafnfirðingur, er ákærður af ríkissaksóknara fyrir tilraun til manndráps en til vara fyrir stórfellda líkamsárás. Börkur sló mann nokkrum sinnum í höfuðið með öxi á veitingastaðnum A. Hansen í Hafnarfirði í lok ágúst. Börkur neitar sök í þessari ákæru eins og í sex öðrum líkamsárásum sem hann er einnig ákærður fyrir. 21.10.2004 00:01
Kom konu ekki undir læknishendur Rúmlega þrítugur maður hefur verið ákærður af Ríkissaksóknara fyrir brot gegn lífi og limum með því að hafa ekki komið ungri konu undir læknishendur þegar hún veiktist lífshættulega. 21.10.2004 00:01
Íhuga að kæra vélhjólamann Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli, segir rétt að lögreglumaður undir hans stjórn hafi ekki kært vélhjólamann sem brákaði á honum nefið í handalögmálum sem urðu þegar maðurinn var handtekinn í desember síðastliðnum. "Ástæðan er að honum stóð stuggur af þessum mönnum," segir Jóhann. 21.10.2004 00:01
Skattbyrði eykst mest á Íslandi Skattbyrði á Íslandi hefur í valdatíð núverandi stjórnarflokka aukist margfalt meira en í nokkru öðru ríki Vesturlanda. Meðan skattbyrði í flestum iðnríkjum hefur verið að léttast hefur hún snarþyngst á Íslandi. 21.10.2004 00:01
Átta ára fangelsi Bandarískur hermaður var í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að misþyrma írökskum föngum í Abu Graib fangelsinu í Bagdad, bæði kynferðislega og andlega. Þetta er þriðji dómurinn sem fellur vegna illrar meðferðar á föngunum í Abu Graib og sá langþyngsti hingað til. 21.10.2004 00:01
Engin undanþága vegna fatlaðra Þroskaþjálfar starfandi við Nesskóla í Neskaupstað og Grunnskólann á Reyðarfirði fá ekki heimild til að aðstoða tvö fötluð börn í bæjarfélögunum, þar sem hætta er talin á að þeir gangi inn á verksvið kennara. 21.10.2004 00:01
Bush í vondum málum Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu eftir ellefu daga og kjósa sér forseta. Skoðanakannanir hafa leitt í ljós að George W. Bush hefur nokkurra prósenta forskot á andstæðing sinn, John Kerry. Þar með er þó ekki sjálfgefið að Bush muni bera sigur úr býtum. 21.10.2004 00:01
Vill verslun á sama stað og Nóatún Matvöruverslunarfyrirtæki er nú að kanna hvort það geti fengið heimild til reksturs verslunar á sama svæði í Grafarholti og Nóatún rekur nú verslun. Júlíus Vífill Ingvarsson, lögfræðingur hjá lögmannstöfunni Lögvernd, segist ekki geta sagt hvaða fyrirtæki sé um að ræða. 21.10.2004 00:01
Ekki brot á jafnræðisreglu Að synja fyrirtæki um leyfi til að reka verslun á svæði þar sem Nóatún rekur verslun í Grafarholti er ekki brot á jafnræðisreglu að sögn Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, formanns skipulags- og bygginganefndar Reykjavíkur. 21.10.2004 00:01
Skaupinu sleppt Fjöldi Íslendinga kýs að verja áramótunum í útlöndum, fjarri áramótabrennum og skaupi, að ógleymdum ávörpum helstu höfðingja þjóðarinnar. Það er enda háttur sumra að vilja frið og ró fremur en skarkala eða slark, þó vissulega geti glaumur og gleði ríkt í öðrum löndum en á Íslandi. 21.10.2004 00:01
Búist við að þorskeldi margfaldist Framleidd voru sex þúsund tonn af eldisfiski í fyrra. Samkvæmt nýrri skýrslu um stöðu og framtíðaráform í íslensku fiskeldi er gert ráð fyrir að framleiðslan verði fimmtán þúsund tonn árið 2006. 21.10.2004 00:01
Beðið eftir strætó á klósettinu Vegfarendur í Reykjavík hafa eflaust sumir tekið eftir því að búið er að "innrétta" tvenn strætisvagnabiðskýli á sérstakan hátt. 21.10.2004 00:01
Eldvarnir til sveita í ólestri Ríflega 600 sláturlömb drápust í eldsvoða á bænum Knerri í vikunni. Brunamálastjóri segir að brunavarnir í sveitum séu ekki nógu góðar en slökkviliðsstjóri kveðst ekki hafa tök á að sinna lögbundnu eftirliti. 21.10.2004 00:01
Stjórnarskrárbundinn réttur Það er fráleitt að halda því fram að ákvörðun um að virða gildandi skipulagsskilmála í Grafarvogi valdi lóðarhöfum við Fossaleyni fjárhagslegu tjóni. Þetta segir í minnisblaði frá Jónasi Þór Þorvaldssyni, framkvæmdastjóra Stoða hf., sem er lóðarhafi í Spönginni. 21.10.2004 00:01
Heyið ofhitnaði Allt bendir til að svonefnd íkviknun hafi orðið í heyi í hlöðunni á Knerri. Að sögn Björns Karlssonar brunamálastjóra getur slíkt gerst í massa sem hefur mikið rúmmál en lítið flatarmál og súrefni kemst að. 21.10.2004 00:01
Borgin sker niður framlög Tónlistarskólar í Reykjavík horfa fram á mikinn rekstrarvanda auki Reykjavíkurborg ekki fjárframlög sín til þeirra að sögn Sigursveins Kr. Magnússonar, formanns Samtaka tónlistarskóla í Reykjavík. 21.10.2004 00:01
Kaupir sér gullfiska næst Maður sem keypti sér kanínur vegna þess að hann var einmanna og vildi smá félagsskap endað með meiri félagsskap en hann kærði sig um. 21.10.2004 00:01
Kaup bújarða gagnleg þróun Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra segir enga ástæðu til að grípa til aðgerða vegna kaupa auðmanna á bújörðum og samþjöppun framleiðsluréttar. "Við megum ekkert gera til að stöðva þessa þróun sem er á margan hátt mjög gagnleg" sagði landbúnaðarráðherra í utandagskrárumræðum á Alþingi. 21.10.2004 00:01
Um 5 þúsund fyrirmæli frá Brussel Á þeim tíu árum sem liðin eru frá því að EES-samningurinn tók gildi hafa hátt á fimmta þúsund lög og reglugerðir Evrópusambandsins öðlast gildi á Íslandi. "Ólýðræðislegasti alþjóðasamningur sem um getur," segir Eiríkur Bergmann Einarsson, sérfræðingur í Evrópumálum. </font /></b /> 21.10.2004 00:01
Fimmtán hendur á loft Meiri- og minnihlutar í stjórnmálum koma sér sjaldnast saman um mál. Í atkvæðagreiðslum er vaninn að meirihluti felli flest sem frá minnihlutanum kemur og minnihlutinn segir oftast nei eða situr hjá þegar kosið er um tillögur meirihlutans. </font /></b /> 21.10.2004 00:01
Hvert er þjóðarblómið? Þjóðarblómið verður kynnt þjóðinni við hátíðlegt tækifæri í dag. Leit hefur staðið yfir frá því í vor og nú liggja niðurstöður fyrir. Bæði sérfræðingar og almenningur hafa látið sig málið varða og eftir ótal ábendingar stóð valið á milli sjö jurta; blágresis, blóðbergs, geldingahnapps, gleym-mér-ei, holtasóleyjar, hrafnafífu og lambagrass. 21.10.2004 00:01
Stofnun verður heimili Nafni Öldrunarstofnunar Akureyrarbæjar hefur verið breytt í Öldrunarheimili Akureyrar. Sérskipuð dómnefnd hefur kveðið upp úr með þetta að undangenginni nafnasamkeppni. 21.10.2004 00:01
Tugir létust í gassprengingu Í það minnsta sextíu og allt upp í 150 námumenn létu lífið þegar mikil sprenging varð í kolanámu í Daping námunni í Henan-héraði í Kína. Nær 450 manns voru að störfum í námunni þegar sprengingin varð og sluppu um 300 manns lifandi. Nær níutíu manna er saknað og ekki vitað um afdrif þeirra. 21.10.2004 00:01
Kristinn er okkar þingmaður Vestfirðingar eru ósáttir við ákvörðun þingflokks Framsóknarflokksins að útiloka Kristinn H. Gunnarsson úr þingnefndum. Þeir segja hann sinn þingmann, það sé stórmál að hann hafi verið gerður áhrifalaus. </font /></b /> 21.10.2004 00:01
Eru búnir að gefa skýrslu Mennirnir þrír, sem réðust á fréttastjóra DV í gær og gengu berserksgang á ritstjórn blaðsins, gáfu lögreglu skýrslu í dag. Fréttastjórinn kærði mennina í morgun. Á annan tug manna, sem urðu vitni að atburðunum, gefur skýrslu hjá lögreglu á morgun. 21.10.2004 00:01
Versta áfall Japana í nær áratug Mannskæðasta óveður sem gengið hefur yfir Japan í nær tvo áratugi kostaði í það minnsta 55 manns lífið þegar fellibylurinn Tokage gekk yfir landið í fyrradag og fyrrinótt. Rúmlega tuttugu manns til viðbótar er saknað og því getur tala látinna enn hækkað. 21.10.2004 00:01
Áfenisneysla Íslendinga eykst mest Áfengisneysla Íslendinga hefur aukist verulega umfram það sem gerst hefur annars staðar á Norðurlöndum, að því er fram kom í svari Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Marðar Árnasonar, þingmanns Samfylkingarinnar, á Alþingi í gær. 21.10.2004 00:01