Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Leit formlega hætt Flest þykir nú benda til að misheppnaður grínisti hafi sent hundruð björgunarsveitarmanna í tilgangslausa leit að hópi tuttugu franskra ferðamanna á hálendinu. Starfsmaður Ferðafélagsins gerði Neyðarlínunni viðvart að morgni fimmtudags eftir að maður hafði komið inn í samtal hans og skálavarðar í Hvanngili um talstöð. 31.7.2004 00:01
Flugher berst við engisprettur Engisprettufaraldur af nánast biblíulegri stærðargráðu herjar nú á nokkur lönd í Vestur-Afríku. Verst er ástandið á Malí og í Máretaníu, en í þessum löndum er vitað um nálægt 100 engisprettuský sem nánast éta sig í gegnum landið. 31.7.2004 00:01
Þremur rænt og sleppt sama dag Palestínskir vígamenn rændu þremur útlendingum í borginni Nablus á Vesturbakkanum í morgun. Útlendingarnir unnu við kirkjustarf í Nablus og komu frá Bandaríkjunum, Írlandi og Bretlandi. 31.7.2004 00:01
Forsætisráðherra slapp naumlega Pakistanski forsætisráðherrann, Shaukat Aziz, slapp naumlega þegar sjálfmorðsárás var gerð að bílalest hans. Í sprengingunni létust bílstjóri ráðherrans og fjórir aðrir fylgdarmenn hans. 36 manns slösuðust í árásinni, þar af nokkrir alvarlega. 31.7.2004 00:01
Flóð í Mexíkó Miklar rigningar í Mexíkó hafa valdið flóðum í norðurhluta landsins en þar rignir sjaldan. Flóð hafa skemmt byggingar og vegi og fjöldi manna er án rafmagns. Í borginni Cocalco var rigningin svo mikil að þök fjölda húsa gáfu sig undan þunganum. 31.7.2004 00:01
Veðurhorfur næstu daga Suðaustan 8-13 m/s og skúrir sunnan- og vestanlands í dag, en annars hægari og þurrt að kalla. Hvessir í nótt og suðaustan 13-18 suðvestanlands um hádegi á morgun, en annars hægari. Rigning á sunnan- og vestanverðu landinu, en úrkomulítið norðaustan til. 31.7.2004 00:01
Rjómablíða í Eyjum Rjómablíða er í Vestmannaeyjum í dag eftir rigningu í nótt og gærdag. Dagskráin stóð til klukkan fimm í nótt og fór að sögn ágætlega fram, en þrátt fyrir rigningu var mikil stilla í dalnum. 31.7.2004 00:01
Rætist úr veðri á landinu Hátíðahöld fara vel af stað þessa verslunarmannahelgi og virðast landsmenn skemmta sér hið besta um land allt. Sigurður Helgason hjá Umferðarstofu segir umferðina hafa gengið vel fyrir sig það sem af er helgarinnar en minnir ökumenn á virða hraðatakmarkanir, sýna tillit og aka eftir aðstæðum. 31.7.2004 00:01
Fylgi ríkisstjórnar dalar Fylgi við ríkisstjórnina dalar samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallups. Eftir því sem fram kom í fréttum Ríkisútvarpsins í morgun eru 62 prósent landsmanna andvíg ríkisstjórn Sjálfsstæðisflokks og Framsóknarflokks og hefur stuðningur við hana minnkað um fjögur prósentustig í júlí frá júnímánuði. 31.7.2004 00:01
Enn tekið alvarlega Lögreglan tekur ennþá alvarlega neyðarkallið sem barst síðastliðinn fimmtudag, um að tuttugu frakkar væru veikir, af matareitrun, á hálendinu. Jónína Sigurðardóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn, hjá fjarskiptadeild ríkislögreglustjóra, sagði í samtali við fréttastofuna, nú fyrir hádegi, að þótt ýmislegt bendi til þess að neyðarkallið hafi verið gabb, sé ennþá gengið út frá því að það hafi verið raunverulegt. 31.7.2004 00:01
Gripið til aðgerða gegn Súdan Sameinuðu Þjóðirnar hafa hótað að grípa til aðgerða gegn Súdan eftir að súdönsk yfirvöld höfnuðu ályktun Öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna sem samþykkt var í gær. Í ályktuninni segir að gripið verði til aðgerða gegn Súdan afvopni stjórnvöld ekki vígamenn í Darfur-héraði á þrjátíu dögum. 31.7.2004 00:01
Ýtt verði á eftir umbótum Nefndarmenn úr Ellefta September nefndinni, sem rannsakaði hvað fór úrskeiðis í tengslum við hryðjuverkin ellefta september árið 2001 í Bandaríkjunum, hafa hvatt bandaríska öldungadeildarþingmenn til að ýta á eftir umbótum sem mælt er með í niðurstöðum nefndarinnar. 31.7.2004 00:01
Namibísk svikamylla Efnahagsbrotadeild namibísku lögreglunnar vinnur nú að því að reyna að leysa umfangsmikið fjársvikamál, sem teygir anga sína til Íslands. Meira en 40 karlar og konur frá Namibíu eru flækt í málið, en þau lögðu verulegar fjárhæðir inn á bankareikning, sem tryggingu fyrir störf á Íslandi, í Alaska, Noregi, og á Grænlandi. 31.7.2004 00:01
Friður á Fílabeinsströndinni Forseti Fílabeinsstrandarinnar, Laurent Gbagbo og leiðtogi uppreisnarmanna skrifuðu undir friðarsamning í gær en vonast er til að þar með ljúki tveggja ára borgarastyrjöld í landinu. Mennirnir hittust í borginni Accra í Ghana ásamt leiðtogum tólf Afríkuríkja og Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu Þjóðanna. 31.7.2004 00:01
Freista þess að fá gísla úr haldi Indverskur stjórnarerindreki er á leiðinni til Íraks til að freista þess að fá þrjá Indverja, sem setið hafa í haldi mannræningja í tíu daga, lausa. Mannræningjarnir hafa hótað að drepa gíslana dragi kúveiskt fyrirtæki, sem þeir vinna hjá, sig ekki út úr Írak. 31.7.2004 00:01
Egó í kvöld Hljómsveitin Egó er komin til Vestmannaeyja og var með hljóðprufu um fjögurleytið. Stórt hljóðkerfi hefur verið sett upp við sviðið í dalnum og hlakka menn til að heyra Egó vakna af 20 ára dvala, að sögn Páls Schevings framkvæmdastjóra hátíðarinnar. 31.7.2004 00:01
Belgíska þjóðin syrgir Konungur Belgíu, Albert annar, heimsótti í dag og huggaði fjölskyldur þeirra sem létust í stórri gassprengingu 30 kílómetra frá bænum Ghislenghien. Þá fór hann að slysstað og vottaði hinum látnu þar með virðingu sína. 31.7.2004 00:01
Auglýsingar allan sólarhringinn Margir kvarta undan því hversu margar auglýsingar séu í sjónvarpi en það eru ekki allir á sama máli. Nú hefur verið stofnuð bresk sjónvarpsstöð sem sýnir einvörðungu auglýsingar. Frá og með 6. september næstkomandi geta menn því horft á auglýsingar allan sólarhringinn án endurgjalds. 31.7.2004 00:01
Málinu haldið opnu fram yfir helgi Leit er haldið áfram að tuttugu frönskum ferðamönnum vegna neyðarkalls sem barst síðastliðinn fimmtudag. Búið er að leita á gríðarstóru svæði, bæði úr lofti og á landi. Þó að líkurnar á því að franski hópurinn sé raunverulegur með hverri klukkustund sem líður getur lögreglan ekki annað en leitað af sér allan grun. 31.7.2004 00:01
Innsetning forseta á morgun Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sver embættiseiða í þriðja sinn á morgun. Athöfnin fer fram á meðan á endurbótum á Alþingishúsinu stendur og var fjölmiðlum af þeim sökum synjað um leyfi til að sýna frá undirbúningi fyrir innsetningarathöfnina. Helmingur ríkisstjórnarinnar verður fjarverandi við athöfnina. 31.7.2004 00:01
Súdönsk stjórnvöld hafna ekki Súdönsk stjórnvöld ætla ekki að hafna ályktun Sameinuðu þjóðanna eins og upplýsingaráðherra þeirra tilkynnti í gær. Í ályktuninni eru Súdönum gefnir þrjátíu dagar til að afvopna skæruliða í Darfur-héraði. 31.7.2004 00:01
Vatikanið gagnrýnir feminista Vatíkanið gagnrýnir femínista harðlega í nýrri skýrslu um hlutverk karla og kvenna. Þar segir að femínistar geri að engu þann líffræðilegan mun sem sé á körlum og konum. Skýrslan ber nafnið: Bréf til Biskupa Kaþólsku Kirkjunnar um samvinnu karla og kvenna í kirkjunni og í heiminum. 31.7.2004 00:01
Fékk tvö ný lungu Lífið er eins og ævintýramynd eftir Spielberg. Þetta segir Jón Ottó Rögnvaldsson sem fékk tvö ný lungu grædd í sig í fyrra. Áður komst hann varla á milli herbergja og var tengdur við súrefniskút allan sólarhringinn, en í dag segist hann nánast treysta sér til að hlaupa maraþon. 31.7.2004 00:01
Gleði og ást í Húsdýragarði Það ríkti gleði og ást í Húsdýragarðinum í dag þegar þeir Reykvíkingar sem heima sitja um verslunarmannahelgina slettu þar úr klaufunum. Það gerði einnig nautið Guttormur, sem var ástleitinn við kýrnar. 31.7.2004 00:01
Gótt verður á austurlandi Geggjað veður hérna fyrir austan sögðu viðmælendur fréttastofu í dag. Nokkur þúsund manns eru á hátíðum á Austfjörðum um helgina, meðal annars í Neskaupstað og á Borgarfirði eystri þar sem hátíðin Álfaborgarsjens er haldin. 31.7.2004 00:01
Fjöldi á unglingalandsmóti Tíu þúsund manns eru á unglingalandsmóti UMFÍ á Sauðárkróki um helgina. Þar brosa skipuleggjendur hringinn og þakka fyrir góða gesti og gott veður. Það hefur ekki verið eintómt sólskin á Sauðárkróki um helgina en það hefur ekki komið að sök. 31.7.2004 00:01
Af nógu að taka á Suðurlandi Það var af nógu að taka á Suðurlandi fyrir þá sem lögðu í ferðalag í tilefni af verslunarmannahelginni. Fjölbreytt dagskrá var í boði víða í landshlutanum, og höfðu menn heppnina með sér, því þrátt fyrir leiðinlega veðurspá, rættist úr veðrinu og var einstök veðurblíða, nánast hvar sem drepið var niður fæti. 31.7.2004 00:01
Níu þúsund í Eyjum Tæplega níu þúsund manns eru á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Lögregla er ánægð með framkomu gesta og segir enga kæru hafa verið lagða fram vegna líkamsárásar eða nauðgunar. Hins vegar hafa um 30 fíkniefnamál komið upp á hátíðinni. 31.7.2004 00:01
Lang flestir á Akureyri Tjaldstæði á Akureyri yfirfylltust í nótt þegar íbúafjöldi bæjarins tvöfaldaðist. Talið er að þangað séu komnir yfir fimmtán þúsund gestir. Allt tiltækt lið lögreglu er á vakt ásamt liðsauka að sunnan. Hátíðin ein með öllu, á Akureyri, er lang fjölmennasta hátíð sem haldin er á landinu, um verslunarmannahelgina. 31.7.2004 00:01
Miklir vatnavextir í Jöklu Miklir vatnavextir hafa verið í Jöklu undanfarna daga og hafa starfsmenn Impregilo við Kárahnjúkavirkjun af þeim sökum styrkt fremri stífluna við árfarveginn. Leó Sigurðssyni, yfirmanni öryggis- og umhverfismála, hjá Impregilo segir hættuástand ekki hafa skapast en að menn hafi varann á. 31.7.2004 00:01
Víðtæk leit að 20 ferðamönnum Víðtæk leit hófst í gær að hópi tuttugu ferðamanna en farið var að óttast um hópinn eftir að neyðarkall kom í gegnum samtal á milli Ferðafélags Íslands í Reykjavík og skálavarðar í Hvanngili. Björgunarsveitir á Suðurlandi héldu af stað á hálendið á öðrum tímanum í gær. 30.7.2004 00:01
Helmingur fjarverandi embættistöku Átta af hverjum tíu þingmönnum sem ekki geta mætt við embættistöku forseta Íslands eru þingmenn ríkisstjórnarflokkanna. Helmingur þingmanna ríkisstjórnarflokkanna verður fjarverandi og helmingur ráðherra. Fjórir stjórnarandstöðuþingmenn mæta ekki. </font /></b /> 30.7.2004 00:01
Óhæft húsnæði veldur vetrarkvíða Starfsfólk Impregilo á Kárahnjúkasvæðinu kvíðir vetrinum vegna mjög lélegs íbúðarhúsnæðis á staðnum. Verkalýðshreyfingin berst gegn óhóflega löngu úthaldi hjá portúgölskum starfsmönnum. Mönnum finnst farið að bera á sparnaði við matarinnkaup. </font /></b /> 30.7.2004 00:01
Bann andstætt EES-reglum Rannsóknir benda til að bann við auglýsingum á áfengi hafi engin áhrif á neyslu. Sérfræðingar telja ennfremur ólíklegt að bannið standist EES-reglur. Örlög bannsins ráðast væntanlega í dómsmálum innan tíðar. </font /></b /> 30.7.2004 00:01
Þjarkað um fríverslun í Genf Hörð samningalota um fríverslun stendur nú yfir í Genf. Fátæku löndin og ríku löndin gæta ólíkra hagsmuna. Landbúnaðarmálin eru viðkvæmust eins og venjulega. </font /></b /> 30.7.2004 00:01
Leitarsvæðið færðist vestur Leitarsvæði björgunarsveitamanna sem leita að hópi franskra ferðamanna, sem talið er að sé í nauðum á hálendinu frá því um hádegi í gær, færðist til vesturs, seint í gærkvöldi eftir að kortlagt hafði verið það svæði sem talið er að fjarskiptin hafi komið frá. 30.7.2004 00:01
Lést eftir bílveltu Erlendur karlmaður sem slasaðist mikið þegar hann kastaðist út úr bíl sem valt á Vatnsskarði á Krísuvíkurvegi á laugardagskvöldið, lést á gjörgæsludeild Landspítalans í gær. Hann komst aldrei til meðvitundar eftir slysið. Ferðafélagar hans sluppu lítið meiddir en mennirnir eru staddir hér á landi vegna tímabundinna starfa. 30.7.2004 00:01
Árekstur í Keflavík Ökumaður slasaðist í hörðum árkestri tveggja bíla á mótum Iðavalla og Suðurvalla í Keflavík í gærkvöldi. Hann var fluttur á Heilbrigðsisstofnun Suðurnesja en reyndist ekki alvarlega meiddur. Bílarnir eru hinsvegar stór skemmdir og voru fluttir af vettvangi með kranabíl. 30.7.2004 00:01
Kona féll af hestbaki Kona slasaðist þegar hún féll af hestbaki nálægt Borgarnesi í gærkvöldi. Hún var flutt með sjukrabíl á Slysadeild Landsspítalans og reyndist ekki alvarlega slösuð. Hún liggur þó enn á sjúkrahúsinu, en verður væntanlega útskrifuð í dag. 30.7.2004 00:01
Kerry vill endurskipuleggja John Kerry, forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins í Bandaríkjunum sagði á þingi flokksins í gær að nái hann kjöri muni hann endurskipuleggja starfsemi leyniþjónustunnar hið fyrsta og vill hann að hún byggi á staðreyndum, sem stjórnmál eigi ekki að hafa áhrif á. 30.7.2004 00:01
Stöðug umferð til Akureyrar Stöðug umferð hefur verið til Akureyrar í allan gærdag og framundir morgun. Þar eru tjaldstæði að fyllast og í gærkvöldi var opnað viðbótar tjaldsvæði, sem ekki átti að opna fyrr en í dag. Þar er nú gott veður og spáin er góð. 30.7.2004 00:01
Fyllerí þýskra endaði í banaslysi Þýskur maður lést af sárum sínum í gær eftir umferðarslys við Vatnsskarð í Hafnarfirði síðustu helgi. Ökumaður bílsins var í gær dæmdur í farbann; grunaður um manndráp af gáleysi. 30.7.2004 00:01
Átök um dóttur leiddu til morðs Heiftarleg deila Sri Rahmawati og Hákonar Eydal um forræði yfir fjögurra ára gamalli dóttur þeirra leiddi til hinna hörmulegu atburða í íbúð Hákonar við Stórholt í Reykjavík í byrjun mánaðarins. </font /></b /> 30.7.2004 00:01
Frestað að setja út rekald Leitarmenn Slysavarnafélagsins Landsbjargar hafa ákveðið að fresta því að setja út rekald við Kjalarnes til þess að kanna rek við ströndina, þar sem líkinu af Sri Rahmawati var varpað í sjóinn. 30.7.2004 00:01
Danir í Öryggisráðið Danir eru búnir að tryggja sér sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, að því er danska blaðið Information greinir frá. Nýtt Öryggisráð verður kosið á allsherjarþinginu í haust og hafa Danir þegar tryggt sér atkvæði 114 þjóða, og vantar 14 atkvæði upp á að tryggja sér sætið. 30.7.2004 00:01