Fleiri fréttir

Hættir sem verjandi Jóns Ásgeirs

Helgi Jóhannesson hefur hætt sem verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar vegna rannsóknar á skattamálum Baugs. Helgi var yfirheyrður hjá Skattrannsóknarstjóra vegna hlutabréfakaupa fjárfestingafélagsins Fjárfars, en Helgi var í stjórn fyrirtæksins og um tíma stjórnarformaður.

Óráðlegt að lækka skatta

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands telur óráðlegt að lækka skatta við núverandi aðstæður í efnahagslífinu og ítrekar að ríkið verði að takast á við kerfislægan vöxt rekstrarútgjalda ríkissjóðs

Hreinsunarátak fyrir 17. júní

Reykjavíkurborg hvetur almenning til að fegra borgina fyrir hátíðarhöldin 17. júní þegar lýðveldið verður 60 ára. Hreinsunarátak Reykjavíkurbogar, Tökum til hendinni, er nú í fullum gangi en átakinu lýkur á sunnudag. Þórólfur Árnason borgarstjóri segist mjög ánægður með viðbrögð borgarbúa.

Hrefnuveiðar hefjast á ný

Fimm hrefnur hafa veiðst síðan rannsóknarveiðar hófust á ný í byrjun mánaðarins. Að sögn Gísla Víkingssonar, verkefnastjóra hjá Hafrannsóknarstofnuninni, ganga rannsóknir vel, en veiddar verða 25 hrefnur í sumar.

Kosið um lögin í byrjun ágúst

Alþingi verður kallað saman mánudaginn 5. júlí þar sem ákveðið verður fyrirkomulag þjóðaratkvæðagreiðslu um fjölmiðlalögin. Þjóðaratkvæðagreiðslan mun fara fram í byrjun ágúst. Þetta kom fram í máli Davíðs Oddssonar að loknum samráðsfundi með formönnum allra stjórnmálaflokkanna í gær.

Meirihluti kennara vill verkfall

Yfirgnæfandi meirihluti kennara og skólastjóra vill boða verkfall í grunnskólum frá og með 20. september hafi kjarasamningur ekki verið gerður fyrir þann tíma. Leynilegri atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun lauk þann 3. júní.

Lögregla afhendir rannsóknargögn

Hæstiréttur hefur dæmt lögreglustjórann í Reykjavík til að afhenda verjanda útlendings, sem er grunaður um að tengjast ólöglegum fólksflutningum til Vesturheims, rannsóknargögn í málinu. Maðurinn er í hópi þriggja útlendinga af arabískum uppruna sem sitja í gæsluvarðhaldi eftir að hafa verið handteknir með stolin og fölsuð vegabréf.

Öryggisráð Sþ samþykkir ályktun

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti ályktun um framtíð Íraks samhljóða í gær. Þetta þykir marka þáttaskil en ríkin sem skipa öryggisráðið hafa deilt hart um Íraksmálið. Vonir standa til að þetta þýði að bjartari tímar séu í vændum þar í landi.

Lénið frjálstútvarp.is keypt

Kjartan Gunnarsson framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins og Petrea Ingibjörg Jónsdóttir starfsmaður á skrifstofu flokksins hafa fest kaup á léninu frjálstútvarp.is.

Kristján Eldjárn synjaði ekki

Kristján Eldjárn fyrrverandi forseti Íslands treysti sér ekki til að synja þáverandi forsætisráðherra um að undirrita ákvörðun um þingrof, þótt formenn þriggja stjórnmálaflokka leggðu hart að honum að gera það. Þetta kemur meðal annars fram í einkaskjölum Kristjáns sem Guðni Jóhannesson sagnfræðingur hefur fengið að skoða.

Saxi með lægsta tilboð

Um 100% munur er á hæsta og lægsta tilboði í viðbyggingu við leikskólann Lyngholt á Reyðarfirði. Hæsta tilboðið var frá Íslenskum aðalverktökum í Reykjavík, rúmar 132 milljónir króna, sem er 151% af kostnaðaráætlun.

Ekkert samráð við stjórnarandstöðu

Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, segist ekki vita betur en að Davíð Oddsson forsætisráðherra hafi spurt formenn allra stjórnmálaflokka að því hvort þeir væru til í að taka þátt í því að hafin yrði endurskoðun stjórnarskrárinnar.

Kettir skrásettir á Suðurnesjum

Það getur heldur betur verið að kaupa köttinn í sekknum að þiggja gefins nokkurra vikna kassavanan sætan kettling, því að hið opinbera er farið að líta þennan ferfætta skottpening hýru auga til gjaldtöku.

Víða engin lágmarkskjörsókn

Ekki eru nein fordæmi fyrir því í nágrannaríkjum Íslands að krefjast 75 prósenta lágmarkskjörsóknar í þjóðaratkvæðagreiðslu. Víða er engrar lágmarkskjörsóknar krafist.  

Reykingabann í haust

Frumvarp um bann við reykingum á veitingastöðum, sambærilegt því sem Írar og Norðmenn hafa lögfest, verður undirbúið í heilbrigðisráðuneytinu í sumar og er stefnt að því að leggja það fram á næsta þingi.

Hernes til Danmerkur

Danskur dráttarbátur er nú lagður af stað með vikurflutningaskipið Hernes, sem strandaði í Þorlákshöfn í síðasta mánuði, áleiðis til Póllands þar sem gert verður við það.

Hinn egypski Múhammeð handtekinn

Ítalska lögreglan hefur handtekið tvo menn, grunaða um aðild að hryðjuverkaárásunum á lestarkerfi Madrídar ellefta mars síðastliðinn. Annar þeirra gengur undir nafninu Hinn egypski Múhammeð og er talinn einn af höfuðpaurum árásanna. <font size="2"></font>

Venus gengur þvert á sólina

Þverganga Venusar sást víða um land í dag, en þetta er fyrsta skipti í 122 ár sem þetta fyrirbrigði sést frá Jörðinni. Þverganga Venusar er það nefnt þegar Venus gengur á milli Jarðar og sólu, samanber tunglmyrkva

Aukið fylgi ríkisstjórnar

Ríkisstjórnarflokkarnir bæta við sig talsverðu fylgi frá könnun Fréttablaðsins frá tuttugasta maí samkvæmt nýjustu skoðanakönnun blaðsins og fengju nú tæplega fjörutíu og þriggja prósenta fylgi

Frakkar styðja ályktun

Frakkar hafa ákveðið að styðja nýja ályktun Breta og Bandaríkjamanna í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, um valdaframsal til Íraka. Frakkar eru enn ekki fullkomlega sáttir við tillöguna, en Barnier utanríkisráðherra segir að þeir muni engu að síður greiða henni atkvæði sitt í öryggisráðinu í dag.

Þing kemur saman fimmta júlí

Þing kemur saman fimmta júlí til að ákveða fyrirkomulag þjóðaratkvæðagreiðslu um fjölmiðlalög, en stefnt er að því að kjördagur verði snemma í ágúst.

Hjarta hlýtur greftrun

Hjarta Loðvíks sautjánda, síðasta krónprins Frakklands, hlaut kirkjulega greftrun við hátíðlega athöfn í París í dag. Loðvík sautjándi lést 10 ára gamall, en foreldrar hans voru hálshöggvnir í frönsku byltingunni.

Kalla þarf saman Alþingi hið fyrsta

Samfylking og Vinstri grænir telja nauðsynlegt að Alþingi verði kallað saman sem fyrst svo taka megi ákvörðun um fyrirkomulag og tímasetningu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Samráðs allra þingflokka er þörf.

Stjórnarandstæðingar vilja skoða viðskiptaþvinganir

Samfylkingin og Vinstri-grænir vilja skoða viðskiptaþvinganir á Ísraela til að þrýsta á um frið í Miðausturlöndum. Utanríkisráðherra kveðst því andvígur og segir það líklegast til að bitna helst á Palestínumönnum.

Sjá næstu 50 fréttir