Stelpurnar á áætlun eftir sigur í Slóvakíu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði tvívegis úr vítaspyrnu í Slóvakíu í kvöld.
Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði tvívegis úr vítaspyrnu í Slóvakíu í kvöld. Vísir/Vilhelm

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta á enn möguleika á að tryggja sér sæti á EM 2021 (2022), sem fer fram á Engalndi, eftir 3-1 sigur á Slóvakíu á útivelli í dag. Fyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði tvö mörk og Berglind Björg Þorvaldsdóttir eitt.

Berglind Björg fékk tækifæri í fremstu víglínu íslenska liðsins sem spilaði 4-4-2. Berglind var í fremstu víglínu ásamt Elínu Mettu og Agla María Albertsdóttir fékk tækifæri á vængnum. Annað var eftir bókinni.

Íslenska liðið var alls ekki líkt sjálfum sér í fyrri hálfleik. Liðið varðist aftarlega en náði lítið að skapa sér gegn Slóvökunum sem voru sterkari á öllum sviðum fótboltans. Meiri ákefð var í heimakonum og þær spiluðu auðveldlega í gegnum fyrstu pressu Íslands.

Það var því ekki gegn gangi leikins þegar Slóvakía komst yfir á 25. mínútu. Þá skoraði Mária Mikolajová með skoti fyrir utan teiginn en spurningarmerki verður að setja við Söndru Sigurðardóttir í markinu því skotið var langt frá því að vera fast.

Skömmu síðar var Mária aftur hættuleg en sem betur fer fór skotið hennar framhjá. Það var smá líflína í íslenska liðinu undir lok fyrri hálfleiksins en Slóvakía var með eins marks forystu þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Rafmagnsleysið tók ekki kraftinn úr stelpunum

Það sást á fyrstu sekúndum síðari hálfleiks að allt annað íslenskt lið væri mætt til leiks. Þær fengu gott færi í upphafi síðari hálfleiks áður en allt fór í baklás; völlurinn varð rafmagnslaus og því þurfti að fresta leiknum um stundarfjórðung.

Ísland hélt þó uppteknum hætti eftir að leikurinn fór aftur af stað og markavélin Berglind Björg Þorvaldsdóttir jafnaði metin á 61. mínútu eftir flottan samleik Öglu Maríu og Sveindísar Jane Jónsdóttur. Íslenska liðið var þá byrjað að tengja saman fleiri sendingar og náð að nýta hraða Sveindísar betur sem og að finna miðjumennina tvo í fæturnar.

Sex mínútum síðar var dæmd vítaspyrna sem Sara Björk Gunnarsdóttir brenndi af. Markvörðurinn fór þó af línunni áður en Sara sparkaði knettinum og því þurfti að endurtaka spyrnuna. Sara skoraði úr henni og skoraði svo aftur úr vítaspyrnu á 77. mínútu og gerði út um leikinn. Lokatölur 3-1.

Vantar þrjú stig

Mikilvægur sigur íslenska liðsins sem er í harðri baráttu um sæti á EM. Nánar má lesa um stöðuna í riðlinum og annað slíkt í fréttinni hér þar sem útskýrt er fyrirkomulagið hvernig Ísland kemst á EM en Ísland tryggði sér með sigrinum annað sætið í riðlinum.

Elín Metta Jensen átti fyrirmyndarleik í fremstu víglínu. Hélt vel í boltann, spilaði honum vel frá sér þegar það átti við og lék vel á andstæðinga Slóvakíu þegar við átti. Sveindís Jane komst betur inn í leikinn þegar leið á sem og miðjumennirnir tveir. Varnarlínan átti fínan leik og Berglind Björg skorar yfirleitt þegar hún spilar.

Næsti leikur íslenska liðsins er á þriðjudaginn er liðið spilar í Ungverjalandi. Krafan er einföld; þrjú stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira