Fótbolti

„Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópu­keppni“

Hjörvar Ólafsson skrifar
Lárus Orri Sigurðsson verður ekki áfram við stjórnvölin hjá ÍA. 
Lárus Orri Sigurðsson verður ekki áfram við stjórnvölin hjá ÍA.  Vísir/Einar

Lárus Orri Sigurðarson stýrði í dag sínum síðasta leik sem þjálfari ÍA, en eftir 4-4 jafntefli liðsins við Keflavík í lokaumferð Bestu-deildar karla í fótbolta tilkynnti félagið að leiðir Lárusar Orra og Skagamanna myndu skilja nú í lok tímabilsins.

„Við vorum mun betri í fyrri hálfleik og hefðum átt að vera meira en einu marki yfir í hálfleik. Við mættum svo sofandi inn í seinni hálfleikinn og þeir ná forystunni. Það var gott að ná að jafna og ná allavega jafntefli úr því sem komið var,“ sagði Lárus Orri að leik loknum.

„Við erum að ná besta árangri ÍA í nítján ár og það er býsna góður árangur. Við fjárfestum í þremur öflugum leikmönnum fyrir tímabil en verðum að sama skapi fyrir áföllum á tímabilinu og náum að vinna okkur í gegnum þau. Tölfræðin sýnir að liðið er á réttri leið og jákvæð teikn á lofti hjá félaginu,“ sagði Lárus Orri.

Tilkynnt var eftir leik að Lárusi Orra hefði verið sagt upp störfum hjá Skagamönnum eftir um það bil eitt og hálft ár í starfi.

„Það var engin krafa um það frá stjórn á neinum tímapunkti að fara með liðið í Evrópukeppni. Ef það hefði verið uppi á teningnum þá hefði ég farið fram á það við stjórnina að liðið yrði styrkt,“ sagði hann um þau skilaboð sem hann hefði fengið frá stjórn félagsins.

„Við erum til að mynda með Rúnar Má, sem var leiðtogi okkar þegar við snérum taflinu við á síðasta tímabili, meiddan meirihluta þessa tímabils. Fleiri lykilleikmenn voru að glíma við meiðsli. Samt sem áður endum við með besta árangur í tæpa tvo áratugi,“ sagði Lárus um stöðu mála.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×