Leik lokið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og  unnu Forsetabikarinn

Þorsteinn Hjálmsson skrifar
Stjörnumenn unnu upp stórt forskot Valsmanna og tryggðu sér Forsetabikarinn.
Stjörnumenn unnu upp stórt forskot Valsmanna og tryggðu sér Forsetabikarinn. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson

Stjörnumenn rassskelltu Valsmenn með 6-0 stórsigri í lokaleik liðanna á tímabilinu og tryggðu sér Forsetabikarinn. Stjarnan var komið 5-0 yfir í hálfleik. Valsmenn máttu tapa með fimm mörkum til að ná Forsetabikarnum en fengu stóran skell. 

Birnir Snær Ingason og Guðmundur Baldvin Nökkvason skoruðu báðir tvö mörk fyrir Stjörnuna en Örvar Eggertsson og Jóhann Árni Gunnarsson skoruðu hin mörkin.

Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira