Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Agnar Már Másson skrifar 20. október 2026 21:12 Musk er sagður hafa rætt við Trump um ákvörðunina. Getty/Andrew Harnik Auðkýfingurinn Elon Musk gaf fyrirmæli um að takmörk yrðu sett á notkun Úkraínuhers á Starlink-kerfinu í síðustu viku.
Bandaríska dagblaðið Wall Street Journal hefur þetta eftir fjölda heimildarmanna. Miðillinn segir að Musk hafi í kjölfarið rætt ákvörðunina við Donald Trump Bandaríkjaforseta í gegnum síma en haft er eftir einum heimildarmanni að þeir hafi einnig rætt málið áður en takmarkanirnar tóku gildi. Úkraínumenn urður varir við takmarkanirnar aðfaranótt 14. október en þær snerust sérstaklega að Starshield-kerfinu sem er sérstakur hluti Starlink sem stjórnað er af varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna. Úkraínuher sagði að takmarkanirnar hefðu falist í því að þegar móttökustöðvarnar næðu tilteknum hraða slökktu þær á sér. Vegna þessa hafi úkraínskir hermenn misst samband við dróna sem þeir hafi verið að fljúga þegar drónarnir voru komnir á sextíu kílómetra hraða. Þetta gerðist í framhaldi af því að bandarískir embættismenn voru sagðir hafa hótað því að hætta stuðningi við Úkraínu ef Úkraínumenn hættu ekki árásum á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi. Bæði Musk og Trump hafa lýst óánægju í garð Úkraínumanna vegna árása á rússneska olíuinnviði og nýlega gerði Trump samkomulag við Vladimír Pútín Rússlandsforseta um afhendingu á 300 þúsund tonnum af dísilolíu fyrir Bandaríkin og alþjóðamarkað og dró úr viðskiptaþvingunum gagnvart Rússum. Í kjölfar kvartana Volodimírs Selenskí Úkraínuforseta á opinberum vettvangi varð uppi mikil óvissa í Hvíta húsinu um hver hefði tekið ákvörðunina um að takmarkanirnar, auk þess sem ráðist var í óformlega rannsókn á málinu innan að sögn WSJ. WSJ greinir þá frá því að fulltrúi SpaceX hafi á hringt í starfsmenn Hvíta hússins í von um að komast að sameiginlegum skilningi í málinu og koma sér saman um skilaboð þess efnis að fyrirtækið og ríkisstjórn Trumps hafi ráðist í þessa aðgerð samkvæmt fyrirmælum Musks. Musk hafði áður, í færslu á X, þvertekið fyrir að hafa sett takmarkanir á notkun úkraínskra hermanna á Starlink-móttökustöðunum. Slíkar ákvarðanir væru alfarið í höndum Bandaríkjahers og forsetaembættisins. Haft er eftir nokkrum bandarískum ráðamönnum í umfjöllun WSJ að Musk hafi ákveðið þetta að eigin frumkvæði og að Trump hefði ekki fyrirskipað neinar aðgerðir gagnvart Úkraínumönnum. Jafnframt hefur WSJ eftir heimildarmanni að Musk hefði rætt við fjölda háttsettra embættismanna, þar á meðal Trump, í aðdraganda þess að takmarkanirnar voru settar. Donald Trump hefur kallað eftir því að Úkraínumenn fái nýjan forseta og hefur Musk, eigandi SpaceX sem rekur Starlink, tekið undir það.
Elon Musk Donald Trump Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Bandaríkin SpaceX Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður Fleiri fréttir Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Sjá meira