Löng bið eftir sigri lengist enn Sindri Sverrisson skrifar 18. október 2026 12:31 Bryan Mbuemo skoraði gegn Leeds í dag en það dugði skammt. Getty Leeds og Manchester United gerðu 1-1 jafntefli í sjöundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag. Bryan Mbeumo kom gestunum frá Manchester yfir með skoti úr teignum eftir sendingu Youri Tielemans frá hægri, þvert fyrir markið. Tielemans spilaði fremst á miðjunni í leiknum með Carlos Baleba og Andrey Santos fyrir aftan sig. Staðan var 1-0 í hálfleik en argentínska miðverðinum Lisandro Martínez, sem verið hefur í sviðsljósinu eftir gagnrýni sína á stjórnendur United í síðustu viku, var þá skipt af velli. Noussair Mazraoui kom inn á í hans stað og United skipti yfir í þriggja miðvarða kerfi sem virtist ekki gefa góða raun. Heimamenn voru mun sterkari í upphafi seinni hálfleiks og Dominic Calvert-Lewin jafnaði metin verðskuldað á 51. mínútu með skoti eftir hornspyrnu. Fleiri urðu mörkin hins vegar ekki og bið Manchester United eftir sigri heldur áfram en liðið hefur ekki unnið deildarleik síðan gegn Ipswich í ágúst. Það er eini sigur liðsins í deildinni til þessa. Leeds er með 10 stig í 7. sæti en Manchester United með 7 stig í 13. sæti, tveimur stigum frá fallsæti. Enski boltinn Fótbolti Leeds United Manchester United