Fótbolti

Sjáðu PSG refsa City, ó­trú­legan viðsnúning Real og öll hin

Valur Páll Eiríksson skrifar
Ousmane Dembélé og Desiré Doué komust báðir á blað í gær.
Ousmane Dembélé og Desiré Doué komust báðir á blað í gær. Aurelien Meunier/PSG via Getty Images

Önnur umferð Meistaradeildar Evrópu kláraðist í gær er sjö leikir fóru fram. Aldrei hafa eins mörg mörk verið skoruð á einum leikdegi í keppninni en mörkin voru alls 46 mörk í níu leikjum.

Að meðaltali voru því skoruð rúmlega fimm mörk í leik á þessu gleðikvöldi í október. Öll 46 mörkin má sjá að neðan.

Manchester City 2-4 Paris Saint-Germain

Versti fyrri hálfleikur City á heimavelli í rúman áratug en liðið var 3-0 undir í hléi sem hefur ekki gerst síðan 2012. Pep Guardiola fylgdist með sínum gömlu félögum tapa fyrir ríkjandi Evrópumeisturum.

Roma 3-4 Real Madrid

Mögnuð endurkoma Madrídinga á gömlum heimavelli þjálfarans José Mourinho í Rómarborg. Roma var 3-1 yfir þegar tíu mínútur voru eftir en mörk Carlos Espí, Endrick og Antonio Rudiger tryggðu Real Madrid merkilegan sigur.

Bodö/Glimt 1-0 Dortmund

Frábær sigur Norðmannanna á þýska stórliðinu í Bodö í gærkvöld. Fredrik Sjövold skoraði sigurmarkið snemma í síðari háfleik.

Aston Villa 6-0 Fenerbahce

Villaliðar aldeilis í stuði og unnu sex marka sigur á Tyrkjunum í Birmingham og eru með fullt hús stiga eftir tvo leiki.

Real Betis 3-2 Porto

Mikið stuð í Andalúsíu og falleg mörk á boðstólum. Vítaspyrnumark Isco tryggði sigurinn en Porto hafði komist 2-1 yfir í fjörlegum leik.

Shakhtar Donetsk 3-1 AEK Aþena

Úkraínumennirnir spiluðu sinn fyrsta leik á Stamford Bridge í Lundúnum sem verður heimavöllur liðsins í Meistaradeildinni í vetur. Staðan var 1-1 fram á 80. mínútu þegar Úkraínumennirnir kláruðu dæmið.

Slovan Bratislava 0-3 Stuttgart

Lærisveinar Yaya Touré í vandræðum gegn þéttum Þjóðverjum. Stuttgart er með fullt hús eftir tvo leiki en Bratislava stigalaust á botninum með markatöluna 1-9.

LASK 3-6 Liverpool

Laskaðir Liverpool-menn voru í stuði fyrri hlutann í gær og margir sem hafa sætt gagnrýni sýndu sig. Bradley Barcola skoraði sín fyrstu mörk og setti þrennu auk þess sem Jeremie Frimpong komst á blað í sigri sem var síst of stór.

Feyenoord 3-2 Como

Hollendingarnir öflugir í Rotterdam gegn sterkum lærisveinum Cesc Fabregas í markaleik. Feyenoord komið á blað og er með þrjú stig líkt og Como.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×