Fótbolti

Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu

Sindri Sverrisson skrifar
Freyr Alexandersson vill ekki að leikmenn mæti lengur í viðtöl eftir rautt spjald.
Freyr Alexandersson vill ekki að leikmenn mæti lengur í viðtöl eftir rautt spjald. Getty/Tullio Puglia

Eftir viðtal sem Ole Selnæs, einn af lærisveinum Freys Alexanderssonar hjá norska fótboltaliðinu Rosenborg, fór í á dögunum hefur Freyr ákveðið að setja nýja reglu hjá félaginu.

Freyr gagnrýndi dómgæsluna í 1-1 jafntefli Rosenborg við Sandefjord í norsku úrvalsdeildinni um helgina og kallaði eftir því að fullorðnir menn fengju að takast meira á. Í stað fótboltaleiks á háu stigi hefði niðurstaðan orðið óreiða og ringulreið.

Ole Selnæs, fyrirliði Rosenborg fékk gult spjald í lok fyrri hálfleiks og svo annað gult spjald og þar með rautt eftir mótmæli sín þegar dómarinn hætti við vítaspyrnudóm í seinni hálfleik.

Þrátt fyrir brottreksturinn fór Selnæs í sjónvarpsviðtal eftir leik og þar hélt hann áfram að láta dómarann heyra það.

Freyr hefur því ákveðið að rautt spjald þýði fjölmiðlabann héðan í frá hjá leikmönnum hans.

„Ég hef haft reglu sem ég hef ekki framfylgt, því við höfum ekki lent í þessu áður. Hún er sú að þegar leikmaður fær rautt spjald á hann ekki að tala við fjölmiðla á eftir. Það er ég sem á að tjá mig. Þeirri reglu höfum við nú komið á,“ segir Freyr við Adresseavisen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×