Svekkjandi tíu manna janftefli hjá Frey Andri Broddason skrifar 10. október 2026 19:05 Rosenborg var með leikinn í höndum sínum en missti hann frá sér. EPA/ELISABETTA BARACCHI Rosenborg tók á móti Sandefjord í norsku úrvalsdeild karla í dag. Freyr Alexandersson þjálfar Rosenborg en liðin skildu jöfn eftir leik sem endaði 1-1 þar sem bæði lið léku manni færri.
Lærisveinar Freys byrjuðu leikinn vel og fengu vítaspyrnu nánast í fyrstu sókn leiksins. Amin Chiakha fór á vítapunktinn og skoraði örugglega úr vítinu eftir að hafa fiskað það sjálfur. Heimamenn héldu áfram að sækja þétt eftir markið en erfiðlega gekk að koma boltanum í netið. Rosenborg hélt 1-0 forystu í hálfleik en staðan átti eftir að batna enn frekar fyrir heimamennina. Tobias Børkeeiet, leikmaður Sandefjord, braut harkalega af sér og fékk að launum sitt annað gula spjald. Rosenborg var marki yfir og manni fleiri eftir að hafa verið betri aðilinn í leiknum og virtust lærisveinar Freys geta siglt sigrinum þægilega heim. Það reyndist þó ekki vera auðvelt því Rosenborg var aðeins manni fleiri í tíu mínútur þegar Ole Sælnes, leikmaður Rosenborg, fékk einnig að líta sitt annað gula spjald. Þrátt fyrir að aftur væri jafnt í liðunum var Rosenborg enn sterkari aðili leiksins en síðasta áfall liðsins var ekki enn komið. Þegar um fimmtán mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma náði Vetle Egeli að jafna metin fyrir Sandefjord þvert gegn gangi leiksins. Leikmenn Rosenborg reyndu hvað þeir gátu til að ná sigurmarki í lokin en það dugði ekki til. Eftir leikinn er Rosenborg í fimmta sæti norsku úrvalsdeildarinnar með 34 stig þegar liðið er búið að spila 22 leiki.
Norski boltinn Fótbolti Íslendingar erlendis Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Enski boltinn „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Fleiri fréttir Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Sjá meira