Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Kjartan Kjartansson skrifar 7. október 2026 11:31 Þrettán manns, þar af fjögur börn, létust í þessari íbúðablokk í Pryluky í Tsjernihiv-héraði í loftárás Rússa í nótt, aðfararnótt afmælisdags Vladímírs Pútín Rússlandsforseta (t.h.). Vísir Að minnsta kosti nítján manns féllu, þar á meðal fjögur börn, í stórfelldum flugskeyta- og drónaárásum Rússa á Kænugarð og fleiri úkraínskar borgir í nótt. Úkraínsk stjórnvöld höfðu njósnir af meiriháttar árásum á afmælisdegi Vladímírs Pútín Rússlandsforseta.
Auk þeirra látnu eru að minnsta kosti sextíu aðrir sárir eftir árásir næturinnar, að sögn úkraínskra yfirvalda. Börnin fjögur voru á meðal þrettán manns sem létust þegar rússnesk árás grandaði íbúðablokk í Pryluky í Tsjernihiv-héraði í norðanverðu landinu. Fimmtíu manns særðust þar til viðbótar. Mannfall varð einnig í þremur öðrum borgum, þar á meðal Kænugarði. „Þetta er nákvæmlega það sem óvinurinn reiðir sig á. Að við séum hrædd við að sofna, við að sleppa börnunum okkar úr augsýn. Að skipuleggja eitthvað. Þannig að allir hugsi að næst geti þetta orðið heimilisfangið mitt,“ sagði Vitalii Diakivnych, yfirmaður úkraínska herliðsins í Poltava-héraði þar sem tveir fórust og sjö særðust. Rússneska varnarmálaráðuneytið heldur því fram að árásirnar hafi beinst að verskmiðjum sem framleiða og geyma skotflaugar og dróna í Úkraínu. Einnig hafi verið ráðist á höfn og slipp í Odesa auk skipa sem flyttu farm fyrir úkraínska herinn. Úkraínsk stjórnvöld sögðust í gær hafa njósnir um að Rússar áformuðu sérstaklega harðar árásir. Þær voru gerðar á 74. afmælisdegi Pútíns Rússlandsforseta. Þrátt fyrir að hafa vitneskju um að eitthvað stórt væri í vændum gátu Úkraínumenn ekki varist árásum Rússa að fullu. Þeir hafa ekki átt nægileg svör við skotflaugum Rússa og nýjum þotuknúnum drónum. Til þess skortir þá skotfæri í bandarísk Patriot-loftvarnarkerfi. Bandaríkjamenn hafa gengið langt á sínar birgðir með hernaði sínum gegn Íran á þessu ári.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Hernaður Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira