Upp­gjörið: Fram - Breiða­blik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum

Árni Jóhannsson skrifar
Anton Ari Einarsson hefur hafið upp raust sína hér til að gera það skýrt að hann var tilbúinn að kýla þennan bolta. Anton átti flottan leik í marki Blika.
Anton Ari Einarsson hefur hafið upp raust sína hér til að gera það skýrt að hann var tilbúinn að kýla þennan bolta. Anton átti flottan leik í marki Blika. Vísir / Diego

Breiðablik vann góðan 3-1 útisigur á Fram í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Ekki var að sjá þreytu eftir bikarúrslitaleik helgarinnar. Leikið var á Lambhagavelli í fyrstu umferð Efri hluta Bestu deildar karla.

Leikurinn var ekki ris mikill fyrstu 45 mínúturnar og lengi framan af var atvik leiksins að það þurfti að skipta um bolta því einn af boltunum sem var í notkun var of linur. Það var lítil ákefð í liðunum en þó held ég að Breiðablik hafi mætt með þá áætlun að verja sitt mark vel og það gerðu þeir.

Anton Logi Lúðvíksson bar fyrirliðabandið í fjarveru Höskulds Gunnlaugssonar í kvöld.Vísir / Diego

Á 30. mínútu fengu gestirnir hornspyrnu sem Gabríel Snær Hallsson framkvæmdi en boltanum var komið út úr teig Framara en aftur á Gabríel. Blikinn tók boltann inn á vítateig og átti fasta spyrnu á nærstöng og varð Kennie Chopart fyrir því óláni að skora í eigið mark. Fram hafði verið að færa sig upp á skaftið og öruggleg verið pirraðir út í stöðuna þarna.

Kennie er nú vanari að skora í mark mótherjans en varð fyrir óláni í kvöld.Vísir / Diego

Ekki breyttist leikmyndin og krafturinn óx ekki hjá heimamönnum. Þeir reyndu að skapa færi en allt kom fyrir ekki og á lokamínútu fyrri hálfleiks dundi aftur yfir ógæfa hjá Fram liðinu. Blikar þustu áfram í skyndisókn og barst boltinn á Davíð Ingvarsson inn á vítateig heimamanna. Davíð hafði nægan tíma til að athafna sig og renndi hann boltanum út að vítateigslínunni þar sem Gabríel Snær kom aðvífandi og sendi boltann í fjærhornið. 

Staðan 2-0 á leiðinni inn í hálfleik og ljóst að Fram þyrfti að hrista upp í liðinu ef þeir ætluðu að fá eitthvað út úr þessum leik. 

Ásgeir Helgi Orrason gerði oft vel í vörn en skoraði einnig þriðja mark Blika.Vísir / Diego

Heimamenn gerðu tvöfalda skiptingu í hálfleik og komu Kristófer Konráðsson og Fred Saraiva inn á. Það skilaði miklum krafti fyrstu mínútur hálfleiksins og uppskáru heimamenn mark strax á 49. mínútu.

Kristófer fékk þá boltann vinstra megin og átti hárfína sendingu inn á markteiginn þar sem Róbert Hauksson kom á fleygiferð og renndi sér á boltann og sendi hann á milli fóta Antons Ara í markinu. Fram náði að fylgja markinu eftir í nokkur andartök á eftir en því miður fyrir þá fór loftið úr blöðrunni fljótt.

Fram - Breiðablik Besta Deild Karla Haust 2026Vísir / Diego

Á 66. mínútu leiksins gerði Ásgeir Helgi Orrason út um leikinn svo fyrir Breiðablik. Hornspyrna var tekin og áttu heimamenn í stökustu vandræðum með að koma boltanum í burtu. Að lokum datt knötturinn fyrir Ásgeir sem dúndraði honum yfir línuna og staðan orðin 1-3 og útlitið dökkt fyrir Fram.

Enginn er annars bróðir í leik segir orðatiltækið en menn hjálpast þó að þegar búið er að leggja allt í sölurnar.Vísir / Diego

Fram gerðu eins og þeir gátu, sem var því miður ekki mikið, til að koma sér aftur inn í leikinn en Anton Ari Einarsson varði mjög vel oft og tíðum og lagði líkama sinn í verkefnið. Fram reyndi aftur sendingu inn í markteig sem hafði gengið vel í marki þeirra en ekki vildi betur til að Róbert Haukss. og Anton skullu saman og lágu óvígir eftir en gátu haldið leik áfram.

Fram - Breiðablik Besta Deild Karla Haust 2026Vísir / Diego
Fram - Breiðablik Besta Deild Karla Haust 2026Vísir / Diego

Blikar sigldu svo sigrinum heim og fögnuðu vel og innilega í leikslok. Þeir eru komnir með 33 stig en munu að öllum líkindum ekki ná í skottið á Fram sem er með 12 stigum meira í sætinu fyrir ofan með fjóra leiki eftir.

Atvik leiksins

Atvik leiksins er Meira staðreynd í þetta skiptið. Eftir fyrri hálfleikinn voru Blikar með eitt skot á markið en búnir að skora tvö mörk. Það sem skiptir máli er að koma boltanum yfir línuna og það náðu gestirnir úr Kópavoginum að gera í tvígang í fyrri hálfleik.

Stjörnur og skúrkar

Heimamenn í Fram fá allir skúrkastimpilinn í dag. Þeir bara hreinlega mættu ekki til leiks af sama krafti og þeir eiga að geta.

Blikar gerðu vel varnarlega, skoruðu tvö mörk og Gabríel Snær Hallsson kom að tveimur þeirra og er stjarna leiksins.

Umgjörð og stemmning

Það hefur oft verið betur mætt í stúkuna og heyrst betur í fólki en leikurinn gerði ekki mikið til að vekja upp stuðningsmennina.

Dómarinn

Sigurður Hjörtur Þrastarson þurfti oft að segja mönnum til í kvöld. Hann hinsvegar stóð sína vakt vel, hélt línu og leyfði leiknum að fljóta vel.

Fram - Breiðablik Besta Deild Karla Haust 2026Vísir / Diego

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira