„Fannst dómarinn missa svolítið tökin á leiknum” Theódóra Guðný Vilhjálmsdóttir skrifar 13. september 2026 17:02 Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, var ekki sáttur með niðurstöðu leiksins í dag. Vísir/Diego Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, var ósáttur með nokkrar ákvarðanir dómarans eftir 2-0 tap liðsins gegn Stjörnunni á Samsungvellinum í dag. Honum fannst dómarinn missa tökin á leiknum en tók þó fram að tapið skrifaðist ekki eingöngu á dómgæsluna. „
Þetta er erfitt tap því eins og þú veist er hvert einasta stig í þessari deild gríðarlega mikilvægt,“ sagði Linta eftir leik. ÍBV byrjaði leikinn illa að mati Linta og var komið tveimur mörkum undir eftir rúman hálftíma. Benedikt V. Warén skoraði bæði mörk Stjörnunnar með fjögurra mínútna millibili. „Við byrjuðum leikinn ekki nógu vel. Það voru nokkrar ákvarðanir sem féllu gegn okkur og hjálpuðu Stjörnunni að ná aðeins betri tökum á leiknum og settu okkur auðvitað í þá stöðu að þurfa að elta.“ Linta var mun ánægðari með frammistöðu sinna manna eftir hlé. Eyjamenn voru meira með boltann og sóttu töluvert en tókst ekki að minnka muninn. „Ég var ekki ánægður með frammistöðuna, ákvarðanirnar eða stöðuna í fyrri hálfleik. Í þeim síðari var ég hins vegar mjög ánægður með nálgunina, hugarfarið og hvernig við útfærðum okkar sóknar- og varnarleik. Það eina sem vantaði voru mörkin.“ „Stjarnan er auðvitað erfiður andstæðingur og sterkt lið. Ég óska þeim til hamingju með sigurinn.“ Eyjamenn kölluðu meðal annars eftir vítaspyrnu þegar Alex Freyr Hilmarsson féll innan vítateigs Stjörnunnar á 79. mínútu en Helgi Mikael Jónasson dæmdi ekkert. Linta vildi ekki fara of langt út í dómgæsluna eftir leik en leyndi því ekki að hann var ósáttur. „Ég veit það ekki, það er kannski betra að tjá sig ekki of mikið um það. Ég var ósammála mörgum ákvörðunum. Mér fannst dómarinn missa svolítið tökin á leiknum.“ „Auðvitað hafa allir sína skoðun. Ég hef mikla reynslu bæði sem leikmaður og þjálfari og tel mig hafa rétt fyrir mér varðandi sumar þessara ákvarðana. Ég hef örugglega ekki rétt fyrir mér í öllum tilfellum en í sumum þeirra tel ég svo vera. En leikurinn er búinn og það er synd að dómarinn sé í sviðsljósinu í svona leik“ Omar Sowe þurfti að fara af velli snemma í leiknum og er óljóst hvort hann verði klár í næstu leiki. Linta sagði sóknarmanninn ekki hafa verið hundrað prósent fyrir leikinn en vegna manneklu hafi verið ákveðið að láta reyna á hann. „Ég veit það ekki. Omar kom aðeins óundirbúinn inn í þennan leik og var kannski ekki alveg klár. Við höfðum ekki marga möguleika og ákváðum því að byrja með hann og sjá hversu lengi hann gæti haldið út. Því miður entist hann ekki lengi.“ Linta benti á að ÍBV væri að glíma við töluverða manneklu og nefndi meðal annars Milan Tomic og fleiri leikmenn sem hefðu verið fjarverandi. „Við erum í smá vandræðum eins og staðan er núna en þeir leikmenn sem komu inn eiga hrós skilið. Orkulega vorum við mjög góðir í síðari hálfleik og mér fannst við eiga skilið að skora að minnsta kosti eitt mark. Kannski kemur það í næsta leik.“
Besta deild karla Íslenski boltinn ÍBV Stjarnan Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Fótbolti Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Söguleg niðurlæging í Króatíu Fótbolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Sjá meira