Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Magnús Jochum Pálsson skrifar 3. september 2026 12:33 Skarsgård er einn öflugasti sænski leikari samtímans. Getty Sænski stórleikarinn Alexander Skarsgård verður heiðursgestur á setningu RIFF, alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, í ár sem sett verður í Háskólabíói fimmtudaginn 24. september. Skarsgård tekur við heiðursverðlaunum RIFF í ár fyrir framúrskarandi listfengi.
Skarsgård verður einnig viðstaddur Norðurlandafrumsýningu á nýjustu mynd sinni, Wicker, á hátíðinni en hún fjallar um konu, leikin af Óskarsverðlaunaleikkonunni Oliviu Colman, sem lætur vefa fyrir sig eiginmann, leikinn af Skarsgård. Meðal annarra leikara í myndinni eru Krúnuleikastjarnan Peter Dinklage og Elizabeth Debicki, þekktust fyrir leik sinn sem Díana prinsessa í The Crown. Alexander Skarsgård er einn þekktasti sænski leikari samtímans og hefur á síðustu tveimur áratugum skapað sér nafn sem fjölhæfur leikari, bæði í Hollywood og á alþjóðlegum vettvangi. Skarsgård kemur úr mikilli leikarafjölskyldu, sonur leikarans Stellans Skårsgard og læknisins My Skårsgard og bróðir leikaranna Bills, Gustafs, Valters og Kolbjarnar. Alexander byrjaði að leika sem barn á níunda áratugnum, lærði stuttlega leiklist í New York áður en hann sneri aftur til Svíþjóðar og gerði leiklistina að fullu starfi upp úr aldamótum. Skarsgård hlaut alþjóðlega frægð árið 2008 þegar hann lék Brad „Iceman“ Colbert í þáttunum Generation Kill og tók sama ár að sér hlutverk vampírunnar Eric Northman í True Blood sem voru sýndir á HBO á árunum 2008-14. Síðustu ár hefur hann vakið athygli fyrir leik sinn í kvikmyndunum Melancholia (2011), The Legend of Tarzan (2016) og The Northman (2022) og sjónvarpsþáttunum Succession (2021-23) og Big Little Lies (2017-19). Fyrir síðastnefndu þættina hlaut hann bæði Emmy- og Golden Globe-verðlaun. „Það er okkur hjá RIFF sérstök ánægja að veita Alexander Skarsgård heiðursverðlaun RIFF,“ segir Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi RIFF, um komu leikarans. „Um leið er okkur mikill heiður að fá hann hingað til lands til að verða viðstaddur sýningu okkar á Wicker, en Ísland er aðeins fjórða landið í heiminum til að frumsýna myndina. Áður var hún sýnd á Sundance-hátíðinni í Bandaríkjunum, kvikmyndahátíðinni í Melbourne í Ástralíu og svo í Zürich í Sviss,“ bætir Hrönn við. Wicker verður frumsýnd á RIFF þriðjudaginn 29. september og hátíðin sjálf fer fram dagana 24. september til 4. október.
Bíó og sjónvarp RIFF Svíþjóð Tengdar fréttir Skarsgård seiðandi senuþjófur Alexander Skarsgård hefur farið frumlegar leiðir í klæðaburði við kynningu á kvikmyndinni Pillion. Þar leikur Skarsgård aðalhlutverkið á móti Harry Melling í BDSM ástarsögu. 23. mars 2026 20:01 Mest lesið Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Hvað veistu um... Mean Girls? Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Matthías Már með krabbamein Lífið Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Tónlist Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Lífið Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Fleiri fréttir Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Sjá meira
Skarsgård seiðandi senuþjófur Alexander Skarsgård hefur farið frumlegar leiðir í klæðaburði við kynningu á kvikmyndinni Pillion. Þar leikur Skarsgård aðalhlutverkið á móti Harry Melling í BDSM ástarsögu. 23. mars 2026 20:01