Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð Samúel Karl Ólason skrifar 27. ágúst 2026 13:31 Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. AP/Matias Delacroix Starfsmenn varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna sem hafa til skoðunar hvernig fækka megi bandarískum hermönnum í Evrópu ætla að leggja fram að minnsta kosti fjórar tillögur. Það verður gert fyrir 6. nóvember, fyrr en áður stóð til. Ráðamenn í Evrópu hafa áhyggjur af því að Bandaríkjamenn hafi í hyggju að refsa tilteknum ríkjum Evrópu.
Í skjali sem blaðamenn Reuters hafa komið höndum yfir verður meðal annars litið til þess hvernig innviðir í tilteknum ríkjum Evrópu geta nýst Bandaríkjunum hvað varðar aflbeitingargetu ríkisins. Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, hefur boðið samdrátt í viðveru bandarískra hermanna í Evrópu en þeir eru um áttatíu þúsund talsins. Innan NATO eru áhyggjur um að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, vilji refsa ríkjum NATO fyrir að styðja Bandaríkin ekki nægjanlega í stríðinu gegn Íran. Sjá einnig: Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Eftir að stríðið dróst á langinn byrjaði Trump að gagnrýna NATO-ríki fyrir að hafa ekki komið Bandaríkjunum til aðstoðar, á sama tíma hefur hann sagt að Bandaríkin þurfi enga hjálp frá Evrópu. Í áðurnefndu skjali kemur fram að starfsmenn varnarmálaráðuneytisins munu meta hvort aðildarríki séu á trúverðugri vegferð varðandi að auka fjárútlát til varnarmála í takt við ákvarðanir leiðtoga NATO. Sjá einnig: Kaninn pakkar saman í Evrópu Bandaríkjamenn sendu nýverið spurningalista á ríkisstjórnir annarra aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins, þar á meðal Íslands. Þar eru bandamenn Bandaríkjanna meðal annars spurðir út í það hvernig þeir hafi stutt við utanríkisstefnu Donalds Trump. Spurningarnar eru liður í áætlunum Bandaríkjamanna um að draga úr viðbúnaði í Evrópu. Spurningarnar snerust einnig um það hvernig aðgang bandarískir hermenn hefðu að innviðum í þessum tilteknu ríkjum. Í því samhengi hefur í gegnum árin verið talað um hugtak sem kallast ABO á ensku (access, basing and overflight rights) sem þýðist sem aðgengi hermanna, hýsingu þeirra og heimildir til að fljúga um lofthelgi ríkjanna. Samkvæmt heimildarmanni Reuters hefur þetta hugtak nú verið útvíkkað til að ná einnig utan um annars konar stuðning sem bandamenn Bandaríkjanna geta veitt. Mun það nú einnig ná yfir aðgang að leynilegum upplýsingum á sviði leyniþjónusta og annars konar innviði sem gætu nýst Bandaríkjunum við aflbeitingargetu. Matið á því hvar fækka eigi hermönnum mun taka mið af þessu útvíkkaða hugtaki. Það á einnig að byggja á fundi Elbridge Colby, stefnumálastjóra varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna, með sendiherrum NATO í Belgíu í dag.
Bandaríkin NATO Hernaður Donald Trump Tengdar fréttir Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Forsvarsmenn herafla Bandaríkjanna hafa ákveðið að hætta tilraunum með sérstaka drónahersveit, sem hefur verið staðsett í Evrópu, og reynt að læra af reynslu Úkraínumanna. Hermennirnir eiga að snúa sér aftur að grunngildum sínum sem fótgönguliðar en eiga að miðla reynslu sinni til yfirmanna hersins. 21. ágúst 2026 10:09 Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Forseti Suður-Kóreu kallaði í morgun, þriðjudag, eftir sterku bandalagi við Bandaríkin. Það er eftir að Donald Trump skipaði yfirmönnum bandaríska hersins að draga verulega úr heræfingum með Suður-Kóreu, á þeim grunni að engin ógn stafaði af Norður-Kóreu vegna vinasambands hans og Kims Jong Un og að Suður-Kóreumenn hefðu ekki viljað aðstoða Bandaríkin gegn Íran. 18. ágúst 2026 23:23 Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Evrópu, sem er sömuleiðis yfirherforingi NATO, segir það jákvætt að ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta um Grænland hafi ýtt undir umræðu um mikilvægi varnarmála á Norðurslóðum. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tekur heils hugar undir. 17. ágúst 2026 21:55 Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Pólskir löggæslumenn handtóku á dögunum rússneskan mann sem sagður er hafa verið ráðinn af yfirvöldum í Rússlandi til að myrða bandarískan ríkisborgara. Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir þetta fyrsta málið af þessu tagi, þar sem Rússar hafi reynt að myrða bandarískan ríkisborgara í NATO-ríki. 13. ágúst 2026 23:47 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Sjá meira
Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Forsvarsmenn herafla Bandaríkjanna hafa ákveðið að hætta tilraunum með sérstaka drónahersveit, sem hefur verið staðsett í Evrópu, og reynt að læra af reynslu Úkraínumanna. Hermennirnir eiga að snúa sér aftur að grunngildum sínum sem fótgönguliðar en eiga að miðla reynslu sinni til yfirmanna hersins. 21. ágúst 2026 10:09
Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Forseti Suður-Kóreu kallaði í morgun, þriðjudag, eftir sterku bandalagi við Bandaríkin. Það er eftir að Donald Trump skipaði yfirmönnum bandaríska hersins að draga verulega úr heræfingum með Suður-Kóreu, á þeim grunni að engin ógn stafaði af Norður-Kóreu vegna vinasambands hans og Kims Jong Un og að Suður-Kóreumenn hefðu ekki viljað aðstoða Bandaríkin gegn Íran. 18. ágúst 2026 23:23
Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Evrópu, sem er sömuleiðis yfirherforingi NATO, segir það jákvætt að ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta um Grænland hafi ýtt undir umræðu um mikilvægi varnarmála á Norðurslóðum. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tekur heils hugar undir. 17. ágúst 2026 21:55
Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Pólskir löggæslumenn handtóku á dögunum rússneskan mann sem sagður er hafa verið ráðinn af yfirvöldum í Rússlandi til að myrða bandarískan ríkisborgara. Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir þetta fyrsta málið af þessu tagi, þar sem Rússar hafi reynt að myrða bandarískan ríkisborgara í NATO-ríki. 13. ágúst 2026 23:47