Enski boltinn

„Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Enzo Maresca er með augun opin fyrir miðjumönnum á markaðnum.
Enzo Maresca er með augun opin fyrir miðjumönnum á markaðnum. James Gill - Danehouse/Getty Images

Enzo Maresca þjálfari Manchester City er í leit að „nýjum Rodri“ í stað Spánverjans sem fór til Barcelona í síðustu viku. Maresca segir City hafa ítrekað sýnt fram á hæfni í að endurnýja hópinn.

Rodri batt enda á sjö ára farsælan feril hjá félaginu í sumar. Með hann á miðjunni vann Manchester City fjóra Englandsmeistaratitla, FA bikarinn tvisvar og Meistaradeild Evrópu.

City sótti Elliot Anderson frá Nottingham Forest fyrir 116 milljónir punda, sem var met fyrir Englending þangað til Chelsea keypti Morgan Rogers af Aston Villa fyrir 117 milljónir punda.

Maresca sér Anderson greinilega ekki sem beinan staðgengil fyrir Rodri.

„Ég mun reyna að finna nýjan Rodri, þetta er eins og það er,“ sagði Maresca þegar hann var spurður um Rodri fyrir fyrsta leik Manchester City í ensku úrvalsdeildinni gegn Bournemouth síðar í dag.

„Áður en Rodri kom hingað var hann ekki búinn að vinna Gullboltann, hann hafði ekki unnið Meistaradeildina eða orðið heimsmeistari. Svo kom hann til félagsins og afrekaði þessa stórkostlegu hluti. Nú er markmiðið að reyna að finna nýjan Rodri.“

Maresca viðurkenndi að það yrði erfitt verkefni en sagði City hafa gert þetta allt saman áður.

„Þegar David Silva fór höfðu allir áhyggjur, Kevin [De Bruyne] mætti á svæðið. Þegar Sergio Aguero fór höfðu allir áhyggjur, Erling [Haaland] mætti á svæðið. Þegar Fernandinho fór mætti Rodri. Svona er þetta. Þegar þeir fara þarf að gera vel í að endurnýja.“

Maresca sagði að hann ætti von á frekari hreyfingum hjá félaginu á leikmannamarkaðnum áður en glugginn lokar en var rólegur yfir sögusögnum um að Spánverjinn Nico Gonzalez, sem margir litu á sem eftirmann Rodri þegar hann kom til félagsins, og Omar Marmoush, væru á förum. Hollenski miðjumaðurinn Tijjani Reijnders líka nýfarinn frá félaginu. 

„Við þurfum að aðlagast og við viljum ekki halda leikmönnum hér sem vilja ekki vera áfram. Þetta er eðlilegt. Ég hef ekki áhyggjur af því. Þegar félagaskiptaglugginn lokar og við erum með allan hópinn saman verður þetta örugglega öðruvísi,“ sagði Maresca.

Manchester City mætir Bournemouth í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar klukkan 13:00 í beinni útsendingu á Sýn Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×