Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Stefán Árni Pálsson skrifar 19. ágúst 2026 22:33 Harry Kane fór mikinn á HM í sumar. Vísir/getty Harry Kane segir að löngunin til þess að snúa aftur í ensku úrvalsdeildina og reyna að slá markamet Alan Shearer sé ekki lengur jafn sterk og hún var.
Kane yfirgaf Tottenham sumarið 2023 og gekk til liðs við Bayern München. Hann hafði þá skorað 213 mörk í ensku úrvalsdeildinni og vantaði 47 mörk upp á að jafna met Shearers, sem er 260 mörk. BBC greinir frá. Síðan hann hélt til Þýskalands hefur Kane verið stórkostlegur síðan. Hann skoraði samtals 73 mörk fyrir félagslið og landslið á síðasta tímabili og hefur nú fengið gullskóinn sem markahæsti leikmaður Evrópu. Ekki jafn sterk löngun Kane er nú á síðasta ári upphaflegs fjögurra ára samnings síns við Bayern og félagið er sagt ætla að ræða við hann um nýjan samning. Eftir að hafa tekið við gullskónum var Kane spurður út í möguleikann á því að snúa aftur til Englands og elta markamet Shearer. „Þegar ég fór fyrst þá hugsaði ég svo sannarlega að ég myndi koma aftur. Sú löngun er ekki jafn sterk lengur,“ segir Kane. „Ég er gríðarlega ánægður hér í München. Þetta hefur opnað augu mín fyrir allt öðrum heimi fótboltans utan Englands og gert það að verkum að ég kann enn betur að meta evrópskan fótbolta.“ Kane segir fjölskylduna sína einnig vera vel búna að koma sér fyrir í München og hann sé fyrst og fremst einbeittur að framtíð sinni hjá Bayern. Aldrei að segja aldrei „Með liðið sem við erum með hér, stjórann og fjölskylduna mína sem er mjög sátt hér, snýst þetta bara um að vera á besta mögulega staðnum. Maður á aldrei að segja aldrei, en eins og staðan er núna er ég einbeittur að Bayern München og við sjáum hvað framtíðin ber í skauti sér.“ Kane er því enn 47 mörkum frá því að taka met Shearer, en í ljósi þess hve vel honum hefur gengið í Þýskalandi virðist metið ekki lengur vera jafn stórt markmið fyrir enska framherjann og það var þegar hann yfirgaf Tottenham.
Þýski boltinn Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Sport Fleiri fréttir Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjá meira