„Þetta gekk eins og í sögu“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. ágúst 2026 21:29 Strákarnir hans Lárusar Orra Sigurðssonar hafa náð í tíu stig í síðustu fjórum leikjum. vísir/guðmundur Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, sagði sína menn hafa unnið sanngjarnan sigur í Eyjum í kvöld. Hann var ánægður með frammistöðu Skagamanna í leiknum. „
Þetta var geggjað. Ég er gríðarlega ánægður með liðið og það sem við lögðum í leikinn, baráttuna, samstöðuna og leikmennirnir voru frábærir í dag,“ sagði Lárus Orri í samtali við Vísi eftir leikinn. Lárus Orri var gríðarlega sáttur með spilamennsku ÍA í fyrri hálfleik og hvernig liðið varðist svo eftir að það náði forystunni. „Ég var mjög ánægður með frammistöðuna. Í fyrri hálfleiknum vorum við mun betri. Við gerðum það sem við ætluðum að gera, þegar þeir pressuðu okkur framarlega ætluðum við að snúa þeim og gerðum það. Við sköpuðum okkur töluvert af tækifærum, kannski ekki dauðafærum en mikið af fyrirgjöfum,“ sagði Lárus Orri. „Í seinni hálfleik bökkuðum við um tíma helst til of mikið en vorum samt hættulegir fram á við. Þegar þeir skoruðu, 2-1, var klár aukaspyrna á vellinum sem þeir slepptu. Þeir komust upp og skoruðu en sem betur fer náðum við þriðja markinu mjög fljótt. Síðan vorum við að verjast en vorum samt að verjast nokkuð vel. Við ýttum varnarlínunni vel upp og féllum ekki of aftarlega, nema lítinn hluta af leiknum. Þetta gekk eins og í sögu.“ Gleymdum okkur í að skæla Lárus Orri segir að þriðja mark ÍA, sem Viktor Jónsson skoraði, hafi verið dýrmætt. „Það var gríðarlega gott að fá þriðja markið. Augnablikið var aðeins með þeim eftir að þeir skoruðu, 2-1. Við vorum svolítið að gleyma okkur í því að skæla yfir ákvörðunum dómarans þarna rétt fyrir. En það var mjög kærkomið að fá þriðja markið. Heilt yfir vorum við betri aðilinn og áttum þessi þrjú stig skilið,“ sagði Lárus Orri. Passa sveiflurnar Skagamenn eru sem stendur í 5. sæti deildarinnar. Aðspurður um framhaldið sagði Lárus Orri öllu skipta að vera með báða fætur á jörðinni. „Þegar gengur illa er mikilvægt að fara of neðarlega og þegar gengur vel er mikilvægt að fara ekki of ofarlega. Maður er alltaf í einhverju brasi. Nú er mjög mikilvægt að halda okkur á jörðinni og njóta sigursins og heimferðarinnar og byrja svo að undirbúa mjög erfiðan leik við FH um næstu helgi. Ég held við ættum ekki að horfa eitthvað upp eða niður núna; bara næsti leikur og áfram gakk,“ sagði Lárus Orri að lokum.
Besta deild karla ÍA ÍBV Mest lesið Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Enski boltinn Haaland sló met Agüero Enski boltinn Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Íslenski boltinn ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast Íslenski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Falko farinn frá ÍR Körfubolti Þór - FH | Hafnfirðingarnir fara norður á Akureyri Íslenski boltinn Fleiri fréttir FH - Þór/KA | Kemst FH aftur á toppinn? Þór - FH | Hafnfirðingarnir fara norður á Akureyri ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast KA - Breiðablik | KA þarf að spyrna af botninum Stjarnan - ÍBV | Eyjamenn kíkja í Garðabæinn Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Sjá meira