Gefur lítið fyrir orð kollega síns: „Ég skil ekki svona“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 9. ágúst 2026 21:13 Lárus Orri Sigurðsson var ánægður með sína menn í kvöld, en minna ánægður með ummæli kollega síns hjá Þór. Vísir / Anton Brink Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, gat leyft sér að brosa í leikslok eftir 2-0 sigur liðsins gegn Þór í Bestu-deild karla í knattspyrnu í kvöld. „
Þetta var virkilega sætur sigur. Þórsararnir eru með flott lið og búnir að fá alveg hellings styrkingu, bæði í upphafi móts og núna í glugganum. Þeir eru líka með marga unga og efnilega stráka og þeir eru með mjög flott lið, enda hafa úrslitin í undanförnum leikjum sýnt það,“ sagði Lárus í leikslok. „Við vissum að þetta yrði erfiður leikur og við vorum búnir að skoða Þórsarana mjög vel. Í rauninni hefði þetta átt að vera meira en 2-0 miðað við öll þau færi og alla þá möguleika sem við sköpuðum okkur þá var 2-0 svona heldur lítið, en ég er mjög sáttur.“ Sigurður Höskuldsson, þjálfari Þórs, talaði umm í sínu viðtali eftir leik að leikur kvöldsins hafi ekki átt neitt skylt við fótbolta. Hvorugt lið hafi reynt að spila boltanum og þess í stað bara sparkað fram og vonað það besta. „Af hverju var hann þá að láta sitt lið sparka fram? Af hverju tók hann ekki boltann niður og reyndi að spila honum?“ spurði Lárus. „Ég skil ekki svona. Í hvert einasta skipti sem markmaðurinn þeirra var með boltann þá negldi hann honum fram. Ef Siggi er ósáttur við það þá verður hann bara að segja honum að spila boltanum. Við erum klárir í það líka.“ Lárus viðurkennir þó að það hafi verið mikilvægt að ná inn marki í fyrri hálfleik í leik sem þessum, þar sem mikill barningur var á milli liðanna. „Það var mjög mikilvægt að ná þessu marki inn. Við vorum að fá helling af sénsum. Markús einn í gegn, skot í stöngina og svoleiðis. Við vorum að fá helling af færum og ég held að við höfum skapað fimm 'Big chances' á meðan þeir sköpuðu ekkert. Við vorum að fá færin og hvort sem það var úr víti eða einhverju öðru þá var bara mjög mikilvægt að fá þetta mark. Á endanum var þetta bara mjög sannfærandi, sætur og flottur sigur.“ Fyrir leik var Lárus minntur á að ÍA hefði aðeins unnið einn af síðustu sjö deildarleikjum sínum, en nú er liðið án taps í síðustu þremur. „Það er á meðan er. Ég er búinn að vera mjög ánægður með liðið í síðustu þremur leikjum. Það er búinn að vera mikill andi og mikil barátta. Menn eru tilbúnir til að vinna fyrir hvorn annan og við erum góðir í fótbolta. En við megum ekki gleyma því að við þurfum að berjast fyrir hlutunum fyrst og við höfum verið að gera það í undanförnum leikjum. Það hefur gefið okkur fullt af stigum upp á síðkastið og nú er ekkert aftur snúið.“
Íslenski boltinn Besta deild karla ÍA Þór Akureyri Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Sjá meira