„Missir ástina á fótbolta við að taka þátt í svona bulli“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 9. ágúst 2026 20:49 Sigurður Höskuldsson, þjálfari Þórsara. Vísir/Diego „Þetta var bara þvæla og ég trúi ekki að við séum að taka þátt í viðburði sem þessum árið 2026,“ sagði Sigurður Höskuldsson, þjálfari Þórs, eftir 2-0 tap liðsins gegn ÍA í Bestu-deild karla í knattspyrnu í kvöld. „
Þetta átti ekkert skylt við það sem við erum að æfa. Þeir vinna bara af því að þeir eru með klókari leikmenn í fyrsta og öðrum bolta og Viktor (Jónsson) vinnur þennan leik bara með presence og styrk hérna frammi. Klókari tímasetningar á fyrirgjöfum og betri fyrirgjafir heldur en við. Þetta var ekki fótboltaleikur í eina sekúndu,“ bætti Sigurður við. En hvað á Sigurður við með því þegar hann segir „viðburði sem þessum“? „Þetta er ekki fótbolti. Þetta er bara viðburður, ekki fótbolti,“ sagði Sigurður. „Það er ekki einu sinni verið að senda á milli. Það er bara verið að bomba upp og vinna einhverja bolta. Maður bara missir ástina á fótbolta við að taka þátt í svona bulli. Leikurinn var þannig. Það var svekkjandi að hafa ekki fengið meira út úr honum. Við fengum tvö, þrjú dauðafæri í seinni hálfleik til að minnka muninn og komast inn í þetta. En við ætlum að hætta að pæla í þessum leik núna, þeir fengu þrjú stig og höfðu fyrir því og gerðu það vel sem þeir voru að gera. Við tókum alveg þátt í því og vorum líka að bomba boltanum fram,“ sagði Sigurður og hélt áfram. „Þetta var bara hund fokking - afsakið orðbragðið - hundleiðinlegur leikur, ömurlegt að taka þátt í þessu og vonandi sé ég sem fæsta svona fótboltaleiki í framtíðinni.“ Þá hafði Sigurður nokkuð góðar skýringar á því hvers vegna hans menn náðu ekki að skapa sér færi fyrr en undir lok leiks. „Við vorum bara með lélegar tímasetningar á fyrirgjöfum og lélegar fyrirgjafir. Ekki nægilegt presence inni í teig og illa tímasett hlaup. Það var erfitt að koma boltanum í stöður til að koma honum almennilega fyrir og Skagamenn gerðu þetta bara vel. Vörðu teiginn sinn vel og við fundum ekki svör við því fyrr en undir lokin. Það var svekkjandi að koma þessu ekki inn og gera þetta að leik, en bara vel gert hjá þeim.“ Tap Þórs, og önnur úrslit kvöldsins, þýða að Þórsarar eru nú aftur komnir niður í botnsæti Bestu-deildarinnar. „Við þurfum að halda áfram að gera það sem við vorum að gera í síðustu leikjum. Við þurfum að skora fleiri mörk í opnum leik. Varnarleikurinn er búinn að vera þrusuflottur síðustu leiki og að mörgu leyti var hann fínn í dag. En við þurfum að skora fleiri mörk og fá fleiri færi, fá gleði í þetta og og njóta þess að spila við liðin í kringum okkur,“ sagði Sigurður. „Það er auðveldara að vinna liðin við toppinn. Hugarfarið verður ósjálfrátt betra í þeim leikjum og við þurfum að hafa það hugarfar líka í leikjum við liðin í kringum okkur. Það eru mjög mikilvægir leikir framundan,“ sagði Sigurður að lokum.
Íslenski boltinn Þór Akureyri ÍA Besta deild karla Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira