Uppgjör: FH-Fram 0-0 | Mörg mörk síðast en ekkert í kvöld Kolbeinn Kristinsson skrifar 26. júlí 2026 21:10 Fram og FH skildu jöfn, 0-0, á Lambhagavellinum í 16. umferð Bestu deildar karla. Leikurinn var lengst af lokaður og jafn, en bæði lið fengu sínar marktilraunir þó og átti FH meðal annars stangarskot í seinni hálfleiknum. Fram kom boltanum einnig í netið en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Stál í stál fyrir hlé Fátt markvert gerðist í markalausum fyrri hálfleik, satt best að segja. Bæði lið voru vel skipulögð og þétt fyrir. Fram var með sína fimm manna varnarlínu er þeir vörðust. Sannkallað stál í stál á Lambhagavellinum. Hvorugu liðinu tókst að skapa sér verulega hættuleg færi og jafnræði var með liðunum þegar flautað var til hálfleiks. Stöngin kom í veg fyrir mark Leikurinn opnaðist aðeins meira eftir hlé en var langt því frá að vera einhver flugeldasýning. FH-ingar voru nálægt því að brjóta ísinn á 63. mínútu. Kjartan Kári tók þá hornspyrnu frá hægri inn á nærsvæðið þar sem Úlfur Ágúst náði skoti í fyrstu snertingu en boltinn hafnaði í stönginni. Úlfur var að leika sinn síðasta leik á þessu tímabili fyrir FH en hann heldur út til náms erlendis á morgun. Aðeins fjórum mínútum síðar, eða á 67. mínútu, virtist Kennie Chopart hafa komið Fram yfir með vel útfærðri afgreiðslu með skoti í stöngina inn. Aðstoðardómarinn hafði hins vegar flaggað rangstöðu og markið fékk því ekki að standa. Hvorugu liðinu tókst að finna sigurmarkið á lokakaflanum og markalaust jafntefli varð niðurstaðan á Lambhagavellinum. Atvik leiksins Mörkin tvö hjá Víkingi í fyrri hálfleik. Karl Friðleifur og Stígur Diljan voru báðir með stórgóð skot og komu sínu liði í kjörstöðu snemma leiks. Forskot sem Víkingur lét aldrei af hendi. Stjörnur og skúrkar Viktor Freyr greip vel inn í og átti nokkrar góðar vörslur í leiknum, alltaf sterkt að halda búrinu hreinu. Sigurjón í vörninni stóð vaktina vel í vörninni sömuleiðis. Hjá FH fær Jökull í markinu útnefningu fyrir að halda markinu hreinu og skipuleggja varnarleik sinna manna. Oliver harkaði meiðslin í fyrri hálfleik af sér og gerði ágætlega í kvöld rétt eins og Grétar Snær sem barðist eins og ljón inni á miðsvæðinu. Skúrkarnir eru án efa sóknarmenn beggja liða. Það vantaði töluvert meiri ákefð og ástríðu til að koma þessu yfir línuna í kvöld. Þeir voru ekki beittir í þessum leik heilt yfir. Dómarinn Leikurinn var fagmannlega dæmdur af Helga Mikael Jónassyni og hans teymi. Leikur sem fékk heilt yfir að fljóta vel. Einkunn átta komma fimm. Stemning og umgjörð Flottur andi í brakandi blíðu á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal. Veðrið var frábært, sólin skein og umgjörðin öll eins og best verður á kosið. Stúkan var ekkert alltof þétt setin en hún var sannarlega vel mönnuð. Fram FH Besta deild karla Íslenski boltinn