Breska ríkisstjórnin vill sjá refsingu frá FIFA Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. júlí 2026 17:31 Argentínsku leikmennirnir fagna hér með borðann eftir sigurinn á Englendingum. Getty/MB Media Falklandseyjar eru argentínskar, að sögn leikmanna argentínska landsliðsins, en ekki að mati bresku ríkisstjórnarinnar.
England féll úr leik á HM eftir 1–2 tap gegn Argentínu í undanúrslitum heimsmeistaramótisins í gærkvöldi. Eftir leikinn fögnuðu argentínskir leikmenn með borða sem á stóð „Las Malvinas son Argentinas“ – sem þýðir „Falklandseyjar eru argentínskar“. 🚨 NEW: Keir Starmer hits back at Argentina after their players held a “Falklands are Argentine” banner “The World Cup might not have been ours but the Falklands Islands are” pic.twitter.com/4M5lOAdGJ0— Politics UK (@PolitlcsUK) July 16, 2026 Nú hefur breska ríkisstjórnin svarað fyrir sig, að því er enskir miðlar segja frá. „Við vinnum kannski ekki HM en Falklandseyjar eru svo sannarlega okkar. Afstaða okkar er óbreytt og skuldbinding okkar gagnvart íbúum Falklandseyja er óhagganleg,“ segir talsmaður Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, við Sky News. Guardian fjallar líka um málið. Reglur FIFA banna pólitísk skilaboð frá leikmönnum fyrir, á meðan og eftir leiki. Breski viðskiptaráðherrann Peter Kyle hefur krafist þess að FIFA rannsaki atvikið og forsætisráðuneytið tekur undir þá kröfu. „Mín viðbrögð eru þau að þetta hafi verið algjörlega óviðeigandi. Halda verður stjórnmálum aðskildum frá fótbolta,“ sagði Kyle í viðtali við BBC Breakfast. "The World Cup might not be ours, but the Falklands definitely are" Downing Street has responded to Argentinian players holding up a provocative banner after last night's World Cup semi-finalhttps://t.co/ILlrf5gBZA pic.twitter.com/dtVSkpIYFn— Sky News (@SkyNews) July 16, 2026 Falklandseyjastríðið voru hernaðarátök milli Bretlands og Argentínu um Falklandseyjar. Argentína hertók eyjaklasann 2. apríl 1982 og gafst upp fyrir Bretum 74 dögum síðar. Í Argentínu eru Falklandseyjar, eða Las Malvinas á spænsku, taldar tilheyra Argentínu og einnig hafa argentínskir stjórnmálamenn tjáð sig í tilefni af leiknum. „Á morgun spilum við gegn sjóræningjunum sem hafa hernumið eyjarnar okkar. Þetta er ekki bara einhver leikur. Ég ætla ekki að vera pólitískt réttsýn eða tilfinningalaus – gegn Englendingum snýst þetta alltaf um eitthvað meira,“ skrifaði varaforsetinn Victoria Villarruel á X daginn fyrir leikinn. Þar sem landsliðum er bannað að sýna pólitísk skilaboð á vellinum meðan á HM stendur gæti Argentína átt von á refsingu frá FIFA – sem talsmaður bresku ríkisstjórnarinnar hvetur til. Talsmaðurinn sagði enn fremur að Keir Starmer forsætisráðherra óskaði báðum liðum góðs gengis fyrir úrslitaleik Argentínu og Spánar. „En sérstaklega Spáni.“ 'Many of the families of the bereaved from the Falklands were upset by it' Falklands War veteran Simon Weston, who was severely injured in the 1982 war, said it was 'an immature act' after Argentinian players and fans celebrated the World Cup win over England with a banner… pic.twitter.com/dxcMQMQ6v6— BBC Breakfast (@BBCBreakfast) July 16, 2026
HM 2026 í fótbolta Bretland Argentína Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjá meira