Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. júlí 2026 21:03 Lautaro Martinez fagnaði sigurmarki sínu með því að hlaupa beint til Lionel Messi sem lagði markið upp. Getty/Shaun Botterill Heimsmeistarar Argentínu eru komnir í úrslitaleikinn á öðru heimsmeistaramótinu í röð eftir 2-1 endurkomusigur á Englendingum í undanúrslitaleik HM í fótbolta í Atlanta í kvöld. Englendingar komust yfir í leiknum en Argentínumenn skoruðu tvö mörk á síðustu mínútunum og tryggðu sér sigur og sæti í úrslitaleiknum á móti Spáni á sunnudaginn. Lautaro Martinez skoraði sigurmarkið með skalla úr markteignum í uppbótartíma eftir frábæra stoðsendingu frá Lionel Messi en áður hafði Messi lagt boltann út á Enzo Fernández sem skoraði með frábæru langskoti á 85. mínútu. Lionel Messi er þar með kominn með átta mörk og fjórar stoðsendingar í sjö leikjum sínum á mótinu. Enska landsliðið var 1-0 yfir frá því að Anthony Gordon skoraði á 55. mínútu. Það stefndi því í fyrsta úrslitaleik Englendinga í sextíu ár en Thomas Tuchel hugsaði alltof mikið um að verja forskotið. Snemma fór hann að gera varnarsinnaðar skiptingar og liðið hans féll alltof langt aftur á völlinn. Á sama tíma settu Argentínumenn sóknarmenn inn á völlinn og sóknarþunginn jókst með hverri mínútu. Alexis Mac Allister átti bæði skalla og skot í stöng og það var eitthvað undan að láta. Mörkin komu í blálokin og argentínska liðið sýndi enn á ný karakter á þessu heimsmeistaramóti. Leikurinn byrjaði með miklum látum og það lá við slagsmálum eftir aðeins þriggja mínútna leik. Argentínumenn létu vel finna fyrir sér í upphafi og pirraðir Englendingar brugðust við. Fyrsta hálftímann var ekkert skot en nóg af brotum og aukaspyrnum þótt bandaríski dómarinn hafi leyft mikið. Honum tókst samt að halda tökum á leiknum og leikmenn róuðust aðeins eftir þessa skapmiklu byrjun. Það gerðist samt lítið í vítateigunum í fyrri hálfleiknum. Argentínumenn byrjuðu seinni hálfleikinn mjög vel og voru að skapa færi í upphafi hans en það voru Englendingar sem skoruðu fyrsta markið. Harry Kane gerði vel í undirbúningnum og sóknin endaði með frábærri sendingu frá Morgan Rogers af hægri kantinum. Hlaup Anthony Gordon var hárrétt, hann komst fram fyrir varnarmanninn og setti boltann í hornið fram hjá Emi Martinez. Stuttu síðar fögnuðu liðsfélagar Djed Spence honum eins og hann hefði skorað mark þegar tækling hans á Giuliano Simeone kom í veg fyrir mark. Simeone var sloppinn í gegn en Spence tímasetti tæklinguna fullkomlega inni í vítateignum. Enska liðið lagðist hins vegar alltaf aftar og aftar á völlinn og Thomas Tuchel gerði þrjár varnarskiptingar. Það kom í bakið á honum því Argentínumenn voru í stórsókn allan lokakafla leiksins. HM 2026 í fótbolta