Upp­gjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stór­sigri Víkings í toppslagnum

Hjörvar Ólafsson skrifar
Elías Már Ómarsson skoraði tvö mörk í leiknum og er kominn með 11 mörk í deildinni. 
Elías Már Ómarsson skoraði tvö mörk í leiknum og er kominn með 11 mörk í deildinni.  Vísir/Anton

Elías Már Ómarsson skoraði þrjú marka Víkings þegar liðið kjöldró Fram í toppslag liðanna í 11. umferð Bestu-deildar karla í fótbolta á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal í kvöld.

Víkingur hefur níu stiga forskot á toppi deildarinnar eftir þennan sigur og fátt sem bendir til annars en að liðið verji Íslandsmeistaratitil sinn.

Jafnræði var með liðunum fyrsta stundarfjórðunginn og bæði lið áttu fínar fyrirgjafir sem samherjar þeirra náðu þó ekki að færa sér í nyt.

Sóknarþungi Víkings jókst svo jafnt og þétt næstu mínúturnar án þess þó að það bæri árangur. Varnarmúr Fram var þéttur og heimamenn minntu svo reglulega á sig með vel útfærðum skyndisóknum.

Staðan var enn markalaus eftir hálftíma leik og taugarnar þandar innan sem utan vallar. Þegar leikurinn var rúmlega hálftíma gamall átti Helgi Guðjónsson svo fyrirgjöf sem Karl Friðleifur Gunnarsson skallaði fyrir fætur Arons Elís Þrándarsonar. Skot Arons Elís af stuttu færi rataði rétta leið í netmöskvana á marki Fram.

Aron Elís Þrándarson fagnar markinu sem kom Víkingi á bragðið. Vísir/Anton

Daníel Hafsteinsson komst nálægt því að tvöfalda forystu Víkings skömmu síðar en skemmtileg útfærsla gestanna á hornspyrnu beint af æfingasvæðinu endaði hjá Daníel. Skot Daníels fór hins vegar hársbreidd frá stönginni á marki Fram.

Framarar fengu síðan blautu tusku í andlitið rétt áður en flautað var til hálfleiks. Karl Friðleifur Gunnarsson átti þá hárnákvæma fyrirgjöf sem rataði á Elías Má Ómarsson sem kláraði færið af stakri prýði.

Leikmenn Víkings léku á als oddi í kvöld. Vísir/Anton

Elías Már slökkti vonina í brjósti Framara um að koma til baka í leiknum í upphafi seinni hálfleiks þegar hann bætti öðru marki sínu og þriðja marki Víkings við. 

Aron Elís fékk þá of mikinn tíma til þess að athafna sig í vítateig Fram og Elías Már var svo einn á auðum sjó eftir sendingu Arons Elís. Eftirleikurinn auðveldur fyrir Elías Má og leik í raun lokið á þessum tímapunkti.

Elías Már var ekki hættur en hann fullkomnaði þrennu sína um miðbik seinni hálfleiks. Daníel var arkitektinn að því marki og Elías Már rak smiðshöggið.  

Daníel Hafsteinsson var nálægt því að skora. Vísir/Anton

Þetta var tólfta deildarmarkið sem Elías Már skorar í sumar og er hann þar af leiðandi orðinn markahæsti leikmaður deildarinnar með þremur mörkum meira en Aron Sigurðarson, leikmaður KR, og Kristófer Ingi Kristinsson, framherji Breiðabliks. Óskar Borgþórsson, samherji Elíasar Más hjá Víkingi kemur svo þar á eftir með átta mörk.

Helgi Guðjónsson rak síðasta naglann í líkkistu Framara þegar hann bætti fimmta marki Víkings við úr vítaspyrnu undir lok leiksins. Viktor Freyr Sigurðsson var dæmdur brotlegur fyrir að fella Niko Hansen, sem var að spila sinn fyrsta leik í nokkurn tíma eftir að hafa glímt við meiðsli. Helgi skoraði af feykilegu öryggi úr vítaspyrnu sinni og jók enn frekar á eymd Framliðsins. 

Víkingur hefur nú níu stiga forystu á KR á toppi deildarinnar en liðið hefur 34 stig og KR er með 25 stig. Fram er síðan í þriðja sæti með 23 stig. Vesturbæingar geta minnkað forskot Víkings þegar liðið fær ÍA í heimsókn í lokaleik 11. umferðar annað kvöld. 

Sölvi Geir Ottesen fór um víðan völl þegar hann hrósaði Víkingsliðinu. Vísir/Anton

Sölvi Geir: „Mörg smáatriði sem gengu upp“

„Það tók okkur smá tíma að komast almennilega í gang og mér fannst við vera að flýta okkur of mikið í fyrirgjafir í upphafi leiks. Svo hertum við hægt og bítandi tökin og urðum skilvirkari í sóknaraðgerðunum. Niðurstaðan sannfærandi sigur og flott frammistaða,“ sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings. 

„Við erum að gera margt mjög vel í þessum leik og það eru mörg smáatriði sem verða til þess að við löndum svona stórum sigri. Vinnusemin í grunnvinnunni er til fyrirmyndar og viljinn til þess að halda markinu hreinu gladdi mig mjög mikið,“ sagði Sölvi Geir. 

„Á bakvið þessa sigra er mikil vinna á bakvið tjöldin að fara yfir færslur, halda mönnum á tánum og hafa ákefðina í lagi. Það eru margir sem leggja hönd á plóg í félaginu til þess að viðhalda þeim góða árangri sem við höfum náð,“ sagði hann. 

„Mig langar svo að minnast á þátt stuðningsmannanna sem fjölmenna enn og aftur á leikinn hjá okkur. Þar eru sjálfboðaliðar sem sjá til þess að stemmingin sé frábær utan vallar og það skilar sér svo sannarlega inn á völlinn,“ sagði Sölvi. 

Rúnar: „Vorum allt of litlir í okkur“

„Við vorum flottir fyrsta hálftímann og héldum þeim í skefjum. Fengum svo nokkur fín færi eftir gegnumbrot og hefðum getað gert betur þar. Eftir fyrsta markið virtumst við hins vegar missa trúna og það var mjög erfitt að fá tvö mörk í andlitið sitt hvoru megin við hálfleikinn,“ sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram. 

„Fyrir þennan leik var búið að blása upp slag þessara liða og við virtumst ekki höndla það alveg nógu vel. Við urðum litlir í okkur á stóra sviðinu og flestallir leikmenn mínir voru mjög ólíkir sjálfum sér. Það kann ekki á gott á móti jafn sterku liði og Víkingur hefur á að skipa,“ sagði Rúnar þar að auki. 

„Þessi skellur sýnir okkur að við eigum enn nokkuð í land með að geta barist um Íslandsmeistaratitilinn en að sama skapi tekur hann ekki frá okkur þau stig sem við erum komnir með. Við erum komnir vel á veg í þroskaferli liðsins en þurfum að leggja á okkur meiri vinnu til þess að nálgast lið á borð við Víking,“ sagði hann. 

„Við verðum að viðurkenna það að sigur Víkings var síst of stór þegar á hólminn var komið. Það er enginn heimsendir að tapa fyrir Víkingi en það er svekkjandi að ná ekki að sýna sitt rétta andlit í þessum toppslag. Við bara lærum af þessum leik og höldum áfram að bæta okkar leik,“ sagði Rúnar. 

Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, var svekktur að leik loknum. Vísir/Diego

Atvik leiksins

Elías Már var á eldi að þessu sinni og skoraði góð framherjamörk. Ef fram heldur sem horfir er markametið í hættu. Það hafa nokkrir framherjar þó farið vel af stað í markaskorun í deildinni og kólnað svo þegar markametið er í augsýn. Vonandi að það verði ekki uppi á teningnum hjá Elíasi Má.  

Víkingar fagna einu af þremur mörkum sínum. Vísir/Anton

Stjörnur og skúrkar

Karl Friðleifur og Óskar voru skeinuhættir á hægri vængnum. Karl Friðleifur lagði upp tvö marka Víkingsliðsins og seinni stoðsendingin var einkar snotur. 

Elías Már hafði lítið sést áður en hann dúkkaði upp og skoraði fyrsta mark sitt í leiknum. Eins og alvöru framherja sæmir þá hrökk hann í gang við það mark og endaði á að setja þrennu. Daníel var svo eins og kóngur í ríki sínu inni á miðsvæðinu. 

Liðsvörn Víkings var öflug og til eftirbreytni að sjá hversu hart þeir lögðu að sér með það að markmiði að halda marki sínu hreinu. 

Freyr Sigurðsson var hættulegasti leikmaðurinn í sóknarleik Fram og sá sem tók mest til sín að þessu sinni. Þá náði Fred nokkrum sinnum að skapa usla með föstum leikatriðum sínun.  

Karl Friðleifur Gunnarson og Óskar Borgþórsson eru baneitrað tvíeyki á hægri vængnum. Vísir/Anton

Dómarar leiksins

Dómarar leiksins, þeir Sigurður Hjörtur Þrastarson, Egill Guðvarður Egilsson, Kristján Már Ólafs og Guðmundur Páll Friðbertsson, skiluðu af sér prýðilegu kvöldverki. Það fór lítið fyrir dómarateyminu og þeir stýrðu leiknum vel. Þeir tóku á því með stóískri ró þegar hitinn var að aukast og höfðu góð tök á þessum leik. Fyrir það fá þeir átta í einkunn. 

Stemming og umgjörð

Vel mætt á völlinn þó að Framarar hafi ekki náð yfirlýstu markmiði sínu sem var að slá vallarmet hvað varðar áhorfendafjölda en metið er í kringum 2000 manns. Að þessu sinni lögðu tæplega 1500 leið sína í Úlfarsársdalinn. Geiramenn voru í góðum gír og Víkingar fjölmenntu úr Fossvoginum. Bæði lið létu vel í sér heyra og sköpuðu góða stemmingu á þessum toppslag.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira