Arteta uppskar hlátur eftir að hafa verið spurður út í gagnrýni á fagnaðarlæti Aron Guðmundsson skrifar 9. maí 2026 12:33 Gleðin var við völd á Emirates leikvanginum eftir að Arsenal hafði tryggt sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Vísir/Getty Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, gefur lítið fyrir gagnrýni á fagnaðarlæti liðsins eftir að það hafði tryggt sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á dögunum.
Leikmenn og þjálfarateymi Arsenal voru gagnrýndir fyrir það hversu mikið þeir fögnuðu eftir sigur gegn Atletico Madrid fyrr í vikunni þar sem að lærisveinar Arteta tryggðu sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Var þetta í fyrsta sinn í tuttugu ár sem Arsenal, sem hefur aldrei unnið Meistaradeild Evrópu, tryggði sér sæti í úrslitaleik keppninnar. Þar mun Arsenal mæta ríkjandi Evrópumeisturum Paris Saint-Germain. Klippa: Arteta spurður út í gagnrýni á fagnaðarlæti Arsenal Wayne Rooney, fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður var á meðal þeirra sem gagnrýndu fagnaðarlæti Arsenal. „Þeir eiga það skilið að vera í þessari stöðu en hafa ekki unnið neitt enn þá. Fagnaðarlætin eru aðeins of mikil. Fagnið þegar að þið vinnið eitthvað,“ sagði Wayne Rooney í útsendingu Amazon Prime frá leik Arsenal og Atletico Madrid. Á blaðamannafundi í gær fyrir leik Arsenal gegn West Ham á sunnudaginn kemur var Arteta spurður út í gagnrýnina á fagnaðarlæti sinna manna. „Í fyrsta lagi hafði ég ekki heyrt af þessu. Maður verður bara að virða skoðanir annarra og setja þær svo þar sem að þær eiga heima.“ Hvar seturðu þær? „Þar sem þær eiga heima,“ svaraði Arteta og uppskár hlátur frá þeim blaðamönnum sem mættir voru á fundinn. Arsenal er í bílstjórasætinu og örlögin í sínum höndum á toppi ensku úrvalsdeildarinnar þegar að liðið á þrjá leiki eftir.
Enski boltinn Arsenal FC Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Sport Styrmir nýr formaður hjá Val Íslenski boltinn Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Handbolti Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Fótbolti Tilfinningaríkur sigur Littler Sport Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Handbolti Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Íslenski boltinn HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Fótbolti Írar unnu góðan sigur Fótbolti Fleiri fréttir Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjá meira