„Við litum út eins og þriðji flokkur“ Valur Páll Eiríksson skrifar 23. apríl 2026 15:37 Sigurður Arnar Magnússon gat ekki annað en sammælst því að Eyjamenn hafi verið niðurlægðir af KR í dag. Sýn Sport „Niðurlæging er bara akkúrat orðið,“ segir Sigurður Arnar Magnússon sem bara fyrirliðabandið hjá ÍBV í 6-2 tapi hans manna fyrir KR í þriðju umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Hásteinsvelli í dag.
Sigurður hafði þá verið spurður hvort Eyjamenn hafi ekki hreinlega verið niðurlægðir í leiknum og hann sammæltist því. KR var með lög og lof á vellinum frá upphafi til enda og leiddi 4-0 í hálfleik. Staðan var 6-0 áður en Eyjamenn klóruðu í bakkann. „Þetta hefði getað verið stærra. Við vorum bara heppnir að koma inn í hálfleik með 4-0. Við vissum alveg að KR væri gott lið og ætluðum að leggja eitthvað upp en við getum aldrei leyft okkur, gegn neinu liði, og hvað þá eins góðu liði og KR, að koma inn með svona litlum áhuga á að sinna varnarvinnunni og skila okkar hlutverki. Við litum út eins og þriðji flokkur,“ segir Sigurður ómyrkur í máli. „Hrós á KR, þeir voru góðir. En þessi fyrri hálfleikur var ekki boðlegur af okkar hálfu.“ Eyjamenn gerðu þrefalda skiptingu í hléi sem skilaði krafti í liðið en heildarframmistaðan var hreint ekki góð gegn afar sterku KR-liði. „Við komum aðeins betur inn í seinni hálfleik og menn komu inn með meiri ahuga á að verjast. Það var meiri kraftur en við fáum samt tvö mörk á okkur. En mér fannst við aðeins meira inni í leiknum og við sýnum smá karakter að bíta frá okkur. En heilt yfir… maður getur eiginlega ekki annað en beðist afsökunar á þessu,“ segir Sigurður.
ÍBV KR Besta deild karla Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Fótbolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Gylfi valinn besti leikmaður ársins Íslenski boltinn Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Íslenski boltinn „Madrid með Mourinho vinnur titla“ Sport Dagskráin: Lokaumferð Bestu með Doc Zone og Messan í einum pakka Sport Fleiri fréttir Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Matthías í stað Viktors við hlið Sölva „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“