Hótelstjórarnir örvænta og lækka verðið á hótelgistingu á HM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. apríl 2026 22:31 Hótelstjórar verða að lækka verðið á herbergjum ef þeir ætla ekki að enda með auð herbergi yfir heimsmeistaramótið. Getty Það hefur verið mikið um neikvæðar fréttir í kringum heimsmeistaramótið í fótbolta í sumar en núna berast loksins gleðifréttir fyrir stuðningsmenn sem ætla að ferðast til Bandaríkjanna á HM.
Ofurhátt miðaverð, dýrar samgöngur, vandræði með vegabréfsáritanir, Trump og stríð hafa orðið til þess að margir fótboltaáhugamenn velja að sleppa því að fara á HM í sumar. Þetta hefur nú leitt til mikillar lækkunar á hótelverði í mörgum borgum, að því er Financial Times greinir frá. Í borgum eins og Atlanta, Dallas, Miami, Philadelphia og San Francisco hefur verðið lækkað um þriðjung frá því hámarki sem fólk þurfti að greiða fyrr á árinu. Sömu sögu er einnig að segja af New York-svæðinu þar sem minni eftirspurn þvingar hótelstjóra til að lækka verðið. „Ég sé að margir eru að örvænta og lækka verðin,“ sagði Scott Yesner, stofnandi útleigu- og hótelfyrirtækisins Bespoke Stay í Philadelphia, við Financial Times. Ferðaþjónusta í tengslum við HM í fótbolta var einnig stórt umræðuefni þegar öldungadeildin á bandaríska þinginu hélt yfirheyrslu um mótið á miðvikudag. Þar lýstu nokkrir fulltrúar yfir áhyggjum af því hvort HM myndi veita þá lyftistöng sem vonast hafði verið eftir eftir vonbrigðaárið 2025. Í fyrsta skipti síðan Covid-faraldurinn gekk yfir lækkuðu tekjur á hvert hótelrúm. Gianni Infantino, forseti FIFA, hefur ítrekað lýst því yfir að mótið muni hafa mikil áhrif á ferðaþjónustu til Bandaríkjanna. Árið 2024 lýsti hann HM 2026 sem „fordæmalausum efnahagslegum hvata“. „Ég get sagt það afdráttarlaust að við höfum ekki séð neina stóra lyftistöng ennþá,“ sagði Vijay Dandapani, forseti samtaka hótela í New York-borg, við Financial Times. FIFA hefur sjálft afbókað þúsundir frátekinna hótelherbergja. Hversu mörg er ekki ljóst, en aðeins í Philadelphia er um tvö þúsund að ræða, samkvæmt samtökum hótela í borginni samkvæmt ABC News. Football Supporters Europe hefur reiknað út að það muni kosta að lágmarki 6.900 dollara fyrir stuðningsmann að fylgja liði sínu í gegnum allt HM til úrslitaleiks. Aðeins í miðum á leikvanga. Það jafngildir 840 þúsund íslenskum krónum og er næstum fimm sinnum meira en á HM í Katar fyrir fjórum árum. Fjöldi frétta hefur borist síðustu daga um dýrar samgöngur á HM í fótbolta. Lestarverð í bæði Boston og New Jersey eiga að hækka upp úr öllu valdi fyrir áhorfendur á HM. Í Boston er um að ræða áttatíu dollara, 9752 krónur, fram og til baka, fjórfalt hærra verð en venjulega, en til New Jersey á það að vera sjöfalt hærra samkvæmt The Athletic eða mun hærra en hundrað dollarar. Á sama tíma hefur bílastæðum verið fækkað verulega miðað við það sem venjulegt er í kringum HM-leikvangana. Þar af leiðandi hefur verðið hækkað mikið þar líka. „Við erum ekki endilega svo hneyksluð á þessari „veljum þá ríku“-aðgerð – en þessi verðbólga gerir það að verkum að allt verður langt utan seilingar fyrir venjulega stuðningsmenn. Leikurinn sjálfur er kannski fallegur, en það eru fjandans miður mörg ljót sníkjudýr sem virðast hafa smitað hann,“ skrifar New York Post.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Evrópuþjóðirnar samþykktu að sniðganga HM Fótbolti Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Körfubolti Standa með Eygló í martröðinni Sport Uppgjörið: Ilves - Stjarnan 2-1 (5-4 eftir vító) | Úr leik eftir maraþonleik í Finnlandi Fótbolti Zrinjski Mostar - Valur | Erfitt verkefni Valsmanna Fótbolti Týndur í fjórtán daga Fótbolti Barnabarn Idi Amin dæmt úr leik fyrir að skalla andstæðing Sport Howe hættur hjá Newcastle Enski boltinn Fljótasti hvíti maður sögunnar Sport Ancelotti segir landsliðsferli Neymar lokið Fótbolti Fleiri fréttir Concacaf mótmælir Fifa en sniðgengur ekki Kolbeinn og félagar komust áfram þrátt fyrir tvö vítaklúður Uppgjörið: Ilves - Stjarnan 2-1 (5-4 eftir vító) | Úr leik eftir maraþonleik í Finnlandi Gjaldþrota félag á Ítalíu sannfærði Tonali til Tottenham Zrinjski Mostar - Valur | Erfitt verkefni Valsmanna Uppgjörið: Vestri – RFS 1-1 (2-5) | Evrópuævintýri Vestra á enda Vozinha berst fyrir því að halda nafninu hjá nýju liði Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Evrópuþjóðirnar samþykktu að sniðganga HM Ancelotti segir landsliðsferli Neymar lokið Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda „Þetta er kvikindisleg spurning“ Sjáðu Ollu kveðja með stæl, dramatík í Eyjum og Fram skjóta Valskonur á kaf Kristján Flóki fékk tveggja leikja bann fyrir að traðka á Ívari Mancini fullur iðrunar: „Var eins og að missa konu lífs míns“ Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle AC Milan neitar fregnum af andláti Franco Baresi Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Val milli grunngilda hreyfingarinnar og gylliboðs Infantino Týndur í fjórtán daga Enska deildin mótmælir ákvörðunum Infantino Fifa gefur út hvað Argentína er rannsakað fyrir eftir heimsmeistaramótið Alda Ólafsdóttir : „Ótrúlega mikil trú í öllu liðinu“ Matthías Guðmundsson: „Þá skaðar það sálina líka“ Þróttur tók toppsætið af Aftureldingu tveimur mönnum fleiri „Hefði verið gott að enda á þrennu“ Theodór Ingi var hetja Fylkis í endurkomusigri Tómas Óli sló Gísla Gottskálk út með frábærri innkomu Sjá meira