Jón Dagur skoraði í fyrsta sigri Brann Sindri Sverrisson skrifar 6. apríl 2026 16:56 Eftir að hafa verið með íslenska landsliðinu í Kanada var Jón Dagur mættur í slaginn með Brann í Noregi í dag. Getty/Anatoliy Cherkasov Eftir að hafa tapað fyrstu tveimur leikjum sínum á nýju tímabili í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta unnu lærisveinar Freys Alexanderssonar í Brann öruggan sigur gegn HamKam á útivelli í dag. Jón Dagur Þorsteinsson átti sinn þátt í því.
Jón Dagur skoraði annað mark leiksins með skalla á 37. mínútu og var staðan 2-0 í hálfleik. Hún var svo orðin 3-1 þegar Freyr tók Jón Dag af velli og setti Markus Haaland inná á 80. mínútu. Þó að Markus sé ekkert tengdur Erling Haaland þá tók það hann aðeins mínútu að bæta við fjórða marki Brann og staðan var svo orðin 5-1 áður en yfir lauk. Kristall Máni Ingason var í byrjunarliði Brann en fór af velli á 63. mínútu, í stöðunni 3-0. Sævar Atli Magnússon og Eggert Aron Guðmundsson eru hins vegar frá keppni vegna meiðsla. Viðar Ari Jónsson var á varamannabekk HamKam allan leikinn en liðið er með þrjú stig líkt og Brann. Júlíus Mar Júlíusson var í byrjunarliði Kristiansund sem tapaði á heimavelli gegn Evrópuævintýramönnunum í Bodö/Glimt, 3-0. Miðvörðurinn úr Grafarvogi lék allan leikinn og Hrannar Snær Magnússon kom inná þegar tíu mínútur voru eftir. Kristiansund er með þrjú stig eftir tvo leiki en þetta var fyrsti deildarleikur Bodö/Glimt á leiktíðinni þar sem liðið fékk leikjum frestað vegna leikja sinna í útsláttarkeppni Meistaradeildar Evrópu.
Norski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Þór - Víkingur 2-1 | Þórsarar fyrstir til að vinna Víkinga Íslenski boltinn Fjórtán ára í byrjunarliði Vals Íslenski boltinn „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann Fótbolti Frakkland - England | Tárin þerruð og tekist á um brons Fótbolti Bætti heimsmet í míluhlaupi sem hafði staðið í 27 ár Sport Uppgjörið: Valur - Fram 2-3 | Framarar upp í annað sætið Íslenski boltinn Martínez sleppti aðgerð og spilar meiddur Fótbolti Ætlaði allt um koll að keyra: „Óttuðust að það yrðu óeirðir“ Sport DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Taylor fagnar ákaft: „Sjáið hvað hún er reið, alveg brjáluð“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ég er bara í brjáluðu skapi“ Uppgjörið: Valur - Fram 2-3 | Framarar upp í annað sætið Frakkland - England | Tárin þerruð og tekist á um brons Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda Vildi fá Nyland fyrir HM: „Það verður ansi erfitt að fá hann núna“ Uppgjörið: Þór - Víkingur 2-1 | Þórsarar fyrstir til að vinna Víkinga „Þurfum að læra að stýra spennustiginu á milli verkefna“ „Eina leiðin er upp“ Fjórtán ára í byrjunarliði Vals Fékk sigur í fimmtugsafmælisgjöf Topplið Lengjudeildarinnar fær liðsstyrk frá Stjörnunni Annar þrjú núll sigur hjá strákunum hans Freys Stórsigur á Seltjarnarnesi en markalaust í Grindavík Viktor Nói lánaður til Njarðvíkur Taylor fagnar ákaft: „Sjáið hvað hún er reið, alveg brjáluð“ Martínez sleppti aðgerð og spilar meiddur „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann „Það ruglaður að manni finnst maður alltaf bestur“ Tuchel axlar ábyrgð á tapinu Messi: „Argentína hefur ekki fengið neitt gefins“ Treyja Pelé frá úrslitaleik HM 1958 seldist á 617 milljónir Þrjú félög örugg með að eignast nýjan heimsmeistara Hjátrúafullur forseti Argentínu mætir ekki á úrslitaleikinn Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Fylkismenn kláruðu Njarðvíkinga fyrir hlé „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Zlatan skaut á Norðmenn um leið og hann gagnrýndi England Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Tveir öflugir Spánverjar æfðu ekki með restinni af liðinu Sjá meira