Stjóri í leyfi út tímabilið eftir andlát nýfædds sonar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. mars 2026 06:32 Liam Manning gerði flotta hluti með Bristol City en hefur átt erfitt uppdráttar eftir andlát nýfædds sonar hans. Getty/Ryan Hiscott Liam Manning, knattspyrnustjóri Huddersfield Town, hefur fengið að fara í leyfi það sem eftir er af tímabilinu á meðan hann vinnur úr áfalli fjölskyldunnar.
Enska C-deildarfélagið sagði frá því í yfirlýsingu að ákvörðunin hefði verið tekin eftir að Manning „gerði félaginu grein fyrir persónulegum málum sem tengjast hörmulegu andláti nýfædds sonar hans, Theos, í október 2024“. Breska ríkisútvarpið segir frá. Hinn fertugi Manning tók stutt leyfi frá starfi sínu sem knattspyrnustjóri Bristol City þegar Theo lést. Men’s First Team Head Coach Liam Manning has been granted compassionate leave for the remainder of the 2025/26 Sky Bet League One season.Liam has the full support of everyone at Huddersfield Town, and we will remain in regular contact with him and those close to him.#htafc— Huddersfield Town (@htafc) March 25, 2026 Þjálfararnir Martin Drury og Jon Stead hafa tekið við stjórn Huddersfield-liðsins það sem eftir er af tímabilinu. „Liam, eiginkona hans, Fran, elsti sonur þeirra, Isaac, og öll fjölskylda Manning hafa fullan stuðning frá öllum hjá Huddersfield Town og við munum halda uppi reglulegu sambandi við Liam og þá sem eru honum nánir,“ sagði Huddersfield í yfirlýsingunni. Manning kom Bristol City í úrslitakeppnina um sæti í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en hann yfirgaf félagið í júní 2025 til að taka við Norwich City. Manning sendi frá sér yfirlýsingu í gegnum samtök þjálfara deildarinnar þar sem hann sagði að missir Theo væri „það erfiðasta sem fjölskylda mín og ég höfum nokkurn tíma gengið í gegnum“ og að hann yrði „að eilífu þakklátur“ fyrir stuðninginn frá Bristol City og aðdáendum þeirra. Dvöl hans hjá Norwich lauk eftir aðeins sautján leiki í nóvember og hann tók við af Lee Grant sem knattspyrnustjóri Huddersfield í janúar. Huddersfield eru í níunda sæti í ensku úrvalsdeildinni og mæta næst Reading föstudaginn 3. apríl. Liam Manning has released a statement following the passing of his recently born son ❤️❤️ pic.twitter.com/QIFAf16blC— Second Tier podcast (@secondtierpod) October 25, 2024
Enski boltinn Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Ungur Mexíkói sló heimsmet Hafþórs sem vann samt mótið Sport Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Enski boltinn „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Sjá meira