Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur Samúel Karl Ólason skrifar 17. mars 2026 16:59 Sergei Shoigu var áður varnarmálaráðherra en leiðir nú þjóðaröryggisráð Rússlands. EPA/MOHAMED HOSSAM Þróun Úkraínumanna og framleiðsla á eigin sjálfsprengidrónum felur í sér að þeir geta nú gert árásir á öll héruð Rússlands. Þetta sagði Sergei Shoigu, forseti þjóðaröryggisráðs Rússlands og fyrrverandi varnarmálaráðherra, á fundi með embættismönnum í dag, þar sem hann sagði að árásum Úkraínumanna á Rússland hefði fjölgað mjög.
Á fundinum hélt Shoigu því fram að Rússar stæðu frammi fyrir skemmdarverkum Úkraínumanna og 56 bandalagsríkja þeirra. Þróun þessara árása og fjölgun þeirra væri slík að enginn Rússi gæti talið sig öruggan. Fundurinn var haldinn í Úral sem Shoigu sagði að hefði þar til nýlega getað talið öruggt svæði. Það ætti ekki lengur við. Þá sagði hann, samkvæmt rússnesku fréttaveitunni TASS, að árið 2025 hefðu Úkraínumenn gert 1.830 „hryðjuverkaárásir“ í Rússlandi og þeim hefði fjölgað um fjörutíu prósent milli ára. Þær hefðu verið 1.101 árið 2014 en einungis 271 árið 2023. Borgarstjóri Moskvu sagði í gær að þar hefðu 250 úkraínskir drónar verið skotnir niður um helgina. Varnarmálaráðuneyti Rússlands sagði í dag að á undanförnum sólarhring hefði 421 dróni verið skotinn niður, eins og fram kemur í frétt Reuters. Shoigu sagði á fundinum í dag að það gæti haft mjög slæmar afleiðingar að vanmeta ógnina sem steðjaði að Rússlandi. Finna þyrfti veikleika innan Rússlands og koma í veg fyrir að Úkraínumenn, eða áðurnefndir 56 bandamenn þeirra, geti nýtt sér þá. Sagði netið notað gegn Rússum Shoigu sagði einnig að andstæðingar Rússlands væru að beita sálfræðilegum hernaði og upplýsingahernaði gegn rússnesku þjóðinni gegnum internetið. Meðal annars væri reynt að fá Rússa til að fremja skemmdarverk og aðra ólöglega verknaði. Sjá einnig: Gera úkraínsk ungmenni að sjálfsmorðssprengjumönnum Á undanförnum mánuðum hafa stjórnvöld í Rússlandi takmarkað verulega aðgang Rússa að netinu og samskiptamiðlum. Erlendir samfélags- og samskiptamiðlar hafa lengi verið bannaðir í Rússlandi en nú hefur einnig verið gripið til þess að banna miðilinn Telegram, sem var þróaður í Rússlandi og hefur um árabil verið mjög vinsæll í Austur-Evrópu. Í staðinn vilja ráðamenn í Rússlandi að Rússar noti forrit sem kallast MAX. Það er nokkurs konar samblanda af samfélagsmiðli og opinberri vefgátt og er stýrt af yfirvöldum. Fólk á að geta greitt atkvæði gegnum forritið, greitt opinber gjöld og margt annað. Þá gerir forritið yfirvöldum kleift að fylgjast betur með fólki. Max hefur af mörgum verið líkt við WeChat forritið í Kína. Sjá einnig: Pútín þjarmar að vinsælasta samfélagsmiðli Rússlands Vladimír Pútín, forseti Rússlands, skrifaði í síðasta mánuði undir ný lög sem skilyrða samskiptafyrirtæki til að loka á internetið og samskipti í Rússlandi þegar yfirvöld fara fram á það. Politico sagði frá því á dögunum að síðan lögin tóku gildi þann 3. mars hafi íbúar í Moskvu ítrekað kvartað yfir netleysi og vandræðum með síma sína. Ráðamenn í Rússlandi segja að stundum sé lokað fyrir net og símasamband til að verjast úkraínskum drónum.
Rússland Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira