Pútín þjarmar að vinsælasta samfélagsmiðli Rússlands Kjartan Kjartansson skrifar 12. febrúar 2026 09:20 Telegram er einn vinsælasti samfélags- og samskiptamiðill Rússlands. Hann er einnig þyrnir í augum rússneskra stjórnvalda. Vísir/Getty Rússnesk stjórnvöld hafa takmarkað aðgang að samfélagsmiðlinum Telegram og sektað hann um milljónir til þess að „vernda rússneska borgara“. Þau vilja fá Rússa til að nota ríkissnjallforrit sem gerir þeim auðveldara fyrir að fylgjast með borgurunum.
Rússneski samfélagsmiðillinn Telegram er einn sá vinsælasti í Rússlandi en stjórnvöld í Kreml loka á aðgang að vestrænum miðlum eins og Facebook og X, allsherjarforritinu. Telegram er bæði notað af stjórnvöldum til að koma skilaboðum sínum á framfæri en einnig stjórnarandstæðingum. Dómstóll sektaði fyrirtækið um ellefu milljónir rúblna, jafnvirði rúmra sextán milljóna íslenskra króna, fyrir að neita að fjarlægja efni sem stjórnvöld skilgreina sem öfgafullt, glæpsamlegt eða sem hryðjuverk. Stjórnvöld takmörkuðu aðgang að forritinu fyrir sömu sakir fyrr í vikunni, að því er segir í frétt danska ríkisútvarpsins DR. Takmarkanirnar þýða að forritið er hægvirkara og skilaboð lengur að berast. Aðgerðirnar gegn Telegram eru taldar liður í viðleitni stjórnvalda í Kreml til þess að smala landsmönnum inn í snjallforritið MAX, nokkurs konar blöndu af samfélagsmiðli og opinberri vefgátt þar sem hægt að greiða atkvæði í kosningum, greiða opinber gjöld og eiga samskipti við skóla. Reyna að gera forritið eins erfitt í notkun og hægt er Valentyna Shapovalova, sérfræðingur í rússneskum upplýsingahernaði, segir við DR að rússnesk stjórnvöld leggi ekki í að loka Telegram af ótta við viðbrögð almennings. Í staðinn reyni þau að gera Telegram eins erfitt í notkun og hægt sé til þess að fá fólk til að skipta yfir í MAX. „Þetta er einfaldlega tilraun til að gera það eins óþægilegt og mögulegt er núna áður en þeir reyna líklega að loka miðlinum alveg,“ segir hún við danska ríkisfjölmiðilinn. Mannréttindasamtökin Amnesty International gagnrýna rússnesk stjórnvöld og saka þau um að skerða tjáningarfrelsið með aðgerðum sínum gegn Telegram. „Að loka eða hægja á Telegram hefur lítið með það að gera að vernda fólk fyrir netglæpum eða svikum en mun meira að gera með að takmarka frekar möguleika fólks á að eiga í frjálsum og öruggum samskiptum,“ segir Marie Struhers, yfirmaður Amnesty í málefnum Austur-Evrópu og Mið-Asíu. Telegram er í eigu Pavels Durov, rússnesk milljónamærings. Hann segist sjálfur hafa yfirgefið Rússland árið 2014 vegna þess að hann neitaði að verða við kröfum stjórnvalda um að afhenda þeim persónuupplýsingar um notendur. Hann er nú búsettur í Dúbaí. Vestræn ríki hafa einnig átt sökótt við Telegram. Pavlov var sóttur til saka í Frakklandi fyrir að neita að vinna með löggæsluyfirvöldum sem rannsökuðu barnaníðsefni, fíkniefnasmygl og fjársvik á Telegram. Honum var þó leyft að fara aftur heim til Dúbaí í fyrra þótt málið væri enn í gangi.
Rússland Samfélagsmiðlar Tjáningarfrelsi Vladimír Pútín Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira