Fjárhættuspilarar hóta blaðamanni lífláti Samúel Karl Ólason skrifar 16. mars 2026 14:33 Íranskar eldflaugar yfir Ísrael. Fjárhættuspilarar höfðu margir veðjað á að engin eldflaug kæmist gegnum varnir Ísraela þann 10. mars. Ein gerði það og hafa fjárhættuspilarar brugðist reiðir við. AP Þriðjudaginn 10. mars birti ísraelskur blaðamaður færslu í vaktarfrétt miðilsins Times of Israel sem átti eftir að draga dilk á eftir sér. Þá hafði írönsk skotflaug lent í borginni Beit Shemesh, skammt frá Jerúsalem. Fljótt kom í ljós að skotflaugin hafði lent á óbyggðu svæði í um fimm hundruð metra fjarlægð frá íbúðarhúsum og sakaði engan.
Emanuel Fabian birti færslu um það og vísaði í björgunarsveitir og myndband af eldflauginni lenda. Tiltölulega fljótt byrjaði Fabian að fá tölvupósta og skilaboð um að hann þyrfti að leiðrétta fréttina. Það hefði ekki verið eldflaug sem hefði lent þarna heldur brak úr eldflaug sem hefði verið skotin niður. No injuries are reported in Iran's latest ballistic missile attack on Israel, the fourth today.One missile struck an open area just outside Beit Shemesh, first responders say and footage shows.Sirens had sounded across the Jerusalem area, the West Bank, and parts of southern… pic.twitter.com/j6sovAsDwz— Emanuel (Mannie) Fabian (@manniefabian) March 10, 2026 Fyrsta póstinum svaraði blaðamaðurinn og vísaði til þess að herinn hefði staðfest að skotflaugin hefði ekki verið skotin niður og sendi hann viðkomandi einnig myndband af því þegar hún lenti og sprengingunni sem varð þá. Slík sprenging hefði ekki orðið ef um brak hefði verið að ræða. Póstunum fjölgaði svo hratt og bárust Fabian einnig skilaboð og símtöl frá mönnum sem kröfðust þess að hann breytti fréttaflutningi sínum. Margir reyndu að sannfæra hann með fölsuðum upplýsingum og aðrir fóru að dreifa breyttum svörum hans, þar sem hann átti að hafa viðurkennt að fréttin sín væri röng, sem hún var ekki. Í grein sem Fabian skrifaði á vef Times of Israel um þetta áreiti og hótanirnar segist blaðamaðurinn lengi vel ekki hafa áttað sig á því af hverju þessi tiltölulega ómerkilega frétt virtist skipta svo marga svo miklu máli að þeir voru tilbúnir til að senda honum morðhótanir. Þegar fólk á X sakaði hann um lygar um eldflaugina fór Fabian að gruna um hvað málið snerist. Þeir sem um ræðir virtust tengjast veðmálastarfsemi Polymarket. Polymarket er tiltölulega vinsæl veðmálasíða sem byggir á rafmyntum og er hægt að veðja þar um hina óvenjulegustu hluti. Þar á meðal eru pólitískir og afdrifaríkir atburðir í heiminum. Fabian komst að því að tölvupóstarnir, skilaboðin, símtölin og hótanirnar tengdust veðmáli á vef Polymarket um það hvort að eldflaug frá Íran myndi hæfa Ísrael eða ekki þann 10. mars. Þar höfðu notendur veðjað mörgum milljónum dala á hvernig færi. Í reglum þessa tiltekna veðmáls segir að falli brak úr eldflaug sem skotin er niður til jarðar, jafngildi það ekki því að eldflaug hafi hæft Ísrael. Þegar þetta er skrifað, þann 16. mars, er enn ekki búið að útkljá veðmálið á vef Polymarket og Fabian segist enn fá pósta frá mönnum sem virðast hafa lagt fé undir. Svo virðist sem mennirnir sem hafa verið að hóta Fabian hafi tapað þessu veðmáli en vilji að hann breyti frét sinni, svo þeir geti grætt peninga. Gamblers trying to win a bet on Polymarket are vowing to kill me if I don’t rewrite an Iran missile storyThis is my account: https://t.co/SBpGsW9lsH— Emanuel (Mannie) Fabian (@manniefabian) March 16, 2026 Lofaði kollega hluta af peningunum Fabian fékk einnig símtal frá kollega sínum hjá öðrum ísraelskum miðli. Sá sagðist hafa fengið beiðni frá kunningja um að biðja Fabian um að endurskoða fréttaflutning en sagðist ekki vita af hverju þessi beiðni væri tilkomin. Að endingu ræddi kolleginn við kunningjann og fékk hann til að viðurkenna að það væri vegna veðmáls á Polymarket. Það sem meira er, þá lofaði kunninginn kolleganum hluta af verðlaunafénu ef honum tækist að sannfæra Fabian um að breyta frétt sinni. Fabian segist hafa fengið fjölda skilaboða og símtala um helgina, þar sem menn kröfðust þess að hann breytti frétt sinni og hótuðu nokkrir því að myrða hann ef hann gerði það ekki. Hann leitaði til lögreglunnar og segir hótanirnar til rannsóknar þar. Falsfréttir, hótanir og gylliboð Í áðurnefndri grein á vef Times og Israel segir Fabian að hótanirnar hafi ekki skilað árangri og að þær muni ekki gera það. Hann segist þó hafa áhyggjur af því hvað aðrir blaðamenn með verri siðferðisvitund gætu gert í ljósi hótana eða gylliboða um fúlgur fjár fyrir rangan fréttaflutning. Vísar hann einnig til þess að í síðasta mánuði hafi ísraelskur varaliðsmaður og óbreyttur borgari verið ákærðir fyrir að nota leynilegar upplýsingar í veðmál fyrir árásir Ísraela á Íran síðasta sumar. Fabian segist einnig hafa áhyggjur af því að blaðamenn geti einnig notað upplýsingar sem þeir afla sér á veðmálasíðum eins og Polymarket. „Ég vona innilega að það hafi ekki gerst og muni ekki gerast, á þessum nýju tímum þar sem sannleikurinn, veðmál og glæpastarfsemi fléttast saman.“ Íþróttamönnum ítrekað hótað vegna veðmála Í nóvember í fyrra fjallaði The Athletic hjá New York Times um veðmál á íþróttir þar í landi og áhrifin vegna þeirra. Umfjöllunin snerist meðal annars um það að atvinnuíþróttamenn segjast ítrekað fá morðhótanir og hótanir gegn fjölskyldum þeirra vegna veðmálastarfsemi. Einn leikmaður í NBA-körfuboltadeildinni sagðist til að mynda fá um tíu skilaboð vegna hvers leiks sem hann spilaði frá fólki sem hótaði honum öllu illu vegna misheppnaðra veðmála þeirra. Fjölmargir leikmenn sem rætt var við sögðu frá svipuðum skilaboðum.
Ísrael Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Hernaður Fjárhættuspil Mest lesið Leigubílstjóri jók hraðann á rauðu ljósi og ók á eldri konu Innlent Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Innlent Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Erlent „Áreiðanlegar upplýsingar“ um að Sindri sé í varðhaldi Innlent Kveður eftir ævilangt starf Innlent Sjálfstæðisflokkur tekur Framsókn með sér í meirihluta Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Sögðust ekki ætla að setja börn í lokað búsetuúrræði en nú er tónninn annar Innlent Nærbuxur í sundi landlægt vandamál Innlent Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Erlent Fleiri fréttir Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Repúblikanar unnu kjördæmastríðið „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Hezbollah harðneitar samkomulagi Ísraels og Líbanons Höfuðpaur í Foxtrot hafi skipulagt sprengju- og skotárásir í Noregi Pelley látinn fjúka og óvissa uppi um framtíð 60 mínútna Maður sem tók tíu í gíslingu í Kaliforníu skotinn til bana Týndur í sex daga en komst einn niður af Everest Taívanar líta til Úkraínu og Íran Albanir mótmæla harðlega fyrirhugaðri milljarðamæringaparadís Trump verður að leita samþykkis þingsins fyrir aðgerðum í Íran Samþykkja að koma á vopnahléi Vilja banna rússneska túrista Árásir á Pétursborg á fyrsta degi fjárfestaráðstefnu Pútíns Sami flugmaðurinn skotinn niður yfir Íran og yfir Kúveit Konur meirihluti ráðherra í fyrsta sinn í sögu Danmerkur Mótmæli og átök vegna dauða Henry Nowak Gerðu árásir á eyju í Hormússundi í nótt Sjá meira