Allt sauð upp úr þegar Celtic stal sigri í vítaspyrnukeppni Ágúst Orri Arnarson skrifar 8. mars 2026 16:01 Stuðningsmenn beggja liða réðust inn á völlinn eftir leik. Steve Welsh/PA Images via Getty Images Celtic komst áfram í undanúrslit skosku bikarkeppninnar í fótbolta eftir hádramatískan sigur í vítaspyrnukeppni á útivelli gegn Rangers. Lokatölur 0-0 en 2-4 fyrir Celtic eftir vító.
Rangers voru með stjórn á leiknum frá upphafi til enda. Heimamenn á Ibrox voru hins vegar óheppnir fyrir framan markið. Þeir tóku nítján skot í venjulegum leiktíma, fjögur þeirra rötuðu á markið, en tókst ekki að brjóta ísinn. Celtic varðist mjög aftarlega á vellinum og átti eitt skot á markið úr slöku færi. Þeim tókst reyndar að koma boltanum í netið í fyrri hálfleik upp úr hornspyrnu, en markið var réttilega dæmt af vegna rangstöðu. Þar með leik sóknarleik Celtic í raun og veru. Leiknum lauk síðan með markalausa jafntefli og haldið var í framlengingu. Þar tókst Rangers loks að koma boltanum yfir línuna, en markið fékk ekki að standa eftir VAR skoðun vegna þess að boltinn fór í hönd sóknarmanns. Þá þurfti að fara í vítaspyrnukeppni, sem Celtic vann 4-2. Þrátt fyrir að hafa aðeins átt þetta eina skot á 120 mínútum var gestaliðið sparkvissara. Gestirnir fóru hlæjandi heim af Ibrox. WM Sport Media/Getty Images Alex Oxlade-Chamberlain, Auston Trusty, Reo Hatate og Tomas Cvancara skoruðu mörkin fyrir Celtic. James Tavernier klikkaði á fyrstu spyrnu Rangers og Djeidi Gassama á þeirri fjórðu. Öryggisvörðurinn ákvað að standa ekki í vegi fyrir þessum svartklæddu mönnum með hettur fyrir andlitinu. Harvey/SNS Group via Getty Images Allt sauð upp úr þegar leiknum lauk. Stuðningsmenn beggja liða stormuðu inn á völlinn en eftir afskipti lögreglu tókst að róa mannskapinn niður. Hér fyrir neðan má sjá lætin í lok leiksins. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=OUQKwTSa7Ew">watch on YouTube</a>
Skoski boltinn Mest lesið Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Íslenski boltinn Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Handbolti Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Handbolti Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Íslenski boltinn Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Enski boltinn Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Íslenski boltinn „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Íslenski boltinn Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Enski boltinn Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Enski boltinn Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga „Ekkert undir mér komið að tjá mig um það“ Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Cody Gakpo orðaður við Manchester City „Maður var aldrei alveg rólegur“ Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Ísak Andri nálgast sænsku úrvalsdeildina Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Ágúst Orri mættur í hollensku úrvalsdeildina Dybala mataði þrennu fyrir Malen gegn Fiorentina Sjá meira