Al­gjört hrun Spurs sem er stigi frá fallsæti

Sindri Sverrisson skrifar
Micky van de Ven var skúrkur kvöldsins en hann fékk rauða spjaldið í fyrri hálfleik, þegar Palace jafnaði svo metin úr vítaspyrnu.
Micky van de Ven var skúrkur kvöldsins en hann fékk rauða spjaldið í fyrri hálfleik, þegar Palace jafnaði svo metin úr vítaspyrnu. Getty/Julian Finney

Þrátt fyrir að hafa komist yfir gegn Crystal Palace í kvöld endaði Tottenham á að tapa 3-1 og er aðeins stigi frá fallsæti í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Óhætt er að segja að vendipunktur leiksins hafi verið á 38. mínútu þegar Micky van de Ven fékk rautt spjald, skömmu eftir að Dominic Solanke hafði komið Tottenham yfir.

Van de ven braut á Ismaila Sarr innan teigs og því var einnig dæmd vítaspyrna sem Sarr skoraði úr.

Rúmum tíu mínútum síðar var Palace komið í 3-1, áður en flautað var til hálfleiks. Vörn heimamanna míglak og Adam Wharton nýtti það til að leggja upp mörk fyrir Jörgen Strand Larsen og Sarr.

Áður en Tottenham komst yfir í leiknum hafði mark verið dæmt af Sarr vegna afar naumrar rangstöðu en Palace-menn létu það áfall ekki á sig fá og unnu á endanum öruggan sigur. 

Þar með er Palace í fínum málum í 13. sæti með 38 stig en Tottenham er með 29 stig í 16. sæti, stigi fyrir ofan Nottingham Forest og West Ham.

Tottenham hefur tapað fimm deildarleikjum í röð og er eina liðið í ensku úrvalsdeildinni sem enn á eftir að vinna leik í deildinni á árinu 2026. Staðan hefur ekki gert annað en að versna síðan að félagið rak Thomas Frank og réði Igor Tudor tímabundið út leiktíðina.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira