Vinícius Júnior tryggði Real Madrid aftur sigurinn

Vinicius Junior fagnar sigurmarki sínu fyrir Real Madrid í kvöld. Aftur fór hann og dansaði ögrandi við hornfánann.
Vinicius Junior fagnar sigurmarki sínu fyrir Real Madrid í kvöld. Aftur fór hann og dansaði ögrandi við hornfánann. Getty/Alvaro Medranda

Vinícius Júnior tryggði Real Madrid sigur á Benfica í kvöld alveg eins og hann gerði í fyrri leiknum. Real Madrid tryggði sér sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir 2-1 sigur Benfica á Bernabeu-leikvanginum í kvöld.

Real vann fyrri leikinn 1-0 í Portúgal og þar með einvígið 3-1. Real Madrid var án margra lykilmanna í kvöld og frammistaða liðsins var langt frá því að vera sannfærandi. Liðið gerði þó nóg til að klára dæmið og mætir annaðhvort Manchester City eða Sporting CP í sextán liða úrslitunum.

Real fékk þó smá sjokk eftir aðeins fjórtán mínútur þegar Benfica komst yfir og jafnaði þar með einvígið.

Vangelis Pavlidis gaf fyrir frá hægri, varnarmaður Real, Raul Asencio, renndi sér og stýrði boltanum næstum því í eigið net, en Thibaut Courtois varði meistaralega af stuttu færi. Frákastið féll hins vegar fullkomlega fyrir Rafa Silva sem kláraði svo af stuttu færi.

Vörn Real var í molum í marki Benfica en liðið svaraði strax sem skipti öllu fyrir framhaldið. Federico Valverde sótti upp hægri kantinn og sendi boltann til baka út í teiginn á Tchouameni, sem stýrði honum í markið af vítateigsboganum. Real var 2-1 yfir samanlagt og þvílík byrjun á leiknum.

Það sem tók við var ekki alveg eins fjörugt. Mark var dæmt af Real Madrid vegna naumrar rangstöðu en Benfica ógnaði líka nokkrum sinnum og átti meðal annars skot í slána.

Það var ekki mikið að gerast hjá Real-mönnum í seinni hálfleiknum þegar Vinícius Júnior slapp í geng og innsiglaði sigurinn. Hann fékk stungusendingu, var allt of fljótur fyrir hinn 38 ára gamla Nicolas Otamendi og Vinícius Jr. renndi síðan boltanum fram hjá Anatoliy Trubin. Alveg eins og í Lissabon, fagnar hann með dansi úti í horni.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira