Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Hólmfríður Gísladóttir skrifar 25. febrúar 2026 06:51 Ræða forsetans var tíðindalítil og heimurinn engu nær um hvað hann hyggst gera hvað varðar Íran, Gaza og Úkraínu. Getty/Kenny Holston Donald Trump Bandaríkjaforseti hélt stefnuræðu sína í nótt, sem var tíðindalítil og einkenndist helst, eins og svo margar ræður forsetans, af sjálfshóli og gagnrýni á raunverulega andstæðinga og ímyndaða óvini.
Ræðan var hins vegar metlöng; 108 mínútur. Það má segja að Trump og Repúblikanaflokkurinn hafi átt nokkuð mikið undir ræðunni, þar sem skoðanakannanir sýna að vinsældir forsetans hafa dalað verulega og að Demókratar eiga góðan möguleika á því að ná aftur meirihluta í fulltrúadeildinni í haust. Það kvað hins vegar við kunnuleg stef í ræðu Trump. Forsetinn kallaði andstæðinga sína illum nöfnum, fordæmdi niðurstöðu hæstaréttar í tollamálinu og sagði allt í blóma í efnahagsmálum heima fyrir. Þá skammaði hann Demókrata fyrir að hamra sífellt á því hversu hár framfærslukostnaðurinn væri í Bandaríkjunum, þrátt fyrir að kannanir sýni að hann er meðal þeirra mála sem kjósendur telja hvað mikilvægust. „Í kvöld, á aðeins einu ári, getum við sagt með stolti og reisn að við höfum stuðlað að umbreytingu eins og aldrei hefur sést áður og sögulegum viðsnúningi,“ sagði Trump meðal annars. Fjórir hæstaréttardómarar voru viðstaddir stefnuræðu forsetans, þar af þrír sem dæmdu tollana hans ólöglega.Getty/Chip Somodevilla Miðlar beggja vegna Atlantshafsins staðreyndatékkuðu ræðu forsetans í rauntíma og bentu á að hann hefði ítrekað farið rangt með, til að mynda þegar hann sagði morðingja konu í Norður-Karólínu hafa verið innflytjanda og þegar hann sagði ríkisstjórn sína myndu standa vörð um Medicaid, þrátt fyrir að hafa samþykkt niðurskurð sem mun svipta milljónir manna sjúkratryggingum. „Landið okkar er farið að sigra aftur. Við sigrum raunar svo oft og mikið að við vitum ekki hvað við eigum að gera með það,“ sagði Trump. Al Green, þingmanni Demókrataflokksins frá Texas, var fylgt út úr salnum eftir að hann hélt uppi skilti þar sem stóð að svart fólk væru ekki apar. Um var að ræða tilvísun í myndband sem Trump birti á samfélagsmiðlum þar sem Barack og Michelle Obama voru sýnd sem apar. Green var einnig rekinn úr salnum fyrir ári síðan, fyrir að kalla fram í fyrir forsetanum. Nokkrir Demókratar gengu út áður en forsetinn hafði lokið ræðu sinni og þeim sem hlustu til enda þótti lítið til hennar koma. „Í nærri tvær klukkustundir spúði Donald Trump lygum, áróðri og hatri,“ sagði Hakeem Jeffries, leiðtogi Demókrata í fulltrúadeildinni, í yfirlýsingu. „Í stað þess að birta þjóðinni jákvæða sýn fyrir framtíð okkar og efnahag, kenndi forsetinn öðrum um mistök sín.“ Það var Abigail Spanberger, ríkisstjóri Virginíu, sem hélt mótræðu Demókrata. „Er forsetinn að vinna fyrir þig?“ spurði Spanberger í þrettán mínútna ræðu sinni. „Við vitum öll að svarið er nei.“
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Sjá meira