Staðan í Mexíkó og Bandaríkjunum valdi áhyggjum Valur Páll Eiríksson skrifar 24. febrúar 2026 14:31 Andreas Rettig, framkvæmdastjóri þýska knattspyrnusambandsins, hefur áhyggjur af stöðunni vestanhafs. Stuart Franklin/Getty Images Andreas Rettig, framkvæmdastjóri þýska knattspyrnusambandsins, DFB, segir ofbeldisöldu í Guadalajara í Mexíkó ýta undir kvíða fremur en spennu fyrir komandi heimsmeistaramóti í sumar.
Óeirðaalda hefur farið yfir ákveðna hluta Mexíkó eftir að mexíkóski herinn felldi eiturlyfjabaróninn El Mencho á sunnudaginn var. Hann fór fyrir gríðarstórum glæpasamtökum í landinu og vakti dauðsfall hans hörð viðbrögð meðlima. Enn er til skoðunar hvort leika eigi æfingaleik Mexíkó og Íslands sem á að fara fram á aðfaranótt fimmtudags í Queretaro þar sem íslenska landsliðið er statt. Staðan er skárri í Queretaro en víða annars staðar. Hún hefur verið hvað verst í Guadalajara en þar eiga leikir að fara fram á HM í fótbolta í sumar. Mexíkó á að mæta Suður-Kóreu þar í borg og Úrúgvæ og Spánn eiga einnig að mætast þar. Þá fer fram umspil um sæti á HM eftir rúman mánuð, milli Nýju-Kaledóníu og Jamaíku. Þjóðverjar leika ekki í Mexíkó en Rettig sagði í samtali við staðarmiðil í Augsburg í Þýskalandi að ástæða væri til að hafa áhyggjur af stöðunni. Aðspurður hvort hann væri spenntur fyrir mótinu sagði Rettig: „Ef ég á að vera hreinskilinn, er ég það ekki akkúrat núna.“ „Sjáandi þessar myndir frá Mexíkó – þá er hugur minn hjá þeim verða fyrir áhrifum þessa óróa. Það er ekkert að gera nema vona að þetta, sem má líkja við stríðsástand, hjaðni,“ segir Rettig sem hefur einnig áhyggjur af Bandaríkjunum. „Við sjáum líka myndir frá borgum á austurströnd Bandaríkjanna þar sem hræðilegir snjóstormar valda áhyggjum. Það er því ekki mikil spenna fyrir HM akkúrat núna. Frekar vonar maður að allt fari að færast í eðlilegt horf,“ segir Rettig. Þýskaland mætir Bandaríkjunum í æfingaleik fyrir komandi HM í Chicago í byrjun júní. Þá mætir liðið Curacao, Fílabeinsströndinni og Ekvador í Houston, Toronto og New Jersey.
Þýski boltinn Mexíkó HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Sjá meira